Fólk á sautjánda aldursári ráðið inn á leikskólana í Reykjavík

Tillaga var sam­þykkt í borg­ar­ráði í síð­ustu viku þar sem kemur fram að ungt fólk á 17. ald­ursári verði ráðið í sum­ar­störf á leik­skólum Reykja­vík­ur­borgar.

Auglýst verða störf á leik­skóla í Reykja­vík fyrir ungt fólk á sautj­ánda ald­ursári. Þetta er liður í verk­efni á vegum borg­ar­innar til að kynna starfið fyrir ungu fólki með það að mark­miði að fjölga þeim sem velja þetta starf til fram­tíðar.

Ekki hefur verið ráð­ist í slíkt átak áður en um er að ræða 60 störf í allt. Annars vegar er um að ræða 30 störf sum­ar­liða, þ.e. 17 ára ung­menna, og hins vegar 30 störf ungs fólks sem hefur áhuga á að fara í háskóla­nám á upp­eldis- og mennt­un­ar­sviði sem eru 18 ára og eldri.

Hér er um að ræða við­bót­ar­störf sem ekki er gert ráð fyrir í fjár­hags­á­ætlun og verður kostn­að­ur­inn við til­lög­una 59 millj­ónir í heild sinni. Kostn­að­ur­inn við 30 sautján ára starfs­menn er um 24 millj­ónir. 

Í svari Reykja­vík­ur­borgar við fyr­ir­spurn Kjarnans kemur fram að áhersla verði lögð á góða mót­töku og nám­skeið fyrir hóp­inn. Segir jafn­framt í til­lög­unni að horft sé til þess að oft geri reynst erfitt fyrir þennan hóp að fá vinnu yfir sum­ar­tím­ann.

Aðgerð­irnar sem kynntar voru í borg­ar­ráði í síð­ustu viku fela í sér að gripið sé til marg­vís­legra aðgerða til að bæta vinnu­um­hverfi á leik­skólum borg­ar­inn­ar. Segir í til­kynn­ingu frá Reykja­vík­ur­borg að þær byggi á til­lögum starfs­hóps skóla- og frí­stunda­ráðs um nýliðun og bætt vinnu­um­hverfi leik­skóla­kenn­ara sem skil­aði nið­ur­stöðum í þar síð­ustu viku.

Þar sé meðal ann­ars lögð áhersla á aukið rými barna, fjölgun starfs­fólks á elstu deild­um, auk­inn und­ir­bún­ings­tíma, fjölgun leik­skóla­kenn­ara og ann­ars fag­fólks, fjár­magn til heilsu­efl­ingar og liðs­heild­ar­vinnu, aðgerðir til að efla mót­töku nýliða meðal ann­ars með leið­sagn­ar­kenn­urum og hand­leiðslu, ímynd­ar­vinnu og kynn­ingu á störfum á leik­skól­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár