Sjálfstæðisflokkurinn verður að laga sig að Birgi

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, segir að áhuga­vert verði að fylgj­ast með póli­tískum afleið­ingum vista­skipta Birgis Þór­ar­ins­sonar, ekki síst þar sem Birgir hafi iðu­lega gagn­rýnt Sjálf­stæði­flokk­inn.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Birgir Þór­ar­ins­son sagði Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni, for­manni Mið­flokks­ins, frá ákvörðun sinni að ganga til liðs við Sjálf­stæð­is­flokk­inn fyrir utan hús­næði Útvarps sögu eftir við­tal sem þing­menn­irnir veittu þar eftir kosn­ingar. Í fram­hald­inu fóru þeir í bíltúr þar sem ákvörð­unin var rædd frekar og von­að­ist Sig­mundur til þess að Birgir myndi end­ur­skoða ákvörðun sína.

Sig­mundur fór yfir brott­hvarf Birgis úr Mið­flokknum á Sprengisandi á Bylgj­unni í morgun og sagði hann Birgi hafa siglt undir fölsku flaggi í kosn­inga­bar­átt­unni. „Menn þurfa auð­vitað að geta treyst því að fram­bjóð­endur séu ekki að sigla undir fölsku flaggi og séu raun­veru­lega hluti af þeim flokki sem við­kom­andi kjós­andi veitir atkvæði sitt og treysti fyrir atkvæði sínu,“ sagði Sig­mundur.

Hann sagði eðli­legt að upp komi póli­tískur ágrein­ingur og að fólk fari á milli flokka í kjöl­far þess. „En það á aug­ljós­lega ekki við í þessu til­viki, það var ekki einu sinni búið að ná að halda þing­flokks­fund. Það er ekki góð fram­koma gagn­vart kjós­endum,“ sagði Sig­mundur, sem bað flokks­menn afsök­unar. Þá bað hann einnig kjós­endur flokks­ins afsök­unar, sem ætl­uðu sé ekki að verja atkvæði sínu í að fjölga þing­mönnum Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

[adspot]„Lýðræði virkar ekki nema í fyrsta lagi ef stjórn­mála­menn ætli sér að standa við sem þeir lofa og gefi kjós­endum þannig raun­veru­legt val. En það virkar ekki heldur aug­ljós­lega ef að menn fá eitt­hvað allt annað heldur en þeir kjósa, þetta er bara svo skrýtið allt saman,“ sagði Sig­mundur.

Vonar að kosningarnar verði endurteknar

[links]Áhuga­vert verður, að mati Sig­mundar, að fylgj­ast með póli­tískum afleið­ingum vista­skipta Birgis, ekki síst þar sem Birgir hafi iðu­lega gagn­rýnt Sjálf­stæð­is­flokk­inn. „Stundum þótti manni nóg um jafn­vel hvernig hann tal­aði í þing­ræðum í garð þess flokks og ann­arra. En allt í einu núna þá er breytt við­horf til Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem hlýtur að þýða að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn ætli ein­hvern veg­inn að laga sig að Birgi Þór­ar­ins­syni.“

Sig­mundur sagð­ist einnig vona að kosn­ing­arnar verði end­ur­teknar og öllum vafa þannig eytt. „Þá getur Birgir gefið kost á sér í próf­kjöri hjá Sjálf­stæð­is­flokknum í Suð­ur­kjör­dæmi.“

Í grein sinni í Morg­un­blað­inu í gær þar sem Birgir greindi frá ákvörðun sinni full­yrti hann að Erna Bjarna­dóttir, fyrsti vara­þing­maður flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi, styddi ákvörð­un­ina. Sig­mundur virt­ist ekki sann­færður. „Það þætti mér reyndar býsna sér­stakt miðað við póli­tíska stöðu Ernu Bjarna­dóttur til þessa, og afstöðu til Sjálf­stæð­is­flokks­ins. En það ger­ist margt skrýtið í póli­tík­inni þessa dag­ana.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár