Þorvaldur Gylfason

Þorvaldur Gylfason

Bloggsíða Þorvaldar Gylfasonar

Kannski lög­legt en klár­lega sið­laust

Alþingi verður sér til æ frek­ari minnk­unar með hverri nýrri við­bót við frum­varp for­manna stjórn­mála­flokk­anna til nýrrar stjórn­ar­skrár. Kjarni máls­ins er þessi: Alþingi setti löngu tíma­bæra end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar í heil­brigðan og við­eig­andi far­veg 2009 með því að fela þjóð­kjörnu og þing­skip­uðu stjórn­laga­ráði að vinna verkið 2011 og leggja afrakst­ur­inn í dóm kjós­enda 2012. Allt gekk þetta eins og í sögu,...

Veiran afhjúpar mun­inn á Banda­ríkj­unum og Evrópu

Veiran æðir áfram. Fjöldi greindra smita um heim­inn nálg­ast nú 11 millj­ónir og fjöldi dauðs­falla nálg­ast 520.000. Banda­ríkja­menn telja aðeins um 4% af íbúa­fjölda heims­ins en greind smit og dauðs­föll þar vestra eru samt um fjórð­ungur greindra smita og dauðs­falla um heim­inn allan. Nánar til­tekið eru 131.000 manns fallin í val­inn af völdum veirunnar í Band­ríkj­unum. Smitum og dauðs­föllum fer...

Umsögn um rík­is­tungu­á­kvæði

Til­burðir þing­flokka við end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar afhjúpa fyr­ir­lit­lega spill­ingu Alþingis eina ferð­ina enn. Fyrst var auð­linda­á­kvæði sem 83% kjós­enda lýstu sig fylgj­andi í þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni 20. októ­ber 2012 úrbeinað í þeim auð­sæja til­gangi að festa í sessi óbreytt ástand fisk­veiði­stjórn­ar­innar til að tryggja hag útvegs­manna og erind­reka þeirra meðal stjórn­mála­manna gegn vilja fólks­ins í land­inu. Þá voru umhverf­is­vernd­ar­á­kvæðin í frum­varpi Stjórn­laga­ráðs frá...

Sex fróð­leiksmolar um far­ald­ur­inn

Íslend­ingar eiga metið: við höfum nú prófað kór­ónu­veirusmit í hærra hlut­falli lands­manna en gert hefur verið í nokkru öðru landi. Einka­fyr­ir­tækið Íslensk erfða­grein­ing hefur gert meiri hluta próf­anna, en flest smitin hafa fundizt í prófum Land­spít­ala Háskóla­sjúkra­húss þar eð þeir sem finna fyrir ein­kennum leita helzt þangað. Prófin eru ókeypis. Fær­ey­ingar skip­uðu efsta sæti list­ans þar til í...

Traust á tímum veirunnar

Þegar far­sótt herjar á fólk og æðir yfir löndin og bólu­efni, skil­virk lyf og jafn­vel skimun eru ekki í boði og heil­brigð­is­þjón­ustan á fullt í fangi með að sinna þeim sem sýkj­ast, þá skiptir miklu að réttar upp­lýs­ingar um vána ber­ist almenn­ingi hratt og vel. Sam­kvæmar, trú­verð­ugar og réttar upp­lýs­ingar eru þá áhrifa­rík­asta vörn almanna­valds­ins og almenn­ings gegn vánni. Reynslan...

Þverr­andi traust og virð­ing

Trump Banda­ríkja­for­seti flutti í gær­kvöldi árvissa ræðu for­set­ans í þing­inu. Ræða hans var í venju­legum öfug­mæla­stíl. Hann sagði meðal ann­ars að Banda­ríkin njóti nú aftur virð­ingar („hig­hly respected again“). Forseti full­trúa­deildar þings­ins, Nancy Pelosi, kall­aði ræð­una ósann­inda­ávarp („man­i­festo of mistruths“) og reif hana í tætlur í aug­sýn þing­heims og athug­ulla sjón­varps­véla. Stöldrum hér við þetta til­tekna atriði: að Banda­ríkin njóti...

Mest lesið undanfarið ár