Mynd: EPA

Fyrsta plastbarkaígræðslan – Tilraunaaðgerð á fölskum forsendum

Tómas Guð­bjarts­son vísar úrskurði Karol­inska-stofn­un­ar­innar um vís­inda­legt mis­ferli á bug en þar kemur m.a. fram að ástand Andemari­ams Beyene hafi ekki rétt­lætt til­rauna­að­gerð­ina.

Karol­inska-stofn­unin hefur nú brugð­ist við nið­ur­stöðum sænsku Siða­nefnd­ar­innar um að vís­inda­legt mis­ferli hafi átt sér stað í greinum um plast­barka­málið svo­kall­aða. Engin ný gögn hafa þó komið fram í mál­inu.

Rektor Karol­inska-stofn­un­ar­innar, Ole Petter Ottersen, sendi frá sér 25. júní úrskurð um plast­barka­málið þar sem Tómas Guð­bjarts­son, pró­fessor við HÍ og yfir­læknir á Land­spít­ala, er einn af sjö ein­stak­lingum sem úrskurð­aðir voru um vís­inda­legt mis­ferli í grein­unum. Í ljósi þessa munu Land­spít­ali og HÍ fara yfir skýrsl­una og önnur gögn í mál­inu þrátt fyrir að hafa ályktað um málið áður í kjöl­far íslensku rann­sókn­ar­innar sem þessar sömu stofn­anir létu gera.

Tómas Guð­bjarts­son og Óskar Ein­ars­son lungna­læknir, voru meðal höf­unda Lancet-vís­inda­grein­ar­innar þar sem plast­barka­ígræðsl­unni í Andemariam T. Beyene, Eretr­íu­manni sem stund­aði meist­ara­nám í jarð­vís­indum við HÍ, var lýst sem sönnun á gildi (proof-of-concept) þess­arar braut­ryðj­andi skurð­að­gerðar. Aðgerðin var gerði í júní 2011, Beyene lést árið 2014.

Til grund­vallar úrskurðar Karol­inska-stofn­un­ar­innar liggja nokkrir þættir:

  1. Ástand fyrir aðgerð­ina á sjúk­lingnum var ekki rétt lýst og til­vísun breytt til að rétt­læta til­rauna­að­gerð­ina á sjúk­lingnum. Engin for­senda var fyrir til­rauna­að­gerð­inni í lífs­bjarg­andi til­gangi og ekk­ert sem lá fyrir um að hún gæti heppn­ast.
  2. Ástandi sjúk­lings­ins í vís­inda­grein í Lancet, mán­uð­ina eftir aðgerð­ina þegar hann fékk með­ferð hér á landi, var ekki rétt lýst og sagt mun betra en það var í raun og sann­leik­anum þannig hag­rætt.
  3. Báðir íslensku lækn­arnir eru sagðir hafa van­rækt skyldu sína til að gera athuga­semdir við rang­færslur grein­ar­innar en Tómas var í for­svari fyrir með­ferð Beyene og Óskar fram­kvæmdi berkju­spegl­anir á honum fyrir og eftir til­rauna­að­gerð­ina.

Greinin í Lancet birt­ist 24. nóv­em­ber 2011 þar sem lýst var skurð­að­gerð sem mark­aði tíma­mót í lækn­is­fræði. Um var að ræða plast­barka sem bað­aður hafði verið í stofn­frumum sjúk­lings­ins í 36 klst. og græddur síðan í hann. Vonir stóðu til að þessi aðferð gæti skapað nýja mögu­leika til að mæta skorti á líf­færum. Lancet-greinin birt­ist um fimm mán­uðum eftir til­rauna­að­gerð­ina á Beyene á Karol­inska-háskóla­sjúkra­hús­inu sem gerð var af teymi skurð­lækna sem Paolo Macchiarini leiddi.

Paolo Macchiarini.
Paolo Macchiarini.

Sjúk­ling­ur­inn, Andemariam Beyene, hafði hæg­vax­andi æxli í barka, eins og fram kemur í skýrslu Rann­sókn­ar­nefndar HÍ og Land­spít­ala. Hluti þess var fjar­lægur 2009 og tók það um 19 mán­uði að verða til veru­legra óþæg­inda þannig að það þrengdi að önd­un­ar­vegi hans. Tíminn hefði því verið nægur til að taka ígrund­aða ákvörðun eftir því sem fram kemur í Rann­sókn­ar­skýrsl­unni. Rann­sókn­ar­nefndin komst að þeirri nið­ur­stöðu að rétt­ast hefði verið í ljósi þessa að gera leisi-aðgerð á Beyene eins og ráð­lagt var á Massachusetts General-spít­al­anum í Boston, einu virtasta háskóla­sjúkra­húsi í heimi.

Enn fremur segir í Rann­sókn­ar­skýrsl­unni: „Í sjúkraskrá Andemari­ams er ekk­ert skráð um að honum hafi verið leið­beint um fyr­ir­hug­aða með­ferð á Karol­inska-háskólasjúkrahúsinu og um önnur þau atriði sem skylt er að veita leið­bein­ingar um, þrátt fyrir skýr fyr­ir­mæli 5. gr. laga nr. 74/1997 um réttindi sjúklinga.“

Ákveðið snemma í ferlinu að skrifa vísindagrein í virt tímarit

Eftir til­rauna­að­gerð­ina og mjög snemma í ferl­inu var haf­ist handa við að vinna að vís­inda­grein og voru þá tekin blóð­sýni, loft­vegur Beyene spegl­aður og haft sam­band við eitt virtasta tíma­rit í lækna­vís­indum, New England Journal of Medicine (NEJM). Macchiarini tjáði Tómasi að hann myndi gera ráð fyrir einum með­höf­undi fyrir utan Tómas frá Íslandi á grein­inni og stakk upp á Óskari Ein­ars­syni lungna­lækni sem hefði gert berkju­spegl­anir á Beyene.

Tíð bréfa­skipti milli Tómasar og ann­arra með­höf­unda voru um efn­is­tök að grein sem ætl­unin var að birta í NEJM. Í októ­ber skrif­aði Macchiarini Tómasi og öðrum sem að til­rauna­að­gerð­inni komu bréf þess efnis að NEJM hefði hafnað grein­inni. Athug­semdir voru gerðar við að engin leyfi voru fyrir hendi til að nota gervi­bark­ann í aðgerð­inni og leyfi vant­aði frá vís­inda­siða­nefnd.

Þá var ákveðið að senda grein­ina til Lancet sem sam­þykkti hana og virð­ist hafa gert ráð fyrir að öll til­skilin leyfi væru fyrir hendi. Vís­inda­grein um fyrstu plast­barka­að­gerð­ina sem gerð var á lif­andi mann­eskju var birt í Lancet-vís­inda­tíma­rit­inu.

Mikilvægum upplýsingum ekki komið til meðhöfunda

Lýsing á ástandi sjúk­lings­ins við útskrift af Karol­inska-háskóla­sjúkra­hús­inu mán­uði eftir aðgerð­ina hélst óbreytt fram að loka­út­gáfu Lancet-grein­ar­innar.

Nið­ur­stöður síð­ustu spegl­unar á Beyene frá októ­ber 2011 sýndu hins vegar að plast­bark­inn var harður eins og plast og að eng­inn þekju­vefur klæddi hann eins og til stóð og voru þessar upp­lýs­ingar hvorki hafðar með í Lancet-grein­inni né séð til þess að þær bár­ust með­höf­undum, sem höfðu því ekki réttar upp­lýs­ingar þegar greinin var send til Lancet. Tómas kveðst hafa komið upp­lýs­ing­unum á fram­færi við Macchiarini og Jung­bluth, hans nán­asta sam­starfs­manns, en plast­barki Beyene var langt frá því að hafa þró­ast eins og vonir stóðu til.

Í Rann­sókn­ar­skýrsl­unni segir enn fremur: „Hið sama gildir um þá full­yrð­ingu sem fram kemur í grein­inni um að Beyene hafi verið ein­kenna­laus hvort sem litið er til heilsu­fars hans fjórum eða fimm mán­uðum eftir aðgerð. Lýsingar á barka Andemariam Beyene í Lancet-grein­inni þar sem segir að sjúk­ling­ur­inn hafi „nán­ast eðli­legan önd­un­ar­veg“ getur varla stað­ist og er ekki í sam­ræmi við nið­ur­stöður rannsókna sem Tómas Guð­bjarts­son og Óskar Ein­ars­son höfðu um heilsu­far Beyene þegar vísinda­grein­inni var skilað til Lancet.“

Í við­tali við Karl-Henrik Grinnemo, einum af svoköll­uðum upp­ljóstr­urum í plast­barka­mál­inu, segir hann að Macchiarini hafi blásið á gagn­rýni rit­rýna NEJM um að leyfi hafi skort og segir jafn­framt að íslensku lækn­arnir hefðu átt að koma áleiðis upp­lýs­ingum um ófull­nægj­andi ástand barka Beyene til með­höf­unda til að réttar upp­lýs­ingar færu í vís­inda­grein­ina en það hafi þeir ekki gert og lítur hann það mjög alvar­legum augum. „Þegar barki Beyene var spegl­aður í októ­ber, um mán­uði fyrir birt­ingu Lancet-grein­ar­innar, var hann þak­inn slími, harður við­komu eins og plast og eng­inn þekju­vefur fyrir hendi eins og hefði átt að vera. Þessum upp­lýs­ingum var ekki komið til ann­arra með­höf­unda sem urðu að treysta upp­lýs­ingum frá Íslandi. Báðir íslensku lækn­arnir fylgdu Beyene eftir, sáu um eft­ir­með­ferð­ina og hefðu átt að koma réttum upp­lýs­ingum áleiðis til allra með­höf­unda og að hafa áhrif á það sem stóð í Lancet-grein­inni sem var allt annað en var í raun­inni og í grein­inni eru margar stað­reynd­ar­villur,“ segir Grinnemo sem er einn sjö höf­unda sem hafa verið úrskurð­aðir sekir um vís­inda­legt mis­ferli.

Þetta er þáttur sem báðir íslensku lækn­arnir eru ásak­aðir um í úrskurði Karol­inska-stofn­un­ar­innar. „Sjúk­ling­ur­inn kom síðan á Karol­inska-háskóla­sjúkra­húsið og hafði þá meiri háttar bráð vanda­mál varð­andi plast­bark­ann sem íslensku lækn­arnir hefðu líka átt að bregð­ast við og koma á fram­færi.“

Hér vísar Grinnemo til þess að Beyene hafi þurft að fá stoð­net í bark­ann til að loft­veg­ur­inn félli ekki saman. Hann telur þetta mjög alvar­leg mis­tök hjá íslensku lækn­unum. Vegna þess að upp­lýs­ingum um slæmt ástand eftir til­rauna­að­gerð­ina á Beyene hafi ekki verið komið áleiðis hafi Macchiarini getað gert fleiri plast­barka­að­gerðir á Karol­inska-háskóla­sjúkra­hús­inu.

Gerðu ekki greinarmun á meðferð og rannsókn

Ástríður Stef­áns­dóttir, læknir og dós­ent í sið­fræði við Háskóla Íslands, segir að þegar verið var að safna sýnum og berkju­spegla fyrir vís­inda­grein­ina sé ljóst að íslensku lækn­arnir hafi ekki verið með það nógu skýrt í sínum huga hvað sé með­ferð og hvað rann­sókn. „Þar var ákveðin laus­ung varð­andi verk­ferla og þá sér­stak­lega er snúa að hinum sið­ferði­lega þætti eins og að afla til­skil­inna leyfa frá sjúk­lingi og jafn­vel einnig varð­andi með­höndlun sjúkra­gagna. Það verður að gera þá kröfu til starfs­manna sem eru pró­fess­orar og með dokt­or­snema undir sinni hand­leiðslu að þeir hafi þessa þekk­ingu og virði þessar reglur.

Þegar tölvu­póstar og sam­tíma­heim­ildir eru skoð­aðar í þessu máli má einnig víða lesa á milli lín­anna að siða­reglur og kröfur sem gerðar eru virð­ast ekki teknar alvar­lega, það er eins og það sé á ein­hvern hátt afsak­an­legt að fara á bak við þær eða „beygja“ þær til að „æðri“ mark­miðum sé náð. Það að fá umsögn siða­nefndar, bera sig rétt að við að fá leyfi hjá sjúk­lingi, með­höndlun und­ir­skrifta og sjúkra­gagna verður allt auka­at­riði en ekki hluti af hinu raun­veru­lega ferli. Þetta er hættu­leg hugsun. Að fá leyfi sjúk­lings og siða­nefndar er ekki til að hindra eða tefja rann­sókn heldur mik­il­vægur hluti af gæða­ferli rann­sókn­ar­innar. Mér finnst ekki hægt að láta það óátalið þegar menn sýna af sér svona ógætni. Það er örugg­lega ekki ásetn­ingur að gera slæman hlut en það er að minnsta kosti gáleysi – og kannski víta­vert gáleysi – þarna þurfa stjórn­endur stofn­ana að greina á milli, það er að segja, er þetta að ein­hverju leyti afsak­an­legt gáleysi eða víta­vert gáleysi?“ spyr Ástríður.

Þar var ákveðin laus­ung varð­andi verk­ferla og þá sér­stak­lega er snúa að hinum sið­ferði­lega þætti eins og að afla til­skil­inna leyfa frá sjúk­lingi og jafn­vel einnig varð­andi með­höndlun sjúkra­gagna.
Ástríður Stefánsdóttir, læknir og dósent í siðfræði.
Ástríður Stef­áns­dóttir, læknir og dós­ent í sið­fræði.

Plastbarkamálið varðar alþjóðlegt vísindasamfélag

„Ef við horfum á önnur mál af líkum toga þá er þetta mál á heims­vísu,“ segir Ástríður. „Málið er í far­vegi stofn­ana, í höndum yfir­manna stofn­ana, bæði hvort og þá hvernig verður tekið á þessu. Hvort það hefur ein­hverjar afleið­ingar fyrir ein­stak­linga eða ekki, hvort það verður frá vina­legu til­tali eða upp í það að menn missi ein­hverjar veg­tyllur.“

Ástríður bendir á að hér á landi séu engin lög til að styðj­ast við þegar svona mál komi upp, þau hvíli á stjórn­endum stofn­ana að skoða.

Læknar sem hafa tjáð sig hafa mætt andstöðu

Ástríður segir að fjöl­margir læknar séu ugg­andi yfir að ekk­ert hafi verið gert út af þessu. „Þetta særir sjálfs­mynd þeirra en þeir eru ekki til­búnir til að stíga fram og tjá sig nema örfáir sem hafa jafn­vel fengið að finna fyrir því. Per­sónu­lega myndi fólk hugs­an­lega tapa og jafn­vel fjár­hags­lega líka eins og Karl-Henrik Grinnemo en hann missti stöðu sína hjá Karol­inska-háskóla­sjúkra­hús­inu sem lengi hefur neitað að biðja hann og fjór­menn­ing­ana, upp­ljóstr­ar­ana, sem fyrstir kærðu Macchiarini fyrir vís­inda­mis­ferli, afsök­unar. Læknar sem hafa tjáð sig opin­ber­lega um málið hér hafa mætt and­stöðu og þess eru dæmi að haft hafi verið í hót­unum við þá.“ Blaða­maður hefur undir höndum tölvu­póst sem við­tak­andi upp­lifði sem hótun vegna þess að hann hafði tjáð sig um málið á opin­berum vett­vangi.

Lög og reglur til að vernda sjúklinginn

Kell Asplund, fyrr­ver­andi land­læknir í Svíþjóð, hélt fyr­ir­lestur um plast­barka­málið á vegum Sið­fræði­stofn­unar 2017 og sagði m.a.: „Lækn­arnir sem tóku þátt í þessu verk­efni voru drifnir áfram af við­leitni til að hjálpa sjúk­lingi sínum en það rétt­lætir ekki að farið sé fram hjá lögum og reglum. Þau eru til að vernda sjúk­ling­inn.“ Hann sagði að læknar mættu aldrei taka áhættu gagn­vart sjúk­lingi, það gæti e.t.v. átt við aðra þætti þegar verið væri að gera nýja hluti, en mætti aldrei snerta sjúk­linga. „Svo virt­ist sem að margar ákvarð­anir í plast­barka­mál­inu hafi verið teknar í flýti.“ Um vernd upp­ljóstr­ara segir Asplund: „Gagn­rýnin hugsun er grund­vall­ar­at­riði í vís­inda­rann­sóknum og upp­ljóstr­arnir voru ekki með­höndl­aðir með sann­gjörnum hætti. Það á ekki að refsa fólki fyrir slíkt. Það ætti að huga að því alls staðar hvernig upp­ljóstr­arar eru með­höndl­aðir.“

Lækn­arnir sem tóku þátt í þessu verk­efni voru drifnir áfram af við­leitni til að hjálpa sjúk­lingi sínum en það rétt­lætir ekki að farið sé fram hjá lögum og reglum. Þau eru til að vernda sjúk­ling­inn.

Að loknum fyr­ir­lestr­inum var athuga­semd varpað fram um að 6 vikum eftir plast­barka­að­gerð­ina hefðu íslensku lækn­arnir séð að hún hefði mis­tek­ist þar sem engin ný slím­húð hafði mynd­ast í plast­stoð­grind­inni. Þetta hafi ekki ratað í Lancet-grein­ina. Ákveðnir höf­undar fengu loka­út­gáf­una þar sem Macchiarini hafi spurt hvort það væru ein­hverjar athuga­semdir, þ. á m. Tómas Guð­bjarts­son en hann hafi ekki gert neinar athuga­semdir. Eftir hafi staðið að sjúk­lingi vegn­aði vel og að „bark­inn væri næstum eðli­legur.“

Þá kom fram að Aned­mariam Beyene hafi sagt í nóv­em­ber sama ár í sjón­varps­við­tali um málið: „How can they write it, if it is not truth? I am going down and they still write this ...!“

Hlutverk Vísindasiðanefndar að verja hagsmuni þátttakenda

Meg­in­hlut­verk Vís­inda­siða­nefndar er að fara yfir rann­sókn­ar­á­ætl­anir vís­inda­manna, bæði vís­inda­lega þátt­inn og þann sið­fræði­lega, en einnig hags­muni þátt­tak­enda. Þá hefur nefndin heim­ild til að draga til baka leyfi fyrir rann­sóknum sem hún telur að upp­fylli ekki kröfur nefnd­ar­innar eða ef reglur eða lög hafi verið brotin en nefndin getur einnig vísað slíkum málum til Embættis land­læknis. Þung við­ur­lög geta legið við ef rann­sak­endur ger­ast brot­legir í með­ferð líf­sýna og gagn­vart rétt­indum sjúk­linga.

Grein Andrew Wakefield um tengsl bólu­setn­inga og ein­hverfu sem birt­ist 1998 er eitt þekktasta dæmið um vís­inda­legt mis­ferli síð­ustu ára. Rannsókn hans náði ein­ungis til tólf barna. Seinna kom í ljós að Wakefield hafði falsað nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar. Lancet dró grein­ina til baka og Wakefield missti lækn­inga­leyfið. Hinar meintu nið­ur­stöður höfðu hins vegar veiga­mikil áhrif því því komið hefur í ljós að for­eldrar barna með ein­hverfu láta síður bólu­setja börn sín.

Dr. Vil­hjálmur Ari Arason heim­il­is­læknir er einn sára­fárra lækna sem hafa tjáð sig opin­ber­lega um plast­barka­málið. Hann bendir á að vís­inda­mis­ferli séu tekin mjög alvar­lega í vís­inda­heim­inum og þeir sem verði upp­vísir að slíku missi stöðu og jafn­vel æru.

Í Rann­sókn­ar­skýrsl­unni kom fram að lög nr. 44/2014 um vísinda­rannsóknir á heil­brigð­is­sviði væru haldin þeim ágalla að Vísinda­siða­nefnd hefði of litlar vald­heim­ildir til afskipta af vísinda­rannsóknum sem van­rækt hefði verið að sækja um leyfi fyrir, sbr. 29. gr. lag­anna.

Tveir nefndarmenn rannsóknarnefndarinnar – María Sigurjónsdóttir og formaður nefndarinnar Páll Hreinsson.
Tveir nefnd­ar­menn rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar – María Sig­ur­jóns­dóttir og for­maður nefnd­ar­innar Páll Hreins­son.

Í íslensku Rann­sókn­ar­skýrsl­unni segir: „Það er mat nefnd­ar­innar að for­svars­menn Landspítala og Háskóla Íslands þurfi að vekja athygli hlut­að­eig­andi ráðherra á þessum alvar­lega ann­marka fram­an­greindra laga.“ Í svari frá Páli Matth­í­assyni, for­stjóra Land­spít­ala, segir að athygli ráðu­neyta hafi verið vakin á þessum ágalla.

Vikið er að því að leyfi hefði þurft frá Vís­inda­siða­nefnd fyrir rann­sókn­unum sem gerðar voru á Andemariam Beyene á Land­spít­al­anum vegna skrifa vís­inda­grein­ar­innar í Lancet. Spyrja má hvort Vís­inda­siða­nefnd hefði ekki átt að stíga inn málið árið 2015 þegar alvar­legar ásak­anir komu fram fram um vís­inda­mis­ferli í Lancet-grein­inni og að ástandi Beyene hafi ekki verið rétt lýst þar. Í lögum um vís­inda­rann­sóknir á heil­brigð­is­sviði nr. 44 frá 2014 segir: 29. gr. Eftirlit með vís­inda­rann­sóknum. Vís­inda­siða­nefnd og siða­nefndir heil­brigð­is­rann­sókna hafa eft­ir­lit með vís­inda­rann­sóknum á heil­brigð­is­sviði.

Svar Eiríks Bald­urs­sonar, fram­kvæmda­stjóra Vís­inda­siða­nefndar, við spurn­ingu um hvort nefndin hefði ekki átt að vekja athygli á að hér hafi farið fram vinna við vís­inda­rann­sókn án leyfis árið 2015 og ekki hefði verið fyr­ir­liggj­andi leyfi frá vís­inda­siða­nefnd í Svíþjóð (Skýrsla Bengts Gerdins) fyrir rann­sóknum á Andemariam Beyene, var eft­ir­far­andi: „Þau lög sem þú vísar til tóku gildi 1. jan­úar 2015. Atvikin sem þú fjallar um áttu sér hins vegar stað nokkrum árum fyrr.

Eftirlit Vís­inda­siða­nefndar (og siða­nefnda heil­brigð­is­rann­sókna) tak­markast við þær vís­inda­rann­sóknir á heil­brigð­is­sviði sem eru leyf­is­skyldar hjá nefnd­inni og hafa hlotið heim­ild hennar. Leiki vafi á hvort um er að ræða vís­inda­rann­sókn á heil­brigð­is­sviði sker Vís­inda­siða­nefnd úr um það. Það er ekki í verka­hring nefnd­ar­innar að fjalla um úrræði sem gripið er til í með­ferð­ar­skyni …“.

Siða­reglum lækna mun ekki hafa verið fylgt í rann­sóknum á Andemariam Beyene sam­kvæmt því sem kemur fram í íslensku Rann­sókn­ar­skýrsl­unni, einkum í gr. 6 og 7.

Vildu fjarlægja fjarlægja nöfn sín af Lancet-greininni um sex árum seinna

Bengt Gerdin sagði árið 2016 eftir að plast­barka­málið komst aftur í umræð­una það aug­ljós­lega rangt að fram­kvæma allar berkju­spegl­an­irnar og töku sýna frá bark­anum til rann­sóknar án þess að hafa til þess leyfi frá vís­inda­siða­nefnd. „Það gildir bæði um það sem var gert í Reykja­vík og Stokk­hólmi og ætti að leiða til laga­legrar ábyrgðar af ein­hverju tagi,“ segir Gerdin. „Það er eft­ir­tekt­ar­vert að íslensku lækn­arnir hafa ekki óskað eftir að nöfn þeirra væru tekin af Lancet-grein­inni. Að minnsta kosti fjórir með­höf­undar hafa gert það. Það hefði verið tákn um sak­leysi þeirra.“

Um sex árum eftir birt­ingu Lancet-grein­ar­innar ósk­uðu íslensku höf­und­arnir eftir að nöfn þeirra yrðu fjar­lægð af grein­inni.

Málþingið í HÍ víða gagnrýnt

Ári eftir til­rauna­að­gerð­ina á Beyene var haldið mál­þing er bar yfir­skrift­ina „Stofn­frumur á manna­máli“ í Háskóla Íslands á vegum Lækna­deildar. Mál­þingið hefur verið gagn­rýnt víða þar sem plast­barka­ígræðsl­unni var lýst sem vel heppn­aðri. Enn fremur var Beyene þátt­tak­andi í mál­þing­inu. Á þessum tíma hafði heilsu Beyene hrakað og hann kom­inn með stoð­net til að loft­veg­ur­inn félli ekki saman.

Karl-Henrik Grinnemo telur mál­þingið enn einn þátt­inn sem sé alvar­legur í aðkomu Íslend­inga í þessu máli. Þó að hlið­ar­verk­anir hafi verið kynntar sem komu upp eftir plast­barka­að­gerð­ina þá hafi jákvæðar nið­ur­stöður plast­barka­að­gerð­ar­innar verið meg­in­nið­ur­staða mál­þings­ins og skap­aði grund­völl fyrir Macchiarini til að fram­kvæma fleiri slíkar aðgerðir. Slíkt hefði mátt koma í veg fyrir með því að vekja athygli á að plast­barka­að­gerðin á Beyene var ekki að virka eins og til stóð.

Belgíski brjóst­hols­skurð­lækn­ir­inn Pierre Delaere, sem kom fram í sjón­varps­þátt­unum í sjón­varps­þátt­unum Experimenten, var fyrstur til að gera úttekt á plast­barka­ígræðslum Macchiarinis, segir mál­þingið hneyksli sem hefði aldrei átt að eiga sér stað. „Sjúk­lingnum var fagnað eins og stór­verk hafi verið unnið þrátt fyrir að hann hefði alvar­lega fylgi­kvilla, eins og má sjá í heim­ild­ar­mynd­inni Experimenten.“

Sjúk­lingnum var fagnað eins og stór­verk hafi verið unnið þrátt fyrir að hann hefði alvar­lega fylgi­kvilla.
Ráðstefna í HÍ 2012. Anemarian Beyene spjallar við Paolo Macchiarini.
Ráð­stefna í HÍ 2012. Anemarian Beyene spjallar við Paolo Macchiarini.

Kjell Asplund tekur í sama streng og segir mál­þingið í Háskóla Íslands lík­lega eitt það versta við plast­barka­málið. „Vegna þess að það gaf tón­inn til að halda áfram,“ segir hann.

Íslenska rann­sókn­ar­nefndin fjall­aði ekki um mál­þingið sökum þess að hana skorti nákvæmar upp­lýs­ingar um efni fyr­ir­lestr­anna til að taka afstöðu til þess sem þar kom fram um auka­verk­anir og vanda­mál sem komu upp eftir aðgerð­ina. „Það er mat nefnd­ar­innar að óháð fram­an­greindum sjónar­miðum hafi veiga­mestu sjónar­miðin sem taka bar til­lit til, þegar tekin var ákvörðun um þátttöku Andemari­ams í málþing­inu, verið þau hvernig heilsu Andemari­ams var þá háttað auk þeirra sið­ferði­legu sjónar­miða að forð­ast beri að draga sjúklinga fram í fjölmiðlum og standa beri vörð um frið­helgi þeirra, einkalíf og sjálfsákvörðun­arrétt. Einnig kemur fram að Tómas hafi sett ámæl­is­verða pressu á Andemariam Beyene að aðstoða fyr­ir­tækið við að svara spurn­inga­list­unum.“

Háskóli Íslands og Landspítali fara yfir úrskurð Karolinska-stofnunarinnar um að Tómas Guðbjartsson hafi gerst sekur um vísindalegt misferli

Ábyrgð stofn­ana, Land­spít­ala og HÍ, virð­ist vera umtals­verð í plast­barka­mál­inu. Um hvaða þýð­ingu úrskurður nið­ur­staða Karol­inska-stofn­un­ar­innar um vís­inda­legt mis­ferli Tómasar Guð­bjarts­sonar, pró­fess­ors og yfir­læknis á Land­spít­ala, hefði fyrir Háskóla Íslands, svar­aði Jón Atli Bene­dikts­son, rektor Háskóla Íslands: „Karol­inska Institu­tet hefur núna úrskurðað um vís­inda­þátt plast­barka­máls­ins. Háskóli Íslands hefur áður tekið þann þátt fyrir og svar­aði 5. apríl með hlið­sjón af nið­ur­stöðum í skýrslu óháðrar nefndar Háskól­ans og Land­spít­ala um málið. Land­spít­ali og Háskóli Íslands munu saman og í sitt hvoru lagi fara yfir þessa nýju skýrslu Karol­inska Institu­tet eins og önnur gögn sem fram hafa komið í þessu erf­iða og flókna máli.“

Þá mun Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd fjalla um málið að nýju.

Mannréttindi fyrir borð borin

Til­rauna­að­gerðin á Andemariam Beyene hefði að öllum lík­indum ekki verið gerð nema vegna þess að röng lýs­ing á ástandi hans var sett fram og til­vísun breytt í maí 2011 sem fól í sér að ekki var lengur gert ráð fyrir mögu­leika á leysi­að­gerð á krabba­mein­inu.

Í nið­ur­stöðum íslensku Rann­sókn­ar­skýrsl­unnar kom fram að lífi þriggja ein­stak­linga hafi verið kerf­is­bundið stofnað í hættu vegna plast­barka­ígræðslna á Karol­inska-háskóla­sjúkra­hús­inu og að allir hafi þeir átt undir högg að sækja í sam­fé­lag­inu. Þetta hafi verið gert á grund­velli áforma stofn­un­ar­innar um upp­bygg­ingu mið­stöðvar fyrir háþró­aðar aðgerðir á önd­un­ar­vegi og er að mati nefnd­ar­innar ekki hægt að úti­loka að með þessu hafi 2. gr. mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu verið brotin. Páll Matth­í­as­son, for­stjóri Land­spít­ala, hefur sagt að þetta sé alvar­leg­asti þátt­ur­inn við plast­barka­málið, að það kunni að varða mann­rétt­inda­brot, allir verði að læra af þessu hörmu­lega máli.

Tómas Guð­bjarts­son hefur ekki viljað tjá sig í fjöl­miðlum um úrskurð­inn en sendi frá sér yfir­lýs­ingu á Facebook-síðu sinni.

Ljóst má vera að umfjöllun um plast­barka­málið hefur ein­kennst af því að vernda hags­muni stofn­ana og starfs­manna þeirra, en að sama skapi hefur lítið verið skeytt um mann­rétt­indi Andemariam Beyene og ann­arra sjúk­linga sem áttu í hlut.

Höfundur er nemi í blaða- og frétta­mennsku við Háskóla Íslands og er frétta­skýr­ingin hluti af meist­ara­prófs­verk­efni hennar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár