Þræla- og framkvæmdakóngurinn

Í Tervuren skammt frá Brussel stendur glæsi­legt hús. Inn­an­dyra má hins­vegar sjá átak­an­lega sögu um und­ir­okun, þræl­dóm og grimmd­ar­verk þjóð­ar­leið­toga sem einskis sveifst til að láta stór­veld­is­drauma sína ræt­ast.

Stytta af Leopold II í Brussel. Myndin var tekin þann 10. júní 2020.
Stytta af Leopold II í Brussel. Myndin var tekin þann 10. júní 2020. Mynd: EPA

Belgía er ungt ríki, varð til árið 1831. Nafnið Belgía er þó mun eldra en Júlíus Cesar sem hertók landið á 1. öld fyrir Krist kall­aði það Gallica Belgica. Þetta nafn hvarf þó á mið­öldum en þegar Belgía varð sjálf­stætt ríki árið 1831 varð hið opin­bera heiti þess Kon­ung­dæmið Belgía.

Tildrög þess að Belgía varð sjálf­stætt ríki eru flókin og marg­þætt en sú saga verður ekki rakin hér. Þegar ákvörð­unin um að Belgía skyldi verða kon­ungs­ríki þurfti að finna þjóð­höfð­ingja. Sú leit end­aði með því að þýskur prins „tók starfið að sér“. Sá hét Leopold og eftir að hann var orð­inn kon­ungur nefndur Leopold I. Það var klókt af Belgum að fá þennan þýska prins sem kon­ung, hann hafði verið giftur breskri prinsessu – hún lést af barns­förum – og var þess vegna tengdur Bretum. Tengsl hans við Breta og Þjóð­verja urðu til þess að Frakkar, sem höfðu mik­inn áhuga á að ná Belgíu undir sig, þorðu ekki að haf­ast að í þeim efnum.

[adspot]

Leopold II

Leopold I lést í des­em­ber 1865 og sonur hans, Leopold II erfði krún­una. Hann var fæddur 1835, móð­irin var seinni kona föður hans, Louise of Orléans. Frönsk eins og nafnið gefur til kynna.

Leopold II var mik­ill fram­kvæmda­maður. Það kom sér vel, enda í mörg horn að líta í ungu kon­ungs­ríki. Margar þeirra bygg­inga sem reistar voru í hans tíð eru enn í dag með þeim glæsi­leg­ustu í land­inu og sýna stór­hug kon­ungs.

Margir Belgar vilja gjarna muna þessa hlið á kóng­inum og kalla hann gjarna, með réttu, fram­kvæmda­kóng­inn.

Leopold II lagði ríka áherslu á að efla varnir lands­ins, ótt­að­ist alla tíð að nágranna­ríkin, Frakk­land og Þýska­land myndu sæta færis og leggja „litlu Belgíu“ eins og hann komst að orði, undir sig. Sá ótti reynd­ist þó ástæðu­laus.

Afríka og Stanley

Þær fjöl­mörgu fram­kvæmdir sem Leopold II réðst í kost­uðu mikið fé. Hann hafði veitt því athygli að mörg Evr­ópu­ríki beindu sjónum sínum að Afríku og ákvað að Belgía skyldi bæt­ast í hóp þeirra.

Árið 1876 hélt Leopold II ráð­stefnu í Brussel. Þangað mættu full­trúar margra ríkja og sömu­leiðis vís­inda­menn og land­könn­uðir. Kóng­ur­inn ræddi þar um nauð­syn þess að Afr­íku­menn færð­ust nær nútím­anum, í við­skiptum og menn­ingu. Hann vildi gjarna leggja sitt af mörkum í þeim efnum. Ráð­stefnu­gestum leist vel á þessar hug­myndir, vissu ekki að hvað að baki bjó.

Árið 1878 samdi Leopold II við land­könn­uð­inn Henry Morton Stanley um að fara í leið­angur til Afríku, sem sér­legur full­trúi sinn. Stanley þekkti vel til víða í Afríku, hann hafði verið blaða­maður og ferð­ast um mörg svæði í þess­ari stóru heims­álfu. Árið 1871 hafði hann, eftir tveggja ára leit, uppi á land­könn­uð­inum og trú­boð­anum David Livingstone, sem hafði farið til Afríku en eng­inn vissi hvar var nið­ur­kom­inn. Samkvæmt frá­sögn Stanleys ávarp­aði hann Livingstone með orðum sem urðu víðs­fræg: „Doctor Livingstone, I presume.“

Fríríkið Kongó

Afr­íku­leið­angur Stanleys hófst árið 1879 og stóð í fimm ár. Þegar honum lauk hafði hann, fyrir hönd Leopolds kon­ungs und­ir­ritað fjöld­ann allan af samn­ingum um afnot af landi, lagt vegi og skipu­lagt versl­un­ar­staði (tra­d­ing posts) með­fram Kongó fljóti – eins og það heitir í dag – en það er næst lengsta fljót Afríku, um það bil 4400 kíló­metra langt.

Rík­is­stjórn Belgíu hafði efa­semdir varð­andi fyr­ir­ætl­anir kóngs­ins um þessa risa­stóru nýlendu en það breytti engu. Kónginum tókst að fá stjórnir Banda­ríkj­anna og stærstu ríkja Evrópu til að sam­þykkja yfir­ráð Belga yfir svæði sem nær yfir 2.4 millj­ónir fer­kíló­metra – en Belgía er 31 þús­und fer­kíló­metrar. Leopold II bjó þannig um hnút­ana að að þessi nýlenda sem hann nefndi État Indépend­ant du Congo, Fríríkið Kongó, yrði sín einka­eign. Þetta var árið 1885.

Fílabein og gúmmí

Í upp­hafi nýlendu­tíma­bils­ins beind­ist áhugi kon­ungs fyrst og fremst að fíla­beini. Á þessum tíma var fíla­bein mjög eft­ir­sótt og fyrstu árin var það stærsta tekju­lindin. Það stóð hins­vegar ekki lengi því um og uppúr 1890 voru vís­inda­menn búnir að upp­götva nýtt undra­efni – eins og það var gjarna nefnt – gúmmí. Bílaöld var að hefj­ast og gúmmíið var þá – eins og í dag – besta efnið í hjól­barð­ana.

Í stuttu máli sagt: það varð strax mikil eft­ir­spurn eftir þessu nýja efni sem unnið var úr trjá­kvoðu. Í nýlendu Belg­íu­kon­ungs voru býsnin öll af gúmmí­trjám, eins og þau voru kölluð eftir að efnið var upp­götvað. Og Leopold II sá strax hví­lík auð­lind þetta myndi reyn­ast. Fjöl­mennt her­lið hans neyddi heima­menn í Frí­rík­inu Kongó til að vinna stærstan hluta sól­ar­hrings­ins.

Grimmilegar aðfarir

Ótal sögur eru til af grimmd her­manna kon­ungs­ins, sem hik­uðu ekki við að skjóta alla þá sem sýndu mót­þróa eða slógu slöku við, að mati her­mann­anna. Fræði­menn telja að árið 1880 hafi íbúar Kongó verið um það bil 20 millj­ónir. 40 árum síðar, 1920 hafi lands­mönnum fækkað um 50 pró­sent, 10 millj­ónir. Millj­ónir dóu úr hungri, fæð­ingum fækk­aði og svo féll gríð­ar­legur fjöldi fyrir byssu­kúlum her­manna.

Aðrar nýlendu­þjóðir, Frakkar, Þjóð­verjar og Portú­galar tóku upp sömu vinnu­brögð og Belgar, með skelfi­legum afleið­ingum fyrir íbúa í nýlendum þeirra.

Fríríkið Kongó varð Belgíska Kongó

Árið 1908 neydd­ist Leopold II til að afhenda belgíska rík­inu nýlend­una, sem þá fékk nafnið Belgíska Kongó, og bar það nafn til árins 1960, þegar nýlendu­tíma­bil­inu lauk. Fyrir þess­ari breyt­ingu árið 1908 voru tvær ástæður: kóngur var kom­inn í fjár­þröng, vegna mik­illa fram­kvæmda heima fyrir og sömu­leiðis var hann orð­inn óvin­sæll meðal landa sinna.

Þær óvin­sældir tengd­ust lítt mál­efnum Kongó. Kóng­ur­inn tal­aði ekki flæmsku, annað aðala­tung­mál Belga, hann eyddi vetr­unum í blíð­unni á frönsku Mið­jarð­ar­hafs­strönd­inni. Áhugi hans á ungum konum var lit­inn horn­auga af löndum hans og þegar hann var 65 ára tók hann upp sam­band við unga fyrr­ver­andi vænd­is­konu sem ól honum tvö börn. Kóng­ur­inn var mikið fyrir að láta á sér bera og sá sjálfur til þess að af honum voru reistar margar styttur víðs­vegar í Belgíu.

Safnið í Tervuren og mannadýragarðurinn

Árið 1897 haldin svo­nefnd Heims­sýn­ing í Brussel. Hana sóttu nær átta millj­ónir gesta og 27 ríki tóku þátt í sýn­ing­unni. Leopold II sá þarna kjörið tæki­færi til að kynna nýlend­una „sína“ fyrir umheim­inum og sett var upp sýn­ing í nýbyggðu stóru glæsi­hýsi í Tervuren, fyrir utan Brussel. Mesta athygli vakti afrískt þorp sem kóng­ur­inn hafði látið gera í garð­inum við safnið. Hann hafði enn­fremur látið flytja þangað 267 kongóbúa sem réru um í síkjum á svæð­inu. Þetta var svo end­ur­tekið á heims­sýn­ing­unni árið 1958, tveimur árum áður en nýlendu­tíma­bil­inu lauk, en var þá gagn­rýnt harð­lega.

Safnið hét upp­haf­lega Belgíska Kongósafnið, en árið 1952 var nafn­inu breytt í Kon­ung­lega safnið um Belgíska Kongó. Árið 1960 þegar nýlendu­tíma­bil­inu lauk fékk safnið þriðja nafnið og heitir nú Kon­ung­lega Mið-Afr­íku­safnið.

Safninu var lokað árið 2013, þá hafði nán­ast engu verið breytt frá því 1950. Árið 2018 var svo opnað á ný, eftir gagn­gerar end­ur­bætur. Safn­stjór­inn sagði í við­tali fyrir skömmu að með breyt­ing­unni væri ætl­unin að leggja áherslu á Afríku nútím­ans, án þess að gleyma for­tíð­inni. Safn­stjór­inn sagði að flestir Belgar hefðu, þangað til fyrir um 20 árum, verið sann­færðir um að nýlendu­tíma­bilið hefði í alla staði verið gott. Þeir hefðu lagt vegi, byggt sjúkra­hús og séð til þess að almenn­ingur í Kongó hefði notið skóla­göngu. „Nú við­ur­kenna allir að þannig var það ekki, nú tala margir um nýlendu­tíma­bilið sem svartan blett í sögu Belgíu.“

Vilja stytturnar burt

Eins og áður var nefnt eru fjöl­margar styttur af Leopold II víðs­vegar í Belgíu. Und­an­farið hafa heyrst háværar raddir sem krefj­ast þess að þessar styttur verði fjar­lægðar, í ljós sög­unnar. Ein stytta hefur verið fjar­lægð, en ann­ars­staðar hefur kóng­ur­inn, steyptur í brons, hins­vegar fengið á sig marga máln­ing­argus­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár