Bóluefnið ekki „töfralausn“ – dauðsföll vegna COVID komin yfir 1,5 milljónir

Brýnt er að allir haldi vöku sinni áfram næstu vikur og mán­uði. Bóluefni gegn COVID-19 er vænt­an­legt en það mun engan veg­inn útrýma öllum þeim vanda­málum sem far­ald­ur­inn hefur skapað.

Ítrustu varúðar gætt við greftrun manneskju sem lést vegna COVID-19 í Indónesíu. Hálf milljón Indónesa hafa greinst með veiruna.
Ítrustu var­úðar gætt við greftrun mann­eskju sem lést vegna COVID-19 í Indónesíu. Hálf milljón Indónesa hafa greinst með veiruna. Mynd: EPA

Yfir ein og hálf milljón manna hefur lát­ist vegna COVID-19. Þriðj­ungur dauðs­fall­anna hefur orðið á síð­ustu tveimur mán­uðum. Hvort sem bylgjan er kölluð önnur, þriðja eða fjórða, eftir því hvar fæti er drepið niður á jörð­inni, er ljóst að víða er far­ald­ur­inn síst á und­an­haldi. Dæmi um það er Ísland. Í 3. bylgj­unni, sem hófst um miðjan sept­em­ber, hafa 17 lát­ist en dauðs­föllin voru tíu í þeirri fyrstu. Þá hafa yfir 3.500 greinst með kór­ónu­veiruna í þess­ari bylgju miðað við rúm­lega 1.800 í þeirri fyrstu.

Tæplega 65 millj­ónir jarð­ar­búa hafa greinst með veiruna frá upp­hafi far­ald­urs­ins og síð­ustu viku hafa yfir tíu þús­und týnd lífi vegna hennar á hverjum ein­asta degi.

Vissu­lega hefur ákveðin bjart­sýni ríkt síð­ustu vikur vegna góðra frétta af þróun bólu­efnis. Vonast er til þess að hægt verði að hefja bólu­setn­ingu í Bret­landi, svo dæmi sé tekið, á næstu dögum. Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir hefur þó varað við of miklum vænt­ingum og sagði í gær að ekki væri hægt að ganga að því vísu að bólu­setn­ing hefj­ist hér a landi fljót­lega eftir ára­mót. Hann hvetur til „raun­hæfrar bjart­sýni“ og segir að „jákvæðar fréttir“ af bólu­efni megi ekki leiða til þess að lands­menn passi sig ekki í sótt­vörnum.

[adspot]

Þessi var­úð­ar­orð eru ekki sögð að ástæðu­lausu. Og þau berg­mála þessa dag­ana víða um heim. Á meðan þús­undir deyja dag­lega vegna sjúk­dóms­ins sem kór­ónu­veiran veldur þurfa allir að gæta sín: Bjart­sýnin má ekki gera illt verra.

Fram­kvæmda­stjóri Sam­ein­uðu þjóð­anna, Antonio Guterres, sagði í gær að þó að það stytt­ist í að bólu­efni verði til­búið gæti heims­byggðin átt eftir að fást við afleið­ingar COVID-19 far­ald­urs­ins í ára­tugi. Hann hrós­aði vís­inda­mönnum fyrir fram­lag sitt en minnti á að bólu­efnið væri ekki „töfra­lausn“ við öllum vanda­málum sem við stæðum nú frammi fyrir.

[links]„Við skulum ekki blekkja sjálf okkur,“ sagði hann, „bólu­efni getur ekki læknað þau mein sem hafa mynd­ast og gætu átt eftir að vera við­var­andi í mörg ár – jafn­vel ára­tugi. Alvarleg fátækt er að aukast og hung­ursneyð vofir yfir. Við stöndum frammi fyrir mestu alheimskreppu síð­ustu átta ára­tuga.“

Guterres sagði algjört lyk­il­at­riði að ekki væri slakað á í bar­átt­unni gegn far­aldr­inum núna þó að bólu­efni væri handan við hornið. „Þegar lönd fara í sitt hvora átt­ina mun veiran fara í allar áttir.“

Margar þjóðir, m.a. Íslend­ingar, þurfa nú að hlíta ströngum tak­mörk­unum vegna far­ald­urs­ins. Til stóð að gera til­slak­anir hér á landi en vegna fjölg­unar smita hætti sótt­varna­læknir snar­lega við að mæla með því. Gildandi aðgerðir, með tíu manna hámarks­fjölda, lokun sund­lauga, lík­ams­rækt­ar­stöðva og ann­arra tak­markanna, munu standa til að minnsta kosti 9. des­em­ber.

Útgöngu- og ferðabann

Á Ítalíu, sem varð hvað verst úti af öllum Evr­ópu­löndum í fyrstu bylgju far­ald­urs­ins, verða jólin líkt og víð­ast ann­ars staðar með öðru sniði í ár. For­sæt­is­ráð­herr­ann Giuseppe Conte til­kynnti nýjar tak­mark­anir á mið­viku­dag sem eiga að koma í veg fyrir að jóla­há­tíðin verði gróðr­ar­stía fyrir útbreiðslu smita. Aðgerð­irnar eru nokkuð strangar. Milli 21 des­em­ber og 6. jan­úar má fólk ekki ferð­ast milli svæða í land­inu og dag­ana 25. og 26. des­em­ber má það ekki ferð­ast á milli bæja og borga.

Þá er útgöngu­bann í gildi í öllu land­inu. Ekki má vera á ferli frá kl. 21 að kvöldi og til 4 að morgni.

Far­ald­ur­inn er enn skæður í Banda­ríkj­unum. Á mið­viku­dag greindust yfir 200 þús­und til­felli. Þann dag lét­ust að minnsta kosti 2.700 manns vegna COVID-19 og um 100 þús­und manns þurftu að leggj­ast inn á sjúkra­hús á einum sól­ar­hring.

Biden vill grímuskyldu

Joe Biden, verð­andi for­seti, ætlar að mæl­ast til þess að grímu­skylda verði sett á í land­inu eftir að hann tekur við emb­ætti.

Í Suður-Kóreu hefur smitum fjölgað á ný síð­ustu vikur og íhuga yfir­völd nú að herða aftur á tak­mörk­unum. Í gær greindust 629 ný til­felli sem er mesti fjöldi á einum degi frá því í í mars.

For­sæt­is­ráð­herr­ann Chung Sye-kyun segir ástandið við­kvæmt, sér­stak­lega í ljósi þess að í nóv­em­ber voru aftur teknar upp ákveðnar sótt­varna­að­gerðir að nýju. Um helg­ina mun rík­is­stjórnin ákveða hvort til­efni er til að herða þær enn frekar.

Meira en milljón ein­stak­lingar hafa greinst með COVID-19 í Íran. Yfirvöld íhuga nú að gera ákveðnar til­slak­anir á aðgerðum sem í gildi eru víða um landið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár