Ráðherra segir regluverkið flókið og fráhrindandi

Iðnaðar- og við­skipta­ráð­herra hefur kynnt tvö frum­vörp tengd ferða­þjón­ust­unni. Annað snýr að skilum árs­reikn­inga hjá fyr­ir­tækjum og hitt varðar svarta íbúða­leigu. Hún segir reglur um heimagist­ingu hér flóknar og frá­hrind­andi.

Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra, segir brýnt að taka á reglu­verk­inu í kring um heimagist­ingar á land­inu. Hún hefur kynnt frum­varp fyrir rík­is­stjórn­inni sem á að taka á svartri útleigu íbúða sem snýr að heimagist­ingu á vegum einka­að­ila, oftar en ekki kennt við alþjóð­legu vef­síð­una Airbnb. Einungis 250 af 1.900 Airbnb gisti­plássa í Reykja­vík eru með til­skilin leyfi. 

Ragn­heiður Elín segir tvö aðal­sjón­ar­mið liggja að baki fram­lagn­ingu frum­varps­ins. 

„Annars vegar er það ein­földun reglu­verks sem hefur verið for­gangs­mál hjá þess­ari rík­is­stjórn. Hins­vegar sú stað­reynd að þessi teg­und gist­ingar, það er útleiga ein­stak­linga á heim­ilum sínum, hefur auk­ist all­veru­lega á umliðnum árum,” segir hún. „Reglu­verkið um heimagist­ingu hefur verið flókið og frá­hrind­andi og því hefur þessi teg­und gist­ingar verið að stórum hluta til óskráð og án leyfis með til­heyr­andi und­an­skotum frá skatti.” 

Frum­varp­inu sé ætla að koma til móts við þetta og ein­falda fólki til að muna að standa lög­lega að málum. 

87% tekna af heimagistingu svartar

Í nýlegri skýrslu sem Háskól­inn á Bifröst vann fyrir atvinnu­vega­ráðu­neytið, og Kjarninn greindi frá, eru um 3.400 íbúðir skráðar hjá Airbnb á land­inu öllu, þar af 1.900 á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Hins­vegar eru ein­ungis 13 pró­sent íbúð­anna skráðar og með leyfi. 

Ragn­heiður bendir á að það séu því umtals­verðar fjár­hæðir sem rík­is­sjóður verði af miðað við að 87 pró­sent tekna af heimagist­ingu séu svartar.

„Með þessu erum við einnig að ein­falda eft­ir­lit fyrir skatta­yf­ir­völd til muna því allar íbúðir í útleigu munu fá númer sem þeim er skylt að láta koma fram við mark­aðs­setn­ingu á eign­inni,“ segir hún.

Trúir að lögin hafi fælandi áhrif

Ragn­heiður Elín seg­ist bjart­sýn á að fólk fram­fylgi lög­unum. 

„Ég hef nú þá trú almennt að fólk vilji vera heið­ar­legt og leggja sitt af mörkum til sam­fé­lags­ins. Það hefur komið skýrt fram að það hafi fælandi áhrif fyrir þá sem ætla sér að ná í auka­tekjur með því að leigja út heim­ili sitt tíma­bundið, að þurfa að fara gegnum sama leyf­is­ferli og gisti­heim­ili og hótel sem eru í rekstri allt árið,” segir hún, „Ég á von á að þess­ari ein­földun verði vel tekið og að hlut­fall heimagist­ingar með leyfi muni hækka í kjöl­farið.“

Nýtt frumvarp um ársreikninga

Rík­is­stjórnin hefur sett ein­földun reglu­verks í for­gang allt kjör­tíma­bilið, að mati Ragn­heiðar Elínar. Hún segir að síðan árið 2014 hafi verið unnið mark­visst eftir skýrslu sem var unnin ásamt Ferða­mála­stofu um ein­földun á reglu­verki fyrir ferða­þjón­ust­una.

„Við höfum nú þegar end­ur­skoðað lög um bíla­leigur og munum áfram vinna að inn­leið­ingu þeirra verk­efna, til að mynda er verið er að vinna að einni gátt fyrir leyf­is­veit­ingar,” segir hún. Á föstu­dag lagði ráð­herra frum­varp fyrir rík­is­stjórn um breyt­ingar á árs­reikn­inga­lögum.

„Lögin munu meðal ann­ars ein­falda yfir 80 pró­sent íslenskra fyr­ir­tækja, þar með talið í ferða­þjón­ust­unni, að skila árs­reikn­ingum sam­hliða skatt­fram­tali, svo fátt eitt sé nefnt,“ segir Ragn­heiður Elín.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár