Óeðlilegt að formaður starfshóps um stöðu orkumála tali fyrir öfgafyllstu sviðsmyndinni

Þing­flokks­for­maður Vinstri grænna segir að það geti ekki talist eðli­legt að for­maður græn­bók­ar­nefnd­ar­innar tali fyrir öfga­fyllstu sviðs­mynd­inni úr skýrsl­unni. Og starfi nú fyrir fyr­ir­tæki sem hyggja á vind­virkj­anir á Vest­ur­landi.

Orri Páll Jóhannsson, þingflokksformaður Vinstri grænna.
Orri Páll Jóhanns­son, þing­flokks­for­maður Vinstri grænna. Mynd: Bára Huld Beck

Orri Páll Jóhanns­son, þing­flokks­for­maður Vinstri grænna, segir það ekki geta talist eðli­legt, undir nokkrum kring­um­stæðum, að for­maður starfs­hóps sem falið var að draga saman efni um stöðu orku­mála tali fyrir öfga­fyllstu sviðs­mynd­inni úr skýrsl­unni umfram aðrar, þá sem kallar á mesta orku­öflun.

For­mað­ur­inn sem um ræðir er Vil­hjálmur Egilsson, sem er fyrr­ver­andi rektor á Bifröst, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins og fyrr­ver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

[links]Vil­hjálmur var for­maður starfs­hóps sem umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­u­ráð­herra skip­aði í byrjun árs til að vinna svo­kall­aða græn­bók um stöðu og áskor­anir Íslands í orku­málum með vísan til áherslna og mark­miða stjórn­valda í lofts­lags­málum. Hann vinnur nú hins vegar að kynn­ing­ar­málum fyrir Vest­an­átt, sam­tök fyr­ir­tækja sem áforma vind­orku­ver á Vest­ur­landi. Í síð­ustu viku stýrði hann og hafði fram­sögu á þremur opnum fundum þar sem fyr­ir­tækin auk Norð­ur­áls kynntu áform sín. Blaða­maður Kjarnans sat einn þess­ara funda og fjall­aði um hann í grein­inni „Lukku­ridd­ar­arnir“ í bak­garð­inum í byrjun viku.

Formaður grænbókarinnar talar fyrir sviðsmyndinni „sem gengur freklegast fram“

Orri Páll vakti athygli á starfi Vil­hjálms fyrir Vest­an­átt undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í morgun.

„Í rík­is­stjórn­ar­sátt­mála segir að mik­il­vægt sé að breið sátt ríki um upp­bygg­ingu vind­orku­vera. Nú les maður og heyrir úr fjöl­miðlum að for­maður téðs starfs­hóps um stöðu­skýrslu gangi erinda fjög­urra fyr­ir­tækja sem hafa uppi stór­tæk vind­orku­á­form á Vest­ur­landi undir heit­inu Vest­an­áttin og tali fyrir þeirri sviðs­mynd úr stöðu­skýrsl­unni sem gengur frek­leg­ast fram eins og hún sé hinn eini rétti sann­leikur,“ sagði Orri Páll.

Að hans mati er Vil­hjálmur með þess­ari fram­göngu, sem for­maður starfs­hóps­ins, að gera end­an­lega að engu vinnu hans. „Það getur ekki undir nokkrum kring­um­stæðum talist eðli­legt að for­maður starfs­hóps sem falið var að draga saman efni um stöðu orku­mála tali fyrir öfga­fyllstu sviðs­mynd­inni úr skýrsl­unni umfram aðrar, þá sem kallar á mesta orku­öflun, eins og ekk­ert annað komi til greina í umræð­unni. Það liggur engan veg­inn fyrir og hefur hvergi verið tekin stefnu­mark­andi ákvörðun um það að hér þurfi að ríf­lega tvö­falda raf­orku­fram­leiðslu fyrir árið 2040,“ sagði Orri Páll.

Starfs­hóp­ur­inn, sem Vil­hjálmur fór fyrir, skil­aði til­lögum í mars. Orri Páll seg­ist hafa bundið vonir um að stöðu­skýrslan myndi skýra málið frekar og „hjálpa okkur að kom­ast lengra í átt að þeim mik­il­væga áfanga að átta okkur á hver raun­veru­leg orku­þörf okkar væri með til­liti til lofts­lags­mark­miða.“ Það hafi hins vegar ekki verið nið­ur­staðan.

Orri Páll sagði að „eðli máls­ins sam­kvæmt“ mætti sú sviðs­mynd nefnd­ar­innar sem gengur hvað lengst rétt­mætri gagn­rýni. Samkvæmt henni er gert ráð fyrir ríf­lega tvö­földun raf­orku­fram­leiðslu Íslands, 124 pró­senta aukn­ingu til árs­ins 2040.

Verin á Vesturlandi „gætu verið hluti lausnarinnar“

Á umræddum kynn­ing­ar­fundi Vest­an­áttar í síð­ustu viku var Frímann Snær Guð­munds­son, hag­fræð­ingur hjá Deloitte, meðal fram­sögu­manna. Hann kynnti úttekt um nýt­ingu vind­orku á Vest­ur­landi sem unnin var fyrir Vest­an­átt. Hann sagði 24 þús­und gíga­vatt­stundir, rúm­lega tvö­földun á núver­andi orku­fram­leiðslu Íslands, vera „gíf­ur­lega stórar tölur“ sem jafn­ist á við 5-6 Norðurál. Vind­orku­verk­efni fyr­ir­tækj­anna fjög­urra „gætu verði hluti lausn­ar­innar“.

24 þús­und gíga­vatt­stundir. Þessari tölu var ítrekað haldið á lofti á fund­inum, sér­stak­lega í máli Vil­hjálms. Að „vænt­ing­arnar“ standi til að ná svo mik­illi fram­leiðslu­aukn­ingu, líkt og það sé meit­lað í stein.

Sú er hins vegar ekki raunin. Í græn­bók­inni, sem starfs­hópur undir for­ystu Vil­hjálms vann, voru dregnar upp sex sviðs­myndir sem hver fyrir sig á að end­ur­spegla mis­mun­andi áherslur í þróun sam­fé­lags­ins og atvinnu­lífs­ins til næstu ára. Miðað við ítr­ustu for­sendur, full orku­skipti í lofti, á hafi og í sjó, er áætlað að rúm­lega tvö­falda þurfi núver­andi fram­leiðslu til árs­ins 2040 – að fram­leiða þurfi 24 þús­und GWst á ári til við­bótar. Þetta er sú sviðs­mynd sem lengst gengur og þarfn­ast flestra gíga­vatt­stunda. Þetta er reyndar nákvæm­lega sú tala sem Samorka, sam­tök orku- og veitu­fyr­ir­tækja, komst að í sínum útreikn­ingum sem lagðir voru fram í vinnu starfs­hóps­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár