Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd mun taka plastbarkamálið upp að nýju

Nefndin mun vinna með skýrslu rann­sókn­ar­nefndar sem for­stjóri Land­spít­ala og rektor Háskóla Íslands skip­uðu og skoða nið­ur­stöður hennar og kanna hvort það sem hefur verið gert af hálfu Land­spít­ala og HÍ sé í sam­ræmi við nið­ur­stöður skýrsl­unnar.

Plastbarki
Plast­barki Mynd: RÚV

Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis mun taka plast­barka­málið til skoð­unar að nýju og vinna út frá nið­ur­stöðum Rann­sókn­ar­skýrsl­unnar. Þetta segir Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og nefnd­ar­maður í sam­tali við Kjarnann.

[links]„Við munum vinna með skýrslu rann­sókn­ar­nefndar sem for­stjóri Land­spít­ala og rektor Háskóla Íslands skip­uðu og skoða nið­ur­stöður hennar, spyrja nánar um helstu nið­ur­stöður og kanna hvort það sem hefur verið gert af hálfu Land­spít­ala og Háskóla Íslands sé í sam­ræmi við nið­ur­stöður skýrsl­unnar. Í þessu sam­bandi verður litið til sam­bæri­legra stofn­ana erlendis með til­liti til þessa,“ segir Brynjar og bætir við að kannað verði hvaða svig­rúm lögin gefa til að bregð­ast við nið­ur­stöðum skýrsl­unnar.

Ekkjan hefur leitað til íslenskra lögfræðinga

Í sam­tali við Önnu Sigrúnu Bald­urs­dóttur, aðstoð­ar­mann for­stjóra Land­spít­ala, kemur fram að íslensk lög­fræði­stofa hafi nú tekið að sér mál Merhawit Bar­ya­mik­ael Tes­faslase, ekkju Andemari­ams Beyene, sem fyrstur manna gekkst undir ígræðslu plast­barka, en Anna Sigrún upp­lýstir að Land­spít­al­inn hafi verið í sam­bandi við sænskan lög­fræð­ing sem Merhawit hefur haft í Svíþjóð.

Sjálf segir Merhawit að hún hafi lítið heyrt frá þessum lög­fræð­ingi og ekk­ert er varði Land­spít­al­ann eða Karol­inska-háskóla­sjúkra­húsið þegar hún var innt eftir svari við þessu. Lög­fræð­ingar Merhawit hér á landi eru Sigurður G. Guð­jóns­son og Gestur Gunn­ars­son en þeir segj­ast ekki geta tjáð sig um málið að svo stöddu.

Þá barst svar frá Halldóru Við­ars­dóttur, aðstoð­ar­manni land­læknis, um eft­ir­lits­skyldu Emb­ætt­is­ins í plast­barka­mál­inu. Í því segir að Embætti land­læknis sé stjórn­vald og starfi sam­kvæmt lögum um land­lækni og lýð­heilsu nr. 41/2007. „Land­læknir hefur haft til með­ferðar eft­ir­lits­mál sam­kvæmt fram­an­greindum lögum vegna plast­barka­máls­ins og er það enn í vinnslu. Embættið stígur hins vegar ekki inn í fjöl­miðlaum­fjöllun um þau mál sem það hefur til með­ferðar enda sam­ræm­ist slíkt ekki hlut­verki emb­ætt­is­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár