Macchiarini og meðhöfundar fölsuðu vísindaniðurstöður

Paolo Macchiarini og sam­starfs­menn hans gerð­ust sekir um mis­ferli í tengslum við birt­ingu vís­inda­greina um plast­barka­að­gerðir. Málið teygir sig til Íslands en tveir með­höf­undar einnar grein­ar­innar eru íslenskir læknar.

Paolo Macchiarini.
Paolo Macchiarini. Mynd: CARLO FERRARO / EPA

Hópur sér­fræð­inga á sviði vís­inda­mis­ferlis innan sænsku siða­nefnd­ar­innar (Centrala etik­prövn­ings­nämnden) hefur að lok­inni rann­sókn á vís­inda­mis­ferli ítalska skurð­lækn­is­ins Paolo Macchiarinis, sent frá sér yfir­lýs­ingu þess efnis að Macchiarini og sam­starfs­menn hafi gerst sekir um mis­ferli í tengslum við birt­ingu vís­inda­greina um plast­barka­að­gerðir sínar. Veiga­mesta greinin birt­ist í hinu virta lækn­is­fræði­tíma­riti Lancet og eru tveir íslenskir læknar með­höf­undar að henni. Rann­sóknin var fram­kvæmd að beiðni Karol­inska-stofn­un­ar­innar.

[links]Hópurinn til­nefndi tvo utan­að­kom­andi sér­fræð­inga sér til ráðu­neytis, vís­inda­menn­ina Martin Björck, pró­fessor við Uppsala-háskóla og Detlev Ganten, pró­fessor í Berlín.

Nið­ur­staða hóps­ins var kynnt í gær en um er að ræða sex vís­inda­greinar sem allar fjalla um ígræðslu plast­barka í fólk.

Árið 2015 rann­sak­aði Bengt Gerdin pró­fessor þessar vís­inda­greinar og komst að þeirri nið­ur­stöðu að um vís­inda­legt mis­ferli væri að ræða í öllum sex grein­unum. Engu að síður hreins­aði Karol­inska-stofn­unin Paolo Macchiarini og með­höf­unda hans af öllum ásök­unum.

Karol­inska-stofn­unin lét hefja rann­sókn á mál­inu á ný eftir að þættir Bosse Lindquist og sam­starfs­manna í sænska sjón­varp­inu (SVT) höfðu varpað nýju ljósi á málið. Var Karol­inska-stofn­unin sökuð um að þagga málið niður.

Tveir íslenskir læknar eru með­höf­undar að fyrstu grein­inni (Proof-of-Concept) sem birt­ist í hinu virta lækn­is­fræði­tíma­riti Lancet, þeir Tómas Guð­bjarts­son pró­fessor og Óskar Ein­ars­son læknir. Greinin fjallar um fyrstu plast­barka­ígræðsl­una á heims­vísu sem Macchiarini gerði en sjúk­ling­ur­inn var Erít­reu­mað­ur­inn Andemariam Beyene, sem stund­aði í meist­ara­nám í jarð­fræði við Háskóla Íslands. Andemariam stríddi við krabba­mein í barka og var Tómas Guð­bjarts­son læknir hans.

Sænski sér­fræð­inga­hóp­ur­inn segir að í vís­inda­grein­unum sé lýst góðum árangri af plast­barka­ígræðsl­unum en að stað­reynd­irnar tali öðru máli. Enn fremur að upp­lýs­ing­arnar í grein­unum séu vill­andi og gefi til kynna betra ástand sjúk­linga en raunin var. Þá hafi upp­lýs­ingum verið leynt í þessu skyni.

[adspot]Þannig sé um fölsun að ræða sem telst vera vís­inda­leg mis­ferli. Loks séu í grein­unum rangar upp­lýs­ingar um sam­þykki vís­inda­siða­nefndar, sem einnig felur í sér vís­inda­legt mis­ferli.

Sér­fræð­inga­hóp­ur­inn kemst að því að allir með­höf­undar grein­anna sex séu sekir um vís­inda­leg mis­ferli. Ábyrgð ein­stakra höf­unda sé þó mis­mun­andi. Meg­in­á­byrgðin liggi hjá Paolo Macchiarini sem aðal­höf­undi og leið­toga rann­sókn­arteym­is­ins og öðrum sem gegndu mik­il­vægu hlut­verki í rann­sókn­unum og ritun grein­anna. Nánari ákvörðun varð­andi ábyrgð og afleið­ingar fyrir hlut­að­eig­andi höf­unda sé í höndum stofn­ana sem þeir starfa hjá.

Sér­fræð­inga­hóp­ur­inn óskar eftir útgef­endur aft­ur­kalli allar grein­arnar sex. Í til­viki íslensku lækn­anna eru það vænt­an­lega Háskóli Íslands og Land­spít­ali.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár