Ragga Nagli um reynslu sína sem innflytjandi: lögbrjótur sem tileinkar sér ekki siði Danans

Ragga Nagli lýsir brestum sínum sem inn­flytj­andi í Danmörku og seg­ist aldrei hafa upp­lifað vesen frá múslimum. „Sýnum náunga­kær­leika og komum fram við inn­flytj­endur á Íslandi eins og við viljum að sé komið fram við okkur þegar við tökum okkur búsetu á erlendri grund.“

Ragga Nagli
Ragga Nagli Íslenskur sál­fræð­ingur og einka­þjálf­ari í Danmörku seg­ist búa í nágrenni við bæna­hús múslima og aldrei hafa upp­lifað neitt nei­kvætt frá gestum þess.

Ragga Nagli, eða Ragn­hildur Þórð­ar­dóttir, sál­fræð­ingur og einka­þjálf­ari sem vakið hefur athygli á sam­fé­lags­miðlum, lýsir reynslu sinni sem inn­flytj­andi í Danmörku í færslu á Facebook í dag. Tilefnið virð­ist vera umræða um inn­flytj­endur sem auk­ist hefur eftir mót­mæli félags­ins Ísland - þvert á flokka á Aust­ur­velli síð­ast­lið­inn laug­ar­dag.

„Naglinn er inn­flytj­andi,“ skrifar hún í færsl­unni sem hafði síð­degis í dag fengið yfir 1400 „like“. „Sextán ár búsett í Bauna­landi. Talar ófull­komna dönsku með hreim. Ólst ekki upp í dönskum kúltúr. Og hefur ekki til­einkað sér siði og venjur Danans nema að örlitlu leyti.“

Hún seg­ist helst umgang­ast Íslend­inga og tengja lítið við margt af því sem sterkt er í Danmörku. „Þekkir ekki einn ein­asta danska áhrifa­vald. Hlustar ekki á danska tón­list nema klassíkera úr átt­unni og níunni. Finnst dönsk stjórn­mál drep­leið­in­leg. Fagnar ekki Mortensaf­ten. Étur ekki kran­sa­köku á gamlárs­kvöld. Bakar ekki bollur á Stóra Bæna­deg­inum. Les ekki Se og Hør eða Billed bla­det. Er drull um hvaða raun­veru­leika­stjarna var að skilja. Finnst flæskesteg við­bjóður. Danskt nammi mjög bragðvont. Anton Berg örugg­lega fram­leitt í for­garði Helvítis. Smør­rebrød ofmetin Júmbó sam­loka. Bulow lakk­rís­inn bragð­laus stuldur á Kúlusúkki. Vina­netið að mestu leyti Íslend­ingar. Fer á íslensk þorra­blót, jóla­böll og þrett­ánda­gleði,“ skrifa hún.

Þá tengi hún ekki við drykkju­menn­ingu Dana. „Hefur verið 13 ár á snúr­unni og drekkur því aldrei bæj­ara og því ekki hunds­vit á Tuborg, Carlsberg eða Mikk­eller. Heldur ALDREI með Danmörku í fót­bolta og bara í hand­bolta þegar Danir spila við Frakk­land. Finnst Danir of grobbnir og kok­hraustir fyrir hvern leik, en aðal­lega bit­urð djúpt í sál­inni yfir fjöl­mörgum tap­leikjum Íslend­inga við Baunann. Hefur núll áhuga á borð­tennis og bad­minton.“

Játar á sig lögbrot og lofar fjölmenninguna

„Naglinn hefur kom­ist í kast við lögin í Danmörku og var tekin af politim­and fyrir að keyra á 70 km hraða þar sem hámarks­hraði var 50 km/h,“ skrifar Ragga. „Hinum megin göt­unnar eru fjöl­býl­is­hús þar sem 99% eru inn­flytj­endur frá Tyrk­landi, Írak, Íran, Pakistan. Í næstu götu ein stærsta moskan á Norð­ur­brú, og streyma þangað kufla­k­lætt íslamstrúað fólk mörgum sinnum á dag, og í unn­vörpum á föstu­dögum. Aldrei upp­lifað vesen af þessu návígi við önnur trú­ar­brögð og menn­ingu.“

„Þjóð­ern­is­remb­ing­ur­inn er af sauða­húsi nas­ista í orð­ræð­unni hjá virkum í athuga­semdum“

Þá lofar hún mat­ar­menn­ing­una sem fylgir fjöl­breyti­leik­anum. „Naglinn elskar að fara á kebabstað hér á Norð­ur­brú Kaup­manna­hafnar, einu stærsta sam­fé­lagi múslima á Norð­ur­löndum og löðra í sig grill­kjöti, bulgur og hummus. Og elskar líka að borða ind­verskan, víetnamskan, tælenskan, marokkóskan og sushi. Allur þessi matur er eld­aður og/eða undir inn­blæstri inn­flytj­enda í Danmörku. Jón Sig­urðs­son var inn­flytj­andi í Danmörku. Albert Einstein og Arnold Schwarzenegger inn­flytj­endur í Banda­ríkj­unum. Freddie Mercury inn­flytj­andi í Bret­landi. Zlatan Ibrahimovic er inn­flytj­andi í Svíþjóð. Hefðu þessar þjóðir viljað segja þeim að drulla sér heim útlend­inga­pakk? Ef ekki væri fyrir inn­flytj­endur á Íslandi væri ekki marókkoskur veit­inga­staður á Siglu­firði, Nings á Suð­ur­lands­braut, Vietnam á Lauga­vegi, Mandí í Skeif­unni. Við myndum þá bara éta soðna ýsu með hamsatólg undir dán­ar­fregnum og jarð­ar­förum á Gufunni.“

Aldrei sagt að hundskast heim til sín

Þá bendir Ragga á að í Kaup­manna­höfn sé kirkja Íslend­inga. „Rétt eins og bæna­hús múslima verður á Suð­ur­lands­braut. Sam­komu­staður til að hitta landa sína, og iðka sína trú. Enginn Dani hefur sagt óum­beðið í kommenta­kerfi að Íslend­ingar séu afætur og óþjóða­lýður og ættu að hund­skast heim til sín. Ekki ein ein­asta hræða hefur sagt við Naglann: „Þú ert ekki vel­komin hér útlend­ingaó­geð“. Aldrei fengið yfir sig hol­skeflu fúk­yrða fyrir að hafa ekki aðlag­ast dönsku sam­fé­lagi og tekið upp þeirra siði og venjur. Þjóð­ern­is­remb­ing­ur­inn er af sauða­húsi nas­ista í orð­ræð­unni hjá virkum í athuga­semdum.“

Hún hvetur loks sam­landa sína til að hætta að ala á skautun, tor­tryggni og útlend­inga­hatri. „Gröfum frekar eftir sam­kennd og virð­ingu. Sýnum náunga­kær­leika og komum fram við inn­flytj­endur á Íslandi eins og við viljum að sé komið fram við okkur þegar við tökum okkur búsetu á erlendri grund. Fjöl­menn­ing gerir mann­lífið lit­rík­ara og fjöl­breytt­ara og úðar yfir okkur víð­sýni og þroska.“

Kjósa
48
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásta Jensen skrifaði
    Ég skil ekki hvað hún er að gera í Danmerku ef allt danskt er ómögulegt
    -1
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Þessi fyrirlitning á trúarbrögðum, útlendingum og konum er af svipuðum meiði og kvenfyrirlitningin, snýst um pólitík, völd en umfram allt heimsku og heimótta. Það spretta núna upp misvitrir Messiasar sem sanka að sér aðallega drengjum sem vorkenna mest sjálfum sér, finna einhvers staðar blóraböggla til að hugga sig á egin aumingjaskap.
    Við sjáum glöggt í þessum samfélögum þar sem þetta er að ná völdum, hvað hugmynda auðgin er fátæk. Eins og skáldið sagði ''woman is the nigger of the world,,
    1
  • Birgit Braun skrifaði
    Það er ekki nema tveggja stafa munur: að vera ís-.....eða útlendingur.
    Við erum öll...manneskjur.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár