Eignarhaldsfélagið sem keypti íbúð Illuga Gunnarssonar menntamálaráðherra af honum í árslok 2013 skuldar Hauki Harðarsyni, stjórnarformanni Artic Green Energy sem áður hét Orka Energy, tæplega 50 milljónir króna. Svo virðist því sem Haukur hafi lánað félaginu, OC Capital, fjármuni til að kaupa íbúðina af Illuga eða þá að minnsta kosti tekið yfir þessar skuldir á síðasta ári. Nær allar skuldir OG Capital eru nú við Hauk Harðarson. Þetta kemur fram í ársreikningi OG Capital sem skilað var til ársreikningaskrár Ríkisskattstjóra þann 30. september síðastliðinn.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.




















































Athugasemdir