Tvö ár frá kosningum: Vinstri græn tapað miklu fylgi en Viðreisn og Samfylking græða

Í dag eru nákvæm­lega tvö ár frá því að kosið var síð­ast til Alþingis. Á þeim tíma sem liðin er hafa fjórir flokkar á þingi tapað fylgi, en fjórir bætt við sig.

Úr kappræðum í sjónvarpssal RÚV fyrir síðustu þingskosningar.
Úr kapp­ræðum í sjón­varps­sal RÚV fyrir síð­ustu þing­s­kosn­ingar. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Í dag eru liðin nákvæm­lega tvö ár frá því að síð­ustu kosn­ingar til Alþingis fóru fram, en þær voru 28. októ­ber 2017.

Kosn­ing­arnar voru aðrar kosn­ing­arnar sem haldnar voru á einu ári, en til þeirra beggja var boðað í kjöl­far hneyksl­is­mála. Fyrst vegna Panama­skjal­anna 2016 og síðan vegna Uppreist-æru máls­ins og meintrar leynd­ar­hyggju þáver­andi dóms­mála­ráð­herra og for­sæt­is­ráð­herra vegna þess.

Í kjöl­far þeirra var mynduð mjög óvenju­leg rík­is­stjórn Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks undir for­sæti Katrínar Jak­obs­dóttur, sem varð um leið önnur konan í Íslands­sög­unni til að gegna emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra.

Rík­is­stjórnin er óvenju­leg vegna þess að hún er mynduð frá vinstri, yfir miðju og til hægri og sam­anstendur af flokkum, sér­stak­lega Vinstri grænum og Sjálf­stæð­is­flokki, sem ekki er sýni­legt á stefnu­skrám að eigi mikið sam­eig­in­legt. Aðstæður þóttu hins vegar kalla á stöð­ug­leika í stjórn­mála­á­stand­inu, að mati þeirra sem komu rík­is­stjórn­inni á kopp­inn, í ljósi þess að rík­is­stjórn hefur ekki klárað kjör­tíma­bil með meiri­hluta á þingi frá því að rík­is­stjórn undir for­sæti Geirs H. Haarde gerði það vorið 2007. Það kjör­tíma­bil voru for­sæt­is­ráð­herr­arnir samt sem áður þrír, því auk Geirs leiddu Davíð Oddsson og Halldór Ásgríms­son rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks um tíma.

Stuðningur við ríkisstjórnina minnkað um rúman þriðjung

Í verki hefur rík­is­stjórnin verið nokkuð íhalds­söm, sér­stak­lega þegar kemur að kerf­is­breyt­ingum, sem hafa ekki verið miklar. Efna­hags­að­stæður hafa hins vegar verið góðar sem hafa gerð það að verkum að rík­is­stjórnin hefur getað aukið fram­lög til helstu mála­flokka umtals­vert án þess að ráð­ast í neinar grund­vall­ar­breyt­ingar á kerfum stjórn­kerf­is­ins.

[adspot]Til að byrja með mæld­ist mik­ill með­byr með rík­is­stjórn­inni. Í könnun MMR í des­em­ber 2017 sögð­ust 66,7 lands­manna styðja nýju rík­is­stjórn­ina. Það var umtals­vert meiri stuðn­ingur en nokkur rík­is­stjórn hefur mælst með eftir hrun.

Fljótt tók þó að fjara undan þeim stuðn­ingi og hann hefur ekki mælst yfir 50 pró­sent frá því um miðjan júní 2018. Í síð­ustu könnun MMR, sem sýndi stuðn­ing­inn seinni hluta októ­ber og var birt síð­ast­lið­inn föstu­dag, kom fram að 42,2 pró­sent lands­manna styddi rík­is­stjórn­ina. Um 37 pró­sent af stuðn­ingi hennar, rúmur þriðj­ungur, er horf­inn.

Hún hefur þurft að takast á við nokkur flókin mál­efni. Vandi flug­fé­lags­ins WOW air, sem end­aði í gjald­þroti í lok mars, og loðnu­brestur höfðu þau áhrif að búist er við sam­drætti í hag­kerf­inu á árinu 2019. Það breytir því þó ekki að fyr­ir­liggj­andi fjár­laga­frum­varp fyrir næsta ár er mesta eyðslu­frum­varp sög­unnar og búist er við því að útgjöld rík­is­ins fari yfir eitt þús­und millj­arða króna. Á meðal þess sem þar verður fjár­magnað eru miklar fjár­fest­ingar í inn­viða­upp­bygg­ingu, meðal ann­ars sam­göngu­úr­bótum.

Rík­is­stjórnin þurfti einnig að takast á við krefj­andi kjara­deilur þar sem ný, hér­ská og rót­tæk verka­lýðs­for­ysta lét mikið til sín taka. Það tókst að landa kjara­samn­ingum við stærstan hluta vinnu­mark­að­ar­ins í byrjun apríl, í skugga gjald­þrots WOW air, með mik­illi aðkomu rík­is­valds­ins sem lof­aði marg­hátt­uðum aðgerðum til að liðka fyrir kjara­samn­ings­gerð­inni. Sá aðgerð­ar­pakki fékk nafnið lífs­kjara­samn­ing­arnir.

Rík­is­stjórnin stóð líka frammi fyrir því að Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu komst að þeirri nið­ur­stöðu að dóms­mála­ráð­herra hennar, Sigríður Á. Andersen, hefði skipað fjóra dóm­­­ara af þeim 15 sem voru upp­­haf­­lega skip­aðir í Lands­rétt með ólög­­­mætum hætti. Sig­ríður þurfti að segja af sér emb­ætti dóms­­­mála­ráð­herra vegna máls­ins.

Þá hafa verið vær­ingar vegna akst­urs­greiðslna þing­manna, Klaust­ur­máls­ins svo­kall­aða og svo auð­vitað hinar lang­dregnu umræður um þriðja orku­pakk­ann, urðu mál­þófi Mið­flokks­ins að bráð.

Vinstri græn og Sjálfstæðisflokkur tapað mestu

En hvaða áhrif hefur þróun stjórn­mál­anna haft á fylgi flokk­anna á þingi? Eins og er mæl­ast fjórir flokkar með meira fylgi en þeir fengu í síð­ustu kosn­ingum, sem fóru fram fyrir nákvæm­lega tveimur árum í dag, sam­kvæmt síð­ustu könnun MMR.Allir stjórn­ar­flokk­arnir þrír hafa tapað fylgi frá haust­kosn­ing­unum 2017. Mest hafa Vinstri græn, flokkur for­sæt­is­ráð­herr­ans Katrínar Jak­obs­dóttur, tapað. Flokk­ur­inn fékk 16,9 pró­sent í síð­ustu kosn­ingum og var þá næst stærsti flokkur lands­ins en mælist nú með 9,7 pró­sent fylgi. Það er ein­ungis í annað sinn á kjör­tíma­bil­inu sem fylgi flokks­ins hefur farið fyrir neðan tveggja stafa tölu. Alls hefur um 43 pró­sent af fylgi Vinstri grænna horfið á þessum tveimur árum sem liðin frá síð­ustu kosn­ingum. Flokk­ur­inn myndi fara frá því, ef kosið yrði í dag, að vera næst stærsti flokkur lands­ins í að vera sá sjötti stærsti.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur líka tapað umtals­verðu fylgi. Hann fékk 25,2 pró­sent haustið 2017 en mælist nú með 21,1 pró­sent fylgi, sem er þó meira en und­an­farna mán­uði þegar fylgið hefur verið undir 20 pró­sentu­stigum. Alls hafa því 4,1 pró­sentu­stig yfir­gefið Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Ef kosið yrði í dag, og nið­ur­staða nýj­ustu könn­unar MMR yrði það sem kæmi upp úr kjör­köss­unum, þá myndi vera um að ræða verstu kosn­inga­nið­ur­stöður flokks­ins í sögu hans. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn myndi samt sem áður vera stærsti flokkur lands­ins.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er sá stjórn­ar­flokkur sem heldur helst sínu. Flokk­ur­inn fékk 10,7 pró­sent í kosn­ing­unum 2017 en mælist nú með slétt tíu pró­sent.

[adspot]Eini stjórn­ar­and­stöðu­flokk­ur­inn sem mælist með minna fylgi en hann fékk í síð­ustu kosn­ing­unum eru Píratar, þótt ekki muni miklu og breyt­ingin sé langt innan skekkju­marka. Fylgi flokks­ins mælist nú 8,9 pró­sent en Píratar fengu 9,2 pró­sent síð­ast þegar kosið var.

Fjórir flokkar bætt við sig

Sá flokkur sem hefur bætt við sig mestu fylgi það sem af er kjör­tíma­bili er Viðreisn. Flokk­ur­inn fékk 6,7 pró­sent atkvæða í októ­ber 2017 en mælist nú með slétt tíu pró­sent stuðn­ing. Fylgið hefur því auk­ist um 3,3 pró­sentu­stig, eða 49 pró­sent.

Fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar hefur lika auk­ist umtals­vert, eða úr 12,1 í 15,3 pró­sent. Fylg­is­aukn­ingin er því upp á 3,2 pró­sentu­stig, eða 26,4 pró­sent. Sá flokkur mælist nú sá næst stærsti á land­inu og hefur haldið þeirri stöðu þorra kjör­tíma­bils­ins sam­kvæmt könn­unum.

Mið­flokk­ur­inn hefur líka náð að auka fylgi sitt ágæt­lega og mælist nú með 13,5 pró­senta stuðn­ing, en fékk 10,9 pró­sent atkvæða 2017. Það er aukn­ing upp á 2,6 pró­sentu­stig eða tæp 24 pró­sent. Þá rauk Flokkur fólks­ins upp í síð­ustu könnun MMR og mæld­ist með átta pró­sent fylgi. Það er 1,1 pró­sentu­stigi meira en flokkur Ingu Sæland fékk árið 2017, sem þýðir aukn­ingu upp á 16 pró­sent.

Þá er kom­inn fram á sjón­ar­sviðið Sós­í­alista­flokkur Íslands. Eins og staðan er í dag segj­ast 2,9 pró­sent kjós­enda styðja hann, sem myndi þó ekki duga inn á þing. Auk þess segja 0,9 pró­sent kjós­enda að þeir myndu kjósa annað en ofan­greinda níu flokka, og því myndu 3,5 pró­sent atkvæða falla niður dauð. Fyrir tveimur árum síðan var hlut­fall þeirra sem kusu aðra flokka en þá sem náðu inn 1,5 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár