Yfirgefur Miðflokkinn tveimur vikum eftir að hafa verið kjörinn á þing fyrir hann

Birgir Þór­ar­ins­son hefur gengið til liðs við þing­flokk Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Hann var kjör­inn á þing fyrir Mið­flokk­inn í annað sinn 25. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Birgir segir að traust milli hans og for­ystu Mið­flokks­ins hafi brostið.

Birgir Þórarinsson, fyrrverandi þingmaður Miðflokksins.
Birgir Þór­ar­ins­son, fyrr­ver­andi þing­maður Mið­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Birgir Þór­ar­ins­son, sem kjör­inn var á þing fyrir Mið­flokk­inn fyrir tveimur vikum í Suð­ur­kjör­dæmi, hefur ákveðið að segja skilið við flokk­inn og ganga til liðs við þing­flokk Sjálf­stæð­is­flokks. Vara­maður hans í kjör­dæm­inu, Erna Bjarna­dóttir, styður ákvörð­un­ina. Birgir greinir frá þessu í grein sem hann skrifar í Morg­un­blaðið í dag.

Við þessi vista­skipti fjölgar þing­mönnum í þing­flokki Sjálf­stæð­is­flokks úr 16 í 17 og meiri­hluti sitj­andi rík­is­stjórnar fer í 38 þing­menn.

Í grein­inni í Morg­un­blað­inu segir Birgir að traust milli hans og for­ystu Mið­flokks­ins sé brostið. „Þessi staða rekur rætur sínar allt aftur til hins svo­kall­aða Klaust­ur­máls. Eins og kunn­ugt er gagn­rýndi ég málið opin­ber­lega og við­brögð þeirra sem í hlut áttu. Ég gat þess jafn­framt að ég óskaði engum þess að vera þol­andi eða ger­andi í máli sem skók þjóð­ina dögum saman og enn er minnst á í fjöl­miðlum. Að baki standa fjöl­skyldur sem hafa átt erfitt vegna máls­ins. Ég gagn­rýndi sam­flokks­menn mína sem í hlut áttu vegna þess að heil­indi við eigin sam­visku og sú ábyrgð að breyta rétt í þjón­ustu við kjós­endur er fyrsta skylda þing­manna. Eftir gagn­rýni mína á Klaust­ur­málið naut ég aldrei fulls trausts innan hóps­ins og um tíma var bein­línis litið svo á að ég væri vanda­málið.“

[adspot]Birgir segir að við upp­röðun á fram­boðs­lista Mið­flokks­ins fyrr á þessu ári hafi haf­ist skipu­lögð aðför gegn sér af hálfu áhrifa­fólks innan flokks­ins. Mikið hafi verið á sig lagt, liðs­auki kall­aður til, nýjar reglur settar og ýmsum brögðum beitt til að koma í veg fyrir að hann yrði odd­viti í Suð­ur­kjör­dæmi. „Mið­flokk­ur­inn beið afhroð í kosn­ing­unum og er í erf­iðri stöðu. Margt fór úrskeiðis í kosn­inga­bar­átt­unni og í aðdrag­anda hennar. Mikið upp­bygg­ing­ar­starf bíður for­yst­unnar og flokks­manna, en end­ur­reisnin mun aldrei takast nema full sam­staða og traust ríki milli manna. Ljóst má vera að slíkt traust ríkir ekki í minn garð eins og ég hef rakið. Það er full­reynt. Einnig skal það sagt að flokks­for­ystan hefur rofið traust mitt til hennar. [...] Minni bar­áttu ætla ég að halda áfram innan raða Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Þar er góður mál­efna­legur sam­hljómur og þar tel ég að kraftar mínir muni nýt­ast best.“

Andstætt kristilegum gildum

Eftir að Klaust­ur­málið svo­kall­aða kom upp á yfir­borðið seint á árinu 2018 sagði Birgir opin­ber­lega að fram­ferði sex­menn­ing­anna sem voru á Klaustri 20. nóv­em­ber væri and­stætt kristi­legum gild­um. Í þeim hópi voru fjórir þáver­andi þing­menn Mið­flokks­ins og tveir sem síðar gengu til liðs við flokk­inn úr Flokki fólks­ins. Þeir þing­menn Mið­flokks­ins sem tóku þátt í sam­sæt­inu á Klaustri þyrftu, að mati Birgis, að gera það upp við sig hvort þeir segðu af sér eða ekki. Þeir sögðu ekki af sér.

Birgir sagði enn fremur að ​​gera þyrfti grein­ar­mun á þeim þing­mönnum sem létu óvið­ur­kvæmi­leg orð falla um konur, sam­þing­menn og ýmsa aðra á Klaustri, og þeim sem hlust­uðu á en þögðu. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, hafi verið á meðal þeirra sem þögðu. Hann hefði, að mati Birgis, átt að grípa inn í tal hinna þing­manna flokks­ins, þeirra Gunn­ars Braga Sveins­sonar og Berg­þórs Óla­son­ar, sem ræddu meðal ann­ars með kyn­ferð­is­legum og niðr­andi hætti um Lilju Alfreðs­dótt­ur, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár