109 virk smit – 914 í sóttkví

Sautján ný inn­an­lands­smit af kór­ónu­veirunni greindust hér á landi í gær og þrjú í landamæra­skimun. 109 manns eru nú með COVID-19 og í ein­angrun.

Fjöldi þeirra sem greinst hefur með virkt smit af kór­ónu­veirunni hér á landi síð­ustu daga er nú orð­inn 109 sam­kvæmt því sem fram kemur á vefnum COVID.is. Slíkur fjöldi hefur ekki verið með COVID-19 frá því í lok apríl. 

Sautján ný til­felli greindust inn­an­lands í gær, 13 hjá sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­al­ans og 4 í skimun Íslenskrar erfða­grein­ingar. Þá greindust þrjú smit í landamæra­skimun. Í gær voru 795 manns í sótt­kví en í dag er fjöld­inn kom­inn í 914. Enginn liggur þó á sjúkra­húsi vegna sjúk­dóms­ins.

Frá því að fyrsta smitið var greint hér á landi í lok febr­úar hafa 1952 manns greinst með COVID-19.

Sú breyt­ing hefur orðið á skimun Íslenskrar erfða­grein­ingar að und­an­farið hefur hún verið að skima meðal fólks sem teng­ist þeim sem þegar hafa greinst með veiruna.

Lög­reglan í Vest­manna­eyjum greindi frá því i morgun að ein­stak­lingar sem voru gest­kom­andi í Vest­manna­eyjum um versl­un­ar­manna­helg­ina hefðu greinst með stað­fest smit af COVID-19. Smitrakn­ing­arteymi almanna­varna rekur nú ferðir þeirra. 48 ein­stak­lingar sem eru búsettir í Vest­manna­eyjum eru þegar komnir í sótt­kví og er von á að þeim fjölgi þegar líða tekur á dag­inn. Enginn er í ein­angrun í Vest­manna­eyjum.

Veikindin ekki mjög alvarleg

Sótt­varna­læknir hefur sagt að veik­indi þeirra sem nú eru sýktir séu ekki mjög alvar­leg en hefur sam­tímis minnt á að það kunni að breyt­ast. Mögulega sé verið að greina fólk fyrr núna en í fyrstu bylgju far­ald­urs­ins í vetur. Þá sé yngra fólk að grein­ast í meira mæli núna en þá.

Á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna og land­læknis í fyrra­dag bar hann saman fjölda til­fella fyrstu daga fyrstu bylgj­unnar og fyrstu daga þeirra bylgju sem nú gengur yfir. Sagði hann þær mjög svip­aðar.

Tvö afbrigði af veirunni eru að valda sýk­ingum nú. Í annarri sýk­ing­unni hefur ekki tek­ist að rekja smit til upp­runans og það afbrigði veirunnar hefur nú skotið sér niður í öllum lands­hlutum. Ekki hefur heldur tek­ist að tengja alla þá sem sýkst hafa.

[links]Þjóðin má gera ráð fyrir því að við­hafa þurfi sótt­varna­ráð­staf­anir á borð við tveggja metra reglu næstu vikur og mán­uði. „Ég held að það sé algjör­lega ljóst að ef við ætlum að halda veirunni hér í lág­marki þá munum við á næstu vikum og mán­uðum sjá hóp­sýk­ingar sem við munum þurfa að eiga við,“ sagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir á upp­lýs­inga­fund­inum í gær. „Við munum þurfa sífellt að herða og slaka á þessum reglum – ef við ætlum að koma í veg fyrir útbreiddan far­aldur inn­an­lands. Þannig að við verðum að vera undir það búin að horfa upp á þetta næstu mán­uði alla vega.“

Alma Möller land­læknir minnti á mik­il­vægi þess að koma upp­lýs­ingum um far­ald­ur­inn til ungs fólks sem væri meiri­hluti þeirra sem hefðu smit­ast síð­ustu daga. „Tæki­færið er núna til að kveða niður það smit sem er í gangi. Þannig að við verðum að taka okkur á í ein­stak­lings­bundnum smit­vörnum, tveggja metra regl­unni og þessum aðgerðum sem við höfum sett á. Við bara verðum að fylgja því.“

Hún ítrek­aði hins vegar fyrr í vik­unni að við værum í miklu betri stöðu núna en í vetur til að sinna þeim sem veikj­ast. „Covid-göngu­deildin heldur vel utan um alla og ef að fólk þarf inn­lögn þá búa læknar og annað heil­brigð­is­starfs­fólk yfir nauð­syn­legri þekk­ingu, reynslu, lyfjum og tækja­bún­aði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár