Danskir sjómenn uggandi

Fátt hefur verið fyr­ir­ferð­ar­meira í fréttum síð­ustu vikur og mán­uði en útganga Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu, Brexit. Sú ákvörðun Breta að segja skilið við ESB mun hafa marg­hátt­aðar afleið­ingar fyrir danska sjó­menn, sem eru mjög ugg­andi varð­andi fram­tíð­ina.

Á þess­ari stundu er margt óljóst varð­andi Brexit og einn breskur fjöl­mið­ill sagði fyrir nokkrum dögum að ein­ungis eitt virt­ist alveg öruggt: Bretar gangi út 29. mars á næsta ári. Allt annað sé í raun óljóst.

Þótt Evr­ópu­sam­bandið standi sam­einað í samn­inga­við­ræðum við Breta er óhjá­kvæmi­legt að innan hvers ríkis velti stjórn­völd, atvinnu­rek­endur og almennir borg­arar fyrir sér spurn­ing­unni: hvað þýðir þetta í raun og veru. Breska hag­kerfið er stórt og teygir anga sína víða og því eðli­legt að spurt sé.

Fiskveiðisamkomulag lykilatriði fyrir Dani

Fisk­veiðar verða eitt lyk­il­at­rið­anna í þeim viða­miklu við­skipta­samn­ingum sem Bretar og ESB þurfa að vinna að og ná sam­komu­lagi um á næstu mán­uðum, og árum. Í skiln­að­ar­samn­ingnum (eins og það er kallað) er gert ráð fyrir að sjó­menn níu ESB ríkja, þar á meðal Dan­merkur, sem fram til þess hafa veitt í breskri fisk­veiði­lög­sögu geti haldið þeim veiðum áfram til árs­loka 2020. Þangað til eru aðeins tvö ár, sem er mjög skammur tími þegar flóknar samn­inga­við­ræður eru ann­ars vegar, við­ræður sem eru ekki hafnar. Theresa May, for­sæt­is­ráð­herra Breta hefur ítrekað gefið í skyn, síð­ast fyrir fjórum dögum, að Bretar ætli sér að segja algjör­lega skilið við fisk­veiði­stefnu Evr­ópu­sam­bands­ins.

Hollendingar, Danir og Frakkar

Þær þjóðir sem mestra hags­muna hafa að gæta varð­andi áfram­hald­andi fisk­veiðar í breskri lög­sögu eru Hol­lend­ingar, Danir og Frakkar.

Niels Wichmann fram­kvæmda­stjóri dönsku sjó­manna­sam­tak­anna sagð­ist, í við­tali við dag­blaðið Berl­ingske, vera bjart­sýnn á að dönsk stjórn­völd muni ná samn­ingum við Breta. „Við treystum þeim lof­orðum sem við höfum fengið frá ráð­herrum rík­is­stjórn­ar­innar að þeir muni gera allt sem þeir geta til að tryggja dönskum sjó­mönnum góðan samn­ing.“ Hann sagði enn­fremur að vissu­lega valdi það áhyggjum að í hinni svo­nefndu neyð­ar­á­ætlun varð­andi Brexit sé ekki minnst á fisk­veiðar og þess vegna sé ekk­ert tryggt í þeim efnum.

Vilja fiskveiðisamning samhliða viðskiptasamningi

Fisk­veiði­þjóð­irnar níu, sem veitt hafa í breskri fisk­veiði­lög­sögu, hyggj­ast krefj­ast þess að samn­ingur um fisk­veiðar verði gerður sam­hliða við­skipta­samn­ingi. Stef Blok, utan­rík­is­ráð­herra Hollands, sagði, þegar hann hafði skrifað undir drög að fisk­veiði­sam­komu­lagi, að samn­ingar gætu orðið erf­iðir og benti á að breskir sjó­menn veiði mun minna í lög­sögu ann­arra ESB ríkja en ríkin níu veiði í bresku lög­sög­unni. Hol­lenski ráð­herr­ann benti á að Bretar flytji inn um 80 pró­sent þess fisks sem þeir neyti, en stærstan hluta þess sem þeir veiði sjálfir flytji þeir til ESB land­anna. Ráð­herr­ann nefndi sér­stak­lega ostrur og annan skel­fisk, ásamt laxi.

Danmörk í hópi þeirra stóru í fiskútflutningi

Árið 2016 (nýj­ustu tölur) voru Danir þrett­ándu stærstu útflytj­endur fisks og fiskaf­urða í heim­inum. Það ár voru fluttar út frá Danmörku fiskaf­urðir fyrir 27 millj­arða króna (504 millj­arða íslenska). Þetta eru tæp­lega 4 pró­sent heild­ar­út­flutn­ings Dana. Einungis hluti þessa útflutn­ings er fiskur sem danskir sjó­menn hafa aflað. Mörg útlend útgerð­ar­fyr­ir­tæki landa afla sínum í Danmörku og enn­fremur flytja Danir inn mik­inn fisk, sem er svo full­unn­inn víða í Danmörku, einkum þó á Jótlandi, og síðan fluttur út. Þar er um að ræða fiski­mjöl, fiskol­íur, reyktan fisk, salt­aðan og þurrk­aðan, auk frystra afurða og nið­ur­soð­inna. Mest er flutt til Dan­merkur af laxi, rækjum og þorski og þetta vegur sömu­leiðis þyngst í útflutn­ingnum. Stærstur hluti þess sem fluttur er inn kemur frá Noregi, Græn­landi og Færeyjum, en Þjóð­verjar eru lang stærstu kaup­endur fisks og fiskaf­urða frá Danmörku.

Fiskveiðisamningur er forgangsatriði segir ráðherrann

Eva Kjer Hansen sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Dan­merkur hefur marg­sagt samn­ing um fisk­veiðar, eftir Brexit, algjört for­gangs­mál dönsku stjórn­ar­innar. Hún hefur líka lagt á það ríka áherslu að stjórn­völd og sam­tök sjó­manna og útgerð­ar­manna standi saman. Fyrir nokkrum dögum sagði ráð­herr­ann í við­tali við danska útvarpið, DR, að það yrði mikil breyt­ing að standa í samn­inga­við­ræðum við „þriðja ríki“ eins og það var orðað. Í þessu sama við­tali sagði Eva Kjer Hansen að þótt umræðan um landa­mæri Írlands og Bret­lands hefði verið fyr­ir­ferð­ar­mikil í Brexit umræð­unni yrðu samn­ingar um veiði­rétt­indi erf­ið­astir og gætu tekið mjög langan tíma.

Úr ofveiði í sjálfbærni

Mörg und­an­farin ár hafa flestir fiski­stofnar í Norð­ur­sjó, Skagerrak og víðar verið ofveiddir. Svo mjög að sér­fræð­ingar hafa ótt­ast að sumar fisk­teg­undir gætu bein­línis horfið úr sjónum á þessum svæðum. Erfitt hefur reynst að draga úr veiðum og því jafn­vel haldið fram að sér­fræð­ing­arnir „mál­uðu skratt­ann á vegg­inn“, ástandið væri fjarri því að vera jafn slæmt og þeir héldu fram. Þessar raddir eru að mestu leyti þagn­aðar og öllum ljóst að skyn­sam­leg nýt­ing er nauð­syn­leg til að tryggja að stofn­arnir þurrk­ist ekki út. Meðal þeirra teg­unda sem árum saman var ofveiddur í Norð­ur­sjó og Skagerrak er þorsk­ur­inn.

Fyrir nokkrum dögum var til­kynnt að þorsk­kvóti Dana í Norð­ur­sjó yrði á næsta ári skor­inn niður um 35 pró­sent og í Skagerrak um 47 pró­sent. Danski sjáv­ar­út­vegs­ráð­herr­ann sagði, þegar þessi ákvörðun var kynnt, að vissu­lega væri þetta mik­ill nið­ur­skurður en jafn­framt nauð­syn­legur til að bjarga stofn­inum. Á móti kæmi aukn­ing í mörgum öðrum teg­undum. Tals­maður dönsku sjó­manna­sam­tak­anna sagði að þótt sjó­mönnum þætti aldrei gott að veiða minna yrði að horfa til fram­tíðar. „Stóra áhyggju­efni okkar sjó­manna er hins­vegar þetta Brexit.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár