Plastbarkamálið verður að gera upp

Sér­fræð­ingar segja að vís­indin hafi ekki verið til staðar til að gera plast­barka­ígræðslu­að­gerðir á fólki. Einungis Háskóli Íslands og Land­spít­ali hafa gert könnun á því sem fór úrskeiðis í sínum stofn­unum.

Ástríður Stef­áns­dóttir, læknir og dós­ent í heim­speki, segir plast­barka­málið svo­kall­aða fjöl­þjóð­legt hneyksl­is­mál sem varði sjúk­ling í umsjá íslensks heil­brigð­is­kerfis og það verði að fara ítar­lega yfir málið og gera það upp. „Það eru þræðir sem munu elta okkur í þessu máli, líkt og í Guð­mundar- og Geir­finns­mál­inu. Það er mik­il­vægt að fjallað sé um það og farið yfir hvað átti sér stað, hvernig allt ferlið var, hvort farið að reglum og lögum á Land­spít­ala og í Háskóla Íslands, en einnig hvort farið var að lögum um heil­brigð­is­starfs­menn og hvort siða­reglur lækna voru virtar.“

Plast­barka­málið svo­kall­aða á rætur að rekja til þess að árið 2011 var gervi­barki var græddur í sjúk­ling, Andemariam Beyene, sem þá var í umsjá íslensks heil­brigð­is­kerfis. Aðgerðin var sú fyrsta sinnar teg­undar í heim­inum og vakti að vonum mikla athygli. Hún var gerð af skurð­læknateymi á Karol­inska-háskóla­sjúkra­hús­inu, sem var leitt af ítölskum pró­fessor þar, Paolo Macchiarini. Með­ferð­ar­læknir Beyenes hér á landi var Tómas Guð­bjarts­son, yfir­læknir á Land­spít­ala og pró­fessor við Háskóla Íslands, og tók hann þátt í aðgerð­inni. Fimm mán­uðum eftir til­rauna­að­gerð­ina birt­ist grein í breska lækn­is­fræði­tíma­rit­inu Lancet þar sem aðgerð­inni og ástandi sjúk­lings­ins var lýst. Tveir íslenskir læknar, Tómas Guð­bjarts­son og Óskar Ein­ars­son, voru með­höf­undar að henni. Andemariam Beyene lést 30 mán­uðum eftir aðgerð­ina. Sex aðrir sjúk­lingar sem Macchiarni græddi í plast­barka eru einnig látnir.

Ekki allt með felldu í störfum Macchiarinis

Þremur árum eftir til­rauna­að­gerðin á Beyene stigu fram fjórir læknar og lýstu þeirri skoðun sinni í bréfi til þáver­andi rekt­ors Karol­inska-stofn­un­ar­innar að ekki væri allt með felldu við störf Macchiarinis.

Karol­inska-stofn­unin fól Bengt Gerdin, pró­fessor emer­ítus við Háskól­ann í Uppölum, að rann­saka plast­barka­að­gerð­irnar og skil­aði hann skýrslu í maí 2015. Nið­ur­staða hans var að sann­leik­anum hafi verið hag­rætt á kerf­is­bund­inn hátt í vís­inda­greinum, þ.á m. Lancet-grein­inni. Þáver­andi rektor Karol­inska-stofn­un­ar­innar, Andreas Hamsten, komst hins vegar að þeirri nið­ur­stöðu í ágúst 2015 að þótt finna mætti að vissum atriðum, hefði ekki verið um vís­inda­mis­ferli að ræða. Hamsten sagði síðar af sér og var m.a. sak­aður um að hafa reynt að þagga málið niður.

Plastbarkamálið rannsakað á Íslandi

Land­spít­al­inn skoð­aði plast­barka­málið sjálf­stætt sum­arið 2015 með innri grein­ingu. Bjarni Torfason, yfir­læknir brjóst­hols­skurð­lækn­inga, óskaði eftir utan­að­kom­andi rann­sókn, jafn­vel lög­reglu­rann­sókn, á til­drögum þess að sjúk­lingur í umsjá Land­spít­ala hefði verið sendur í til­rauna­að­gerð­ina. Ákveðið var hins vegar að gera innri rann­sókn á spít­al­anum og var hún falin þeim Torfa Magn­ús­syni lækni og Elínu Haf­steins­dóttur hjúkr­un­ar­fræð­ingi. Meg­in­nið­ur­staðan var að skrá hefði þurft betur til­vísun vegna með­ferðar sjúk­lings erlendis. Ekkert var þó talið vera athuga­vert við aðkomu stofn­un­ar­innar eða lækna að mál­inu. Skýrslan var ekki gerð opin­ber á sínum tíma, en upp­lýst um nið­ur­stöður hennar í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Háskóla Íslands og Land­spít­al­ans sem sagt er frá hér síðar. Bjarni Torfason hefur ekki viljað svarað spurn­ingum blaða­manns um þetta efni. Óskar Ein­ars­son læknir hefur heldur ekki svarað spurn­ingum blaða­manns um málið.

Óháð rannsóknarnefnd skipuð

Málið komst aftur í umræðu snemma árs 2016 og af meiri þunga en áður þegar sýndir voru þættir sænska frétta­manns­ins Bosse Lindquist um plast­barka­að­gerðir Macchiarinis. Gagnrýnt var að ekki væri stofnað til óháðrar rann­sóknar á íslenska þætti máls­ins eins og t.d. má sjá má t.d. í grein sem birt­ist í Kjarn­anum.

Í sept­em­ber 2016 ákváðu Jón Atli Bene­dikts­son, rektor Háskóla Íslands, og Páll Matth­í­as­son, for­stjóri Land­spít­ala, að skipa óháða nefnd til að rann­saka plast­barka­málið. Nefnd­inni var m.a. ætlað að skoða aðkomu íslenskra lyk­il­stofn­ana að mál­inu og kanna og svara með rök­studdu áliti hvort ákvarð­anir íslenskra heil­brigð­is­starfs­manna á Land­spít­ala hefðu verið í sam­ræmi við lög, reglur og verk­ferla. Auk þess átti nefndin að rann­saka laga­legan og sið­ferði­legan grund­völl fyrir þátt­töku íslenskra lækna í ritun og birt­ingu greinar um efnið í vís­inda­tíma­rit­inu Lancet og fyrir mál­þingi sem var haldið í Háskóla Íslands sum­arið 2012 í til­efni þess að ár var liðið frá til­rauna­að­gerð­inni.

Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands. Mynd: Háskóli Íslands.
Jón Atli Bene­dikts­son, rektor Háskóla Íslands. Mynd: Háskóli Íslands.
Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans. Mynd: RÚV
Páll Matth­í­as­son, for­stjóri Land­spít­al­ans. Mynd: RÚV

Lífi sjúklinga stefnt í hættu

Skýrsla Rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar um plast­barka­málið var kynnt 6. nóv­em­ber 2017. Skýrslan þótti vönduð og var það sam­dóma álit sér­fræð­inga sem blaða­maður ræddi við bæði í Svíþjóð og hér­lendis. Nokkrar nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar voru m.a. eft­ir­far­andi:

  • Alvar­legar athuga­semdir voru gerðar við vís­inda­grein­ina í Lancet. 
  • Tilvísun breytt til að rétt­læta til­rauna­að­gerð­ina og til að hún rynni ferkar í gegn hjá vís­inda­siða­nefnd. 
  • Leyfi skorti til að taka blóð­sýni úr Andemariam Beyene, gera berkju­spegl­anir og taka sneið­myndir sem röt­uðu í Lancet-grein­ina. 
  • Veiga­mestu sjón­ar­miðin sem taka þurfti til­lit til um þátt­töku Andemari­ams Beyene í mál­þing­inu, hafi verið hvernig heilsu hans var þá háttað og þeirra „sið­ferði­legu sjón­ar­miða að forð­ast að draga sjúk­linga fram í fjöl­miðlum og standa beri vörð um frið­helgi þeirra, einka­líf og sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétt. Hann hafði verið veikur fyrir mál­þingið og því ástæða til að leggja það ekki á hann að taka þátt í því.“ 
  • „Það er nið­ur­staða nefnd­ar­innar að ATB hafi verið dreg­inn fram í fjöl­miðlum í aug­lýs­inga­skyni af Háskóla Íslands til að vekja athygli fjöl­miðla á grein­inni sem skrifuð var í The Lancet.“ 

Nið­ur­stöður Rann­sókn­ar­skýrsl­unnar er að finna hér.

Þá sagði um plast­barka­að­gerð­irnar: „Með upp­bygg­ingu mið­stöðvar fyrir háþró­aðar önd­un­ar­vega­rann­sóknir, með áherslu á fram­sæknar aðgerðir, var lífi þriggja sjúk­linga á Karol­inska-háskóla­sjúkra­hús­inu stofnað í mikla hættu á kerf­is­bund­inn hátt og eru þeir nú allir látnir.“

Ýmsir höfðu lengi haft efa­semdir um að tækni og vís­indin væru á þeim stað að slík aðgerð sem ígræðsla plast­barka væri tíma­bær. Má þar nefna belgíska brjóst­hols­skurð­lækn­inn Pierre Delaere. Hann hefur ritað greinar um ígræðslu gervi­líf­færa með hjálp stofn­frumna og skrif­aði fyrstur grein um plast­barka­málið árið 2014 að beiðni Karol­inska-háskóla­sjúkra­húss­ins. Delaere sagði við fyr­ir­spurn blaða­manns Kjarnans að á þessum tíma hafi engan veg­inn verið tíma­bært að hefja aðgerðir þar sem not­ast væri við gervi­líf­færi eða gervi­barka. Ofurtrú hafi ríkt á stofn­frumu­lækn­ingum, sem hafi verið tísku­lækn­is­fræði, en í raun var­huga­verð og gefið falskar vonir um árangur.

Tveir nefndarmenn rannsóknarnefndarinnar – María Sigurjónsdóttir og formaður nefndarinnar Páll Hreinsson.
Tveir nefnd­ar­menn rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar – María Sig­ur­jóns­dóttir og for­maður nefnd­ar­innar Páll Hreins­son.

Fráleitar tilraunir á fólki

Íslenskur læknir sem starfar erlendis og vildi ekki láta nafn síns getið segir að það sé mik­ill áhugi á að nota aðferðir verk­fræð­innar til að búa til líf­færi úr utan­að­kom­andi efnum og stofn­frumum. Til­raunir sem Macchiarini gerði á fólki hafi verið frá­leitar. „Þeir not­uðu stofn­frumur úr band­vef sem áttu svo vænt­an­lega að breyt­ast í þekju­frumur. En það lá ekk­ert fyrir um að þetta gæti gerst. Þekjan í stærri önd­un­ar­vegum er mjög flókin, með mjög sér­hæfum þekju­frumum sem geta flutt slím úr önd­un­ar­vegum. Það voru engar nið­ur­stöður til sem sögðu að þetta gæti gerst í plast­barka. Jafnvel þótt það hefði gerst þá hefðu þessar frumur ekki fengið neina nær­ingu því það var engin blóð­rás til þeirra og þær hefðu þornað upp og dáið eftir að þær voru komnar í sjúk­ling­inn. Vefurinn hefði ekki getað bund­ist plast­inu og aldrei tollað á því. Hug­myndin á bak við þetta er óvís­inda­leg og engan veg­inn tíma­bært að fram­kvæma þetta í fólki.“

Viðbrögð Háskóla Íslands og Landspítalans

Í Rann­sókn­ar­skýrsl­unni voru ekki lagður dómur á það sem gert var í plast­barka­mál­inu en rektor Háskóla Íslands og for­stjóri Land­spít­ala sendu frá sér til­kynn­ingu um ávirð­inga­þætti sem komu fram í henni og þeir töldu að skoða þyrfti nánar. Þar segir m.a. „Málið í heild sýnir mik­il­vægi þess að til­raunir í vísindum og lækn­ingum sæti fag­legri gagnrýni á hverjum tíma og að fylgt sé við­eig­andi verk­ferlum, siða­reglum og lögum. Fyrir Háskóla Íslands, Landspítala sem háskólasjúkrahús, íslenskt fræða­samfélag og þá starfs­menn sem um ræðir er mik­il­vægt að læra af mistökum sem í ljós hefur komið að gerð voru í plast­barkamálinu. Skýrsla rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar er mik­il­vægt inn­legg í innri end­ur­skoðun og grein­ingu á ábyrgð ásamt umbótum á verk­lagi og bættu sið­ferði. Verkefni og ábyrgð Land­spít­ala og Háskóla Íslands og sér­staða þeirra í sam­fé­lag­inu krefj­ast þess að stofn­an­irnar læri af mis­tökum sem gerð hafa verið í plast­barka­mál­inu, bæði í Svíþjóð og hér á landi, og upp­lýsi almenn­ing um vinnu sína og áfanga í því efni.

Háskóli Íslands og Landspítali bregðast við Rannsóknarskýrslunni

Jón Atli Bene­dikts­son, rektor Háskóla Íslands, sendi frá sér yfir­lýs­ingu þann 5. apríl síð­ast­lið­inn um ábyrgð stofn­un­ar­innar í plast­barka­mál­inu. Þar segir að Háskóli Íslands hafi leit­ast við að greina ábyrgð stofn­un­ar­innar og starfs­manna, hvað hafi farið úrskeiðis, læra af því og ákveða við­brögð. „Þrátt fyrir að það sé nið­ur­staða rekt­ors að hátt­semi pró­fess­ors­ins, eins og greint er frá að framan, telj­ist aðfinnslu­verð verður með hlið­sjón af heild­ar­mati á mála­vöxtum og í ljósi fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­inga ekki talið að laga­skil­yrði séu fyrir hendi til að beita form­legum við­ur­lögum vegna brota í starfi á grund­velli laga nr. 70/1996, um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins. Í yfir­lýs­ing­unni er beðist afsök­unar af hálfu Háskóla Íslands á mál­þingi sem haldið var í til­efni að því að ár var liðið frá til­rauna­að­gerð­inni og ákveðið að setja á stofn starfs­hóp á vegum rekt­ors „til þess að fara yfir aðkomu Háskóla Íslands, sem stofn­unar, að mál­inu ...“

Í yfir­lýs­ingu sem Land­spít­al­inn sendi frá sér kom fram að spít­al­inn og Karol­inska-stofn­unin leggi mikla áherslu á að allir aðilar máls­ins dragi sem mestan lær­dóm af því til þess að hindra að slíkt geti end­ur­tekið sig. Anna Sigrún Bald­urs­dóttir, aðstoð­ar­maður for­stjóra Land­spít­al­ans, hefur ekki svarað spurn­ingum blaða­manns um við­brögð Land­spít­al­ans.

Háskóli Íslands. Mynd: Birgir Þór Harðarson.
Háskóli Íslands. Mynd: Birgir Þór Harð­ar­son.

„Vísindalegt misferli er óafsakanlegt“

Nú í sumar, sjö árum eftir hina umdeildu plast­barka­ígræðslu, úrskurð­aði rektor Karol­inska-stofn­un­ar­innar að höf­undar vís­inda­grein­ar­innar í Lancet, hefðu gerst sekir um vís­inda­legt mis­ferli, eins og fram kom í Kjarn­anum 3.júlí sl. Rekt­or­inn fór fram á við rit­stjóra tíma­rit­is­ins að það aft­ur­kall­aði grein­ina og varð Lancet við því.

Ole Petter Ottersen, núver­andi rektor Karol­inska-stofn­un­ar­innar, segir að sam­kvæmt sænskum lögum sé á valdi rekt­ors að ákvarða hvað sé gert þegar vís­inda­maður við stofn­un­ina ger­ist sekur um vís­inda­legt mis­ferli. ,,Að mínum dómi er vís­inda­legt mis­ferli óaf­sak­an­legt og undir eðli­legum kring­um­stæðum ætti það að leiða til við­ur­laga eins og brott­rekstrar. Engu að síður þarf að meta hvert til­felli fyrir sig. Í til­viki Karol­inska-stofn­un­ar­innar er aðeins einn af vís­inda­mönn­unum sjö sem voru úrskurð­aðir fyrir vís­inda­legt mis­ferli enn við störf. Í til­felli þessa vís­inda­manns hyggst Karol­inska-stofn­unin ekki gera ráð­staf­anir til að segja honum upp störfum í tengslum við úrskurð­inn 25. júní sl. en honum verður veitt áminn­ing.“

Fram kom í svari Jóns Atla Bene­dikts­sonar, rekt­ors Háskóla Íslands, við fyr­ir­spurn Kjarnans að hann og for­stjóri Land­spít­ala, Páll Matth­í­as­son, muni að fara yfir skýrslu Karol­inska-stofn­un­ar­innar. „Land­spít­ali og Háskóli Íslands munu saman og í sitt hvoru lagi fara yfir þessa nýju skýrslu Karol­inska-stofn­un­ar­innar eins og önnur gögn sem fram hafa komið í þessu erf­iða og flókna máli.“ Þeirri vinnu er ekki lokið eftir því sem blaða­maður Kjarnans kemst næst.

Tómas Guð­bjarts­son vildi ekki svara spurn­ingum blaða­manns en lýsti yfir von­brigðum sínum með úrskurð­inn á Facebook-síðu sinni.

Hann sagði m.a. „Þessi ákvörðun rekt­ors er mér þung­bær og ég er afar ósáttur við aðdrag­anda hennar og nið­ur­stöðu. Nið­ur­staða rekt­ors Kar­ólínsku stofn­un­ar­innar byggir á rann­sókn sænsku vís­inda­siða­nefnd­ar­innar (CEPN) frá því í fyrra sem margir gagn­rýndu fyrir óná­kvæm vinnu­brögð. Engin ný efn­is­at­riði virð­ast hafa komið fram í mál­inu og í umsögn rekt­ors­ins um þátt minn í umræddri vís­inda­grein gætir óná­kvæmni og mér eru hrein­lega eign­aðir hlutir sem ég hafði aldrei aðkomu að. Ég fékk heldur ekki tæki­færi til að fylgja eftir þeim gögnum sem ég afhenti nefnd­inni, þvert á gefin lof­orð. Það eru mér mikil von­brigði að vera á grund­velli slíkra vinnu­bragða sak­aður um vís­inda­legt mis­ferli – ákvörðun sem ekki er hægt að áfrýja.“ Þá segir Tómas að margt hefði mátt betur fara í plast­barka­mál­inu af hálfu margra sem að því komu og að margt hafi ekki komið í ljós fyrr en síðar. „Ég vísa því hins vegar alfarið á bug að hafa í grein­inni í Lancet vís­vit­andi sett fram stað­hæf­ingar gegn betri vit­und. Á starfsævi minni hef ég skrifað 210 vís­inda­greinar og aldrei fengið ámæli fyrir þau vís­inda­störf.“

Vísindasiðareglur eru alþjóðlegar

Sólveig Anna Bóas­dóttir, for­maður vís­inda­siða­nefndar Háskóla Íslands og pró­fessor í guð­fræði­legri sið­fræði við Guðfræði- og trú­ar­bragða­fræði­deild skól­ans, segir að um vís­inda­störf gildi ákveðnar við­ur­kenndar siða­reglur sem farið sé eftir alls staðar og eigi að vera ófrá­víkj­an­legar. Að því leyti væri úrskurður Karol­inska-stofn­un­ar­innar mik­il­vægur. ,,Vís­inda­siða­reglur eru alþjóð­legar en ekki stað­bundnar og því vel þekktar reglur, þar sem heið­ar­leiki og heil­indi er kjarn­inn.“ Það sé mik­il­vægt fyrir alla, ekki bara þátt­tak­endur heldur einnig sam­fé­lagið sem verði að geta treyst heið­ar­leika vís­inda­manna. Anna Sólveig bendir á að Háskól­inn hafi vís­inda­siða­reglur sem leggi grunn að góðum rann­sóknum. Það hljóti að vera mikið áfall fyrir Tómas Guð­bjarts­son að vera gerður ábyrgur fyrir vís­inda­legu mis­ferli og að Háskóli Íslands hljóti að þurfa að hug­leiða stöð­una með honum.

Vís­inda­siða­reglur eru alþjóð­legar en ekki stað­bundnar og því vel þekktar reglur, þar sem heið­ar­leiki og heil­indi er kjarn­inn.

Sólveig Anna segir að flestir sið­fræð­ingar leggi áherslu á að siða­reglur séu leið­bein­andi. „Allir eru sam­mála um að það sé mik­il­vægt að starfs­fólk þekki siða­reglur við­kom­andi starfs­greina og vinnu­staða, taki þær alvar­lega og leit­ist við að fram­fylgja þeim í störfum sínum. Ég álít ekki nauð­syn­legt að það þurfi að skerpa á siða­reglum, almennt talað. Hins vegar þarf kynn­ing á þeim að vera stöðugt í gangi þannig að fólk geri sér grein fyrir þeim sið­ferði­legu gildum og skuld­bind­ingum sem liggja til grund­vallar starfi vís­inda­siða­nefnda.“

„Stærsti vandinn er ekki endilega lög og reglur“

Ástríður Stef­áns­dóttir telur að benda megi á ákveðnar reglur sem mætti laga eða styrkja. „Við höfum lög og reglur, ein­stak­linga og svo höfum við ein­hvers­konar „ethos“ eða menn­ingu inni á stofn­unum. Ein­stak­ling­arnir brugð­ust alla vega að ein­hverju leyti. Þeir sýndu af sér gáleysi og stóðu ekki undir ábyrgð sinni. Þeir höfðu áreið­an­lega góðan ásetn­ing en sýndu gáleysi. Í mínum huga er það eft­ir­tekt­ar­vert að þegar Macchiarini skrifar Tómasi Guð­bjarts­syni og biður hann um að breyta til­vís­un­inni eru rökin þau að þar með renni þetta frekar í gegn hjá vís­inda­siða­nefnd­inni. Hér er bein­línis gefið í skyn að það sé í lagi að hag­ræða sann­leik­anum ef þá fáist frekar leyfi hjá vís­inda­siða­nefnd.“

„Ég sé þetta sem virð­ing­ar­leysi gagn­vart starfi vís­inda­siða­nefndar og skiln­ings­leysi á eðli hennar. Það birt­ist sú hug­mynd­fræði að vís­inda­siða­nefnd sé fyr­ir­bæri sem tefur starf í þekk­ing­ar­leit, sé hindrun á vegi okkar til stórra og merkra gjörða. Það er ekki litið á þessar nefndir sem stuðn­ing eða varnagla og örygg­is­ventil fyrir sjúk­linga gagn­vart rann­sak­endum í því valda­ferli sem rann­sóknir eru, því þær veita rann­sak­endum ákveðið vald yfir sjúk­lingi og lífi hans. Það er heldur ekki litið á þetta sem ákveðið gæða­ferli til að styrkja vís­inda­rann­sókn­ina. Þessi sýn birt­ist því miður í bréfa­skiptum Macchiarinis og Tómasar.“

Sólveig Anna Bóasdóttir, formaður vísindasiðanefndar Háskóla Íslands.
Sólveig Anna Bóas­dóttir, for­maður vís­inda­siða­nefndar Háskóla Íslands.
Ástríður Stefánsdóttir, læknir og dósent í siðfræði. Mynd: Aðsend mynd
Ástríður Stef­áns­dóttir, læknir og dós­ent í sið­fræði. Mynd: Aðsend mynd

Gargandi þögn eftirlitsstofnanna

Plast­barka­málið vekur upp spurn­ingar um hlut­verk og eft­ir­lits­skyldur stofn­ana gagn­vart sjúk­lingum og rétt­indum þeirra, einkum þegar um er að ræða svo sér­stakt mál sem þetta. Engin svör bár­ust frá Embætti land­læknis við spurn­ingu blaða­manns um þetta efni.

Ástríður Stef­áns­dóttir telur að enn séu margir lausir endar í plast­barka­mál­inu. „Ef við drögum saman það sem búið er að gera þá hafa Land­spít­al­inn og Háskóli Íslands látið gera innri athugun í sínum stofn­unum um málið í heild sinni og komin er nið­ur­staða þar og rektor Háskóla Íslands og for­stjóri Land­spít­al­ans tóku undir nið­ur­stöður þeirrar skýrslu. Rektor lýsti því yfir mjög skýrt að það sem þarna gerð­ist væri aðfinnslu­vert, bæði við birt­ingu Lancet-grein­ar­innar og að hátt­semi pró­fess­ors við Háskól­ann hafi verið aðfinnslu­verð en það séu ekki laga­skil­yrði til að grípa til aðgerða. Háskól­inn vill herða reglur og bæta allt umhverfi til þess að svona hlutir ger­ist ekki aftur.

Allar þessar stofn­anir og Lækna­fé­lagið virð­ist ekki hafa nokkurn fókus á sjúk­ling­inn í þessu máli heldur ein­göngu sínar eigin stofn­anir og starfs­menn þeirra. Þetta er garg­andi þögn.

Það sem á hinn bog­inn stendur eftir er að ég sem not­andi íslenskrar heil­brigð­is­þjón­ustu spyr; hvers vegna var ekk­ert í sam­fé­lag­inu sem brást við, ekk­ert sem ýtti við því að málið opn­að­ist? Það virð­ist frekar vera fyrir röð til­vilj­ana að málið fer af stað. Spurning mín snýr að Embætti land­læknis, Sjúkra­trygg­ingum Íslands og heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu. Lækna­fé­lag Íslands hefur heldur ekki lýst yfir neinni skoðun á þessu máli sem mér finnst skrýtið vegna eðli þess, umfangs þess og af þeirri ástæðu að sjúk­lingur í íslensku heil­brigð­is­kerfi er þol­andi í þessu máli. Allar þessar stofn­anir og Lækna­fé­lagið virð­ist ekki hafa nokkurn fókus á sjúk­ling­inn í þessu máli heldur ein­göngu sínar eigin stofn­anir og starfs­menn þeirra. Þetta er garg­andi þögn.“

„Þetta mál reyndi á inn­við­ina hjá okkur og þeir virk­uðu ekki. Það getur verið vegna þess að fólkið sem kom að þessu máli stóð sig ekki en það getur líka verið vegna þess að reglur og eft­ir­lits­kerfi sem við höfðum var ekki nógu öfl­ugt,“ segir Ástríður. „Það er sjálf­sagt að byrja á því að skoða reglu­verkið og spyrja hvort hægt sé að skerpa það. Við erum búin að við­ur­kenna að það fór eitt­hvað úrskeiðis og við viljum ekki að svona hlutir ger­ist aftur. Fyrsta skrefið er ekki að hlaupa til og hengja fólk. Fjöl­miðlar bera gríð­ar­lega ábyrgð og hafa ekki alveg staðið sig nógu vel í þessu máli, þeir voru ekki til­búnir til að kryfja þetta mál og það ríkti mikil þögn þar. Fund­ur­inn þegar Rann­sókn­ar­skýrslan var kynnt og fjöl­miðlaum­fjöllun í kjöl­farið olli von­brigðum því það kom svo ber­lega í ljós að flestir fjöl­miðlar sem fjöll­uðu um málið höfðu ekki lesið skýrsl­una. Og af sam­an­tekt þeirra mátti sjá að þeir höfðu jafn­vel ekki hlustað á það sem fram fór á fund­inum. Það var verið að halda fram ákveðnum hlutum sem voru ekki réttir. Aðal­at­riðin voru ekki rakin, bara auka­at­riðin. Yfir­borðs­kennd og vill­andi mynd var dregin upp af því sem gerð­ist og því sem var í skýrsl­unni.“

Sænski lækn­ir­inn, Bengt Gerdin, sem rann­sak­aði plast­barka­málið árið 2015, segir íslensk heil­brigð­is­yf­ir­völd (Sjúkra­trygg­ingar Íslands) hafa verið með í ferl­inu, a.m.k. þegar horft til tölvu­póst­sam­skipta, og að sam­kvæmt íslensk lögum sé ein­ungis heim­ilt að vísa sjúk­lingi í þeirra umsjá til ann­arra ríkja í með­ferð eða aðgerð sem sé sann­reynd. ,,Macchiarini svar­aði og sagði að það sem hann legði til fyrir Beyene væri eini mögu­leik­inn fyrir sjúk­ling­inn,“ segir Gerdin og bætir við að Macchiarini hafi verið búinn að ákveða að Beyene færi í aðgerð­ina áður en hann sá sjúk­ling­inn. Það sýni gögn í Svíþjóð. Hann telur að Íslend­ingar verði að skoða það sem gerð­ist í plast­bark­mál­inu. ,,Ef ekk­ert er leið­rétt eftir það sem gerð­ist þá end­ur­speglar það þá skoðun Íslend­inga að engu þurfi að breyta. Ég tel að það fái ekki stað­ist.“

Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis hafði afskipti af mál­inu árið 2016 og hefur ákveðið að taka málið upp að nýju en ekki náð­ist í Helgu Völu Helga­dóttur, for­mann nefnd­ar­innar, þrátt fyrir ítrek­aðar til­raunir.

Landspítalinn
Land­spít­al­inn

Ættu að biðja fjölskyldu Andemariams Beyene afsökunar

Ástríður Stef­áns­dóttir segir að stefna Karol­inska-háskóla­sjúkra­húss­ins og Karol­inska-stofn­un­ar­innar hafi verið að vera í for­svari fyrir ígræðslu á gervi­barka í sjúk­linga. „Mark­miðið var bein­línis að gera til­rauna­að­gerðir, háþró­aðar aðgerðir og var unnið með deyj­andi eða langt leidda sjúk­linga. Þessi hópur er í slæmri stöðu og þarf einmitt sér­staka vernd. Slíkir sjúk­lingar eru ekki í þeirri stöðu að það sé alls ekki hægt að skaða þá. Það er einmitt hægt með lang­vinnu dauða­stríði, fölskum lof­orðum og erf­ið­ara and­láti fyrir þá og aðstand­endur. Það þarf ekki síður að upp­lýsa þessa sjúk­linga en aðra sjúk­linga­hópa. Þó að Andemariam Beyene hefði verið í þess­ari stöðu þá hefði hann átt að fá mikla vernd og svo er hitt að hann var mjög lík­lega ekki í þess­ari stöðu,“ segir Ástríður.

Læknar og yfir­menn Háskóla Íslands og Land­spít­ala þurfa að minnsta kosti að biðja fjöl­skyldu Andemari­ams Beyene afsök­unar og sýna í verki að hugur fylgi máli.

Hún bendir á að fram komi í erlendum skýrslum og íslenskum að Háskóli Íslands hafi farið yfir ákveðin mörk þegar mál­þingið var haldið ári eftir aðgerð­ina á Andemariam Beyene. „Háskól­inn not­færði sér stöðu sína gagn­vart honum, beitti honum þegar hann var orð­inn fár­sjúkur og það hefur komið fram að hann var líka hvattur til að aug­lýsa fyrir fyr­ir­tækið í Boston sem fram­leiddi plast­bark­ann. HÍ þarf að gera þetta upp og skerpa sínar reglur. Traust okkar á Háskól­anum og Land­spít­al­anum er sært og á rann­sak­endum og vís­inda­mönnum. Það þarf að vinna í að bæta það. Við erum í alþjóð­legu sam­starfi, vís­inda­menn taka sig alvar­lega og vilja vinna vel en hugs­an­lega er lagaum­hverfi í kringum það hvernig beri að stunda rann­sóknir gagn­vart fólki ekki nógu skýrt og hvernig beri að taka á því ef eitt­hvað fer úrskeiðis. Læknar og yfir­menn Háskóla Íslands og Land­spít­ala þurfa að minnsta kosti að biðja fjöl­skyldu Andemari­ams Beyene afsök­unar og sýna í verki að hugur fylgi máli.“

Hvorki Karolinska-háskólasjúkrahúsið né Landspítali hafa rætt við ekkju fyrsta plastbarkaþegans

Í pistli Páls Matth­ía­sonar, for­stjóra Land­spít­al­ans, í nóv­em­ber 2017 sem visir.is greindi frá, sagði hann um plast­barka­málið að örlög Andemariam Taeklesebet Beyene, væru það sem mestu máli skipti. „Ungur fjöl­skyldu­faðir og náms­maður, sjúk­lingur okkar og skjól­stæð­ingur Land­spít­ala, tók í örvænt­ingu sinni þátt í ólög­mætri til­raun með skelfi­legum afleið­ingum. Engu að síður brást svo margt sem ekki mátti bregð­ast og af virð­ingu við Andemariam og fjöl­skyldu hans ber okkur öllum skylda til að læra af þessu hörmu­lega máli. Það munum við gera.“

Í rann­sókn­ar­skýrslu Háskóla Íslands og Land­spít­al­ans frá 2016 var mælst til að spít­al­inn hlut­að­ist til um að ekkju Andemari­ams Beyenes, Merhawit Bar­ya­mik­ael Tes­faslase, yrði útveguð fjár­hags­leg aðstoð til að hún gæti ráðið sér lög­fræð­ing til að leita réttar síns. Telur rann­sókn­ar­nefndin ástæðu til að Landspítali taki til athug­unar hvort ekki sé rétt að veita ekkju Andemari­ams fjárhags­að­stoð svo hún geti ráðið sér lögmann til að fara yfir það hvort um bótaskyld atvik sé um að ræða. Ástæðan sé ekki síst sú að mál þetta á sér vart neina hlið­stæðu á Íslandi og því sé ástæða til að Landspítali sýni sérstakt frum­kvæði við að leysa úr málinu á sann­gjarnan og far­sælan hátt fyrir eig­in­konu og þrjá syni Andemari­ams.

Í við­tali við Mannlíf 3. ágúst sl. upp­lýsti ekkja Andemari­ams Beyene að hvorki hefði verið haft sam­bandi við hana frá Karol­inska-háskóla­sjúkra­hús­inu né Land­spít­ala.

Höfundur er nemi í blaða- og frétta­mennsku við Háskóla Íslands og er frétta­skýr­ingin hluti af meist­ara­prófs­verk­efni hennar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár