Niðurstöður úr mótefnamælingum senn birtar og ýmsar afléttingar framundan

„Það er greini­legt að fólk er orðið mjög frjáls­legt í fasi og fram­komu hvað varðar sýk­ing­ar­varnir,“ segir sótt­varna­læknir. Hand­þvott­ur­inn mikli er enn í fullu gildi.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Lögreglan

Nið­ur­stöður úr mótefna­mæl­ingum, sem fjöl­margir Íslend­ingar hafa farið í síð­ustu vikur, verða von­andi birtar hverjum og einum á næstu 1-2 vikum. Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir sagði frá því á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra í dag að margir biðu óþreyju­fullir eftir nið­ur­stöð­unum en að málið hefði taf­ist hjá Íslenskri erfða­grein­ingu einkum vegna vinn­unnar við skimun á landa­mærum sem hófst þann 15. júní.

Mótefna­mæl­ingar eru einnig gerðar meðal ferða­manna sem hingað koma og grein­ast með veiruna. Þórólfur benti á fund­inum á að þeir væru ýmist með nýja sýk­ingu eða gamla. „Ný sýk­ing þýðir að við­kom­andi er smit­andi en gömul að við­kom­andi hefur fengið sýk­ingu fyrir vikum eða mán­uðum en leyfar af veirunni finn­ast ennþá hjá ein­stak­lingnum en hann er þá með mótefni og því ekki smit­andi,“ sagði Þórólfur.

Einnig stendur til að sögn Þórólfs að útbúa vott­orð sem fólk sem hefur fengið sjúk­dóm­inn og hefur mælst með mótefni geti nálg­ast í gegnum Heilsu­veru.is.

[adspot]

Rúmlega tíu þús­und far­þegar hafa komið til lands­ins síðan að skimun við landa­mæri hófst fyrir rúmri viku. Þrettán hafa greinst með veiruna en aðeins tveir með virk smit. Aðrir hafa verið með gam­alt smit og því ekki smit­andi. Þá sagði hann ekk­ert inn­an­lands­smit hafa greinst frá ferða­mönnum. „Við getum verið ánægð með þá stöðu.“

[links]Þórólfur sagði að núver­andi fyr­ir­komu­lag hefði því reynst vel hingað til og gæfi inn­sýn í þá smit­hættu sem er fyrir hendi. Sagðist hann ætla að mæl­ast til þess við ráð­herra að skimanir á land­mærum haldi áfram – að minnsta kosti út júlí til að sjá betur í hverju áhættan er fólgin. Í kjöl­farið verður hugs­an­lega hægt að breyta um áherslur í skimun­inni en að það sé ekki tíma­bært að sinni.

Síðasta skref í aflétt­ingum sam­komu­tak­mark­ana var tekið þann 15. Júní og leggur Þórólfur til að það næsta verði tekið fjórum vikum síðar eða þann 13. Júlí. Mun hann þá leggja til að í stað 500 megi 2.000 manns koma saman. Hingað til hafa skrefin verið tekin með um þriggja vikna milli­bili en Þórólfur segir að nú sé „svo margt í gangi“, ferða­menn farnir að koma og fleira og því borgi sig að fara aðeins hægar í sak­irnar.

Vín­veit­inga­stöðum er enn gert að loka klukkan 23 og sagði Þórólfur nú til skoð­unar að rýmka þann tíma. Verður það aug­lýst síðar.

Á fund­inum sagði Páll Þór­halls­son, verk­efna­stjóri í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu, að kostn­aður við landamæra­skimun væri „örugg­lega mik­ill“ en að ávinn­ing­ur­inn væri það sömu leiðis. Hann sagði vinnu í gangi í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu við að leggja mat á kostn­að­inn svo hægt verði að byggja undir ákvörðun um gjald­töku við skimun sem stefnt er að að hefj­ist um mán­aða­mótin. „Eitt af því sem aug­ljós­lega hefur áhrif er að því fleiri sýni sem verða tekin því minni verður kostn­að­ur­inn á hvert sýni.“

Þórólfur ítrek­aði á fund­inum að áfram væri nauð­syn­legt að ástunda per­sónu­bundnar sótt­varnir eins og hand­þvott. „Það er greini­legt að fólk er orðið mjög frjáls­legt í fasi og fram­komu hvað varðar sýk­ing­ar­varnir og ég vil hvetja alla til að gæta að sér og passa sig því það er það sem skilar okkur mestum árangri.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár