Bjarni segir spurningar Brynjars eðlilegar og gildar

Fjár­mála­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins varar „mjög alvar­lega“ við því að þeir sem spyrji áleit­inna spurn­inga um sótt­varna­að­gerðir séu slegnir niður.

Bjarni Bendiktsson, fjármálaráðherra.
Bjarni Bendikts­son, fjár­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra segir að rík­is­stjórnin hafi staðið mjög þétt saman um til­lögur til sótt­varna í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum. „Eftir því sem að þetta ástand varir lengur þá koma upp fleiri spurn­ingar,“ sagði hann í Kast­ljósi á RÚV í kvöld, spurður um ummæli bæði Brynjars Níels­sonar og Sigríðar Andersen, þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem gagn­rýnt hafa aðgerðir yfir­valda og telja þær ganga of langt.

„Ég er þeirrar skoð­unar að það sé verið að hreyfa mjög eðli­legum sjón­ar­miðum og ég vil vara mjög alvar­lega við því að menn sem velta upp mjög áleitnum spurn­ingum um þessar sótt­varna­ráð­staf­anir séu slegnir niður.“

[adspot]

Hann sagð­ist ánægður með að innan hans flokks heyrð­ust raddir um að stjórn­völd geti ekki gripið inn í líf fólks án þess að fyrir því séu skýrar heim­ildir enda stæði end­ur­skoðun sótt­varna­laga fyrir dyrum. Sagði Bjarni „ekk­ert óeðli­legt“ að gráar línur væru til staðar þegar flóknar sótt­varna­ráð­staf­anir væru ann­ars vegar.

[links]Hann sagð­ist t.d. geta farið til hnykkj­ar­ans síns en hann mætti ekki fara í klipp­ingu. „Þeir sem að segja að þeir sem spyrji spurn­inga um þessa gráu línu séu ein­hvern veg­inn að grafa undan sam­stöð­unni í land­inu – þeir eru að ganga of langt.“

Brynjar hefur sagt að hann sé að missa þol­in­mæð­ina gagn­vart sótt­varna­að­gerðum og að hann sé hættur með­virkni hvað þetta varðar. Bjarni sagði Brynjar verða sjálfan að tala fyrir sínum skoð­unum. „En ég held að hann hafi hins vegar verið að hreyfa mjög gildum spurn­ingum um það hversu langt er hægt að ganga í sótt­varna­ráð­stöf­unum miðað við það ástand sem þú ert að glíma við.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár