Plastbarkamálið enn og aftur til skoðunar

Ný skýrsla Karol­inska-stofn­un­ar­innar liggur nú fyrir og munu Land­spít­al­inn og Háskóli Íslands fara yfir hana í kjöl­farið, sem og önnur gögn sem fram hafa komið. Tómas vísar því alfarið á bug að hafa vís­vit­andi sett fram stað­hæf­ingar gegn betri vit­und.

Tómas Guðbjartsson
Tómas Guð­bjarts­son Mynd: Samsett mynd/Karolinska Institutet & Háskóli Íslands

Rektor Karol­inska-stofn­un­ar­innar hefur úrskurðað að 7 ein­stak­lingar séu ábyrgir fyrir vís­inda­legu mis­ferli í sex vís­inda­greinum sem sneru að plast­barka­mál­inu og er Tómas Guð­bjarts­son, pró­fessor við HÍ og yfir­læknir á Land­spít­ala, einn af þeim. Í til­viki Tómasar varðar það aðild hans að grein í hinu virta vís­inda­tíma­riti Lancet sem byggð var á fyrstu plast­barka­ígræðsl­unni.

[links]Sjúk­ling­ur­inn sem í hlut átti var Andemariam Tekles­en­bet Beyene, Eretr­íu­maður sem var sendur á vegum íslenska heil­brigð­is­kerf­is­ins til Karol­inska-háskóla­sjúkra­húss­ins, þar sem hann und­ir­gekkst þar ígræðslu plast­barka í júní árið 2011.

Í grein­inni í Lancet var plast­barka­ígræðslan í Beyene kynnt sem sönnun á gildi (proof-of-concept) þess­arar nýstár­legu skurð­að­gerðar. Beyne lést árið 2014 og áður hafði annar sjúk­lingur sem gekkst undir plast­barka­ígræðslu lát­ist. Sama ár til­kynntu fjórir læknar á Karol­inska-háskóla­sjúkra­hús­inu grun­semdir sínar um að vís­inda­legt mis­ferli hefði átt sér stað í greinum Macchiarinis. Í kjöl­farið var Bengt Gerdin, pró­fessor við Uppsala-háskóla, feng­inn að beiðni Karol­inska-stofn­un­ar­innar til að fram­kvæma rann­sókn á störfum Maccharinis og með­höf­unda og komst hann að þeirri nið­ur­stöðu að um vís­inda­legt mis­ferli hafi verið að ræða í öllum sex vís­inda­greinum sem höfðu birst um plast­barka­ígræðslur í ýmsum vís­inda­tíma­ritum. Þáver­andi rektor Karol­inska-stofn­un­ar­innar, Anders Hamsten, hreins­aði hins vegar Macchiarini af öllum ásök­unum og það var ekki fyrr en Bosse Lindquist, frétta­maður hjá SVT í Svíþjóð, gerði þætt­ina Experimenten að málið var skoðað á ný, meðal ann­ars hér­lendis af Land­spít­ala og Háskóla Íslands.

Falsaðar niðurstöður í Lancet-greininni

Tekið er fram í úrskurði Karol­inska-stofn­un­ar­innar að mjög alvar­legar rang­færslur hafi verið í Lancet-grein­inni Tracheobornchial transplantation with a steam-cell-seeded bioartificial nanocomposite: a proop-of-concept study, um ástand Beyene, bæði fyrir og eftir plast­barka­ígræðsl­una, sem hafi verið vill­andi og einnig er tekið fram að leyfi frá vís­inda­siða­nefnd hafi ekki verið til staðar. Enn fremur að rann­sóknir sem skapa grund­völl fyrir fram­kvæmd plast­barka­ígræðslu hafi skort en Macchiarini full­yrti að hann hefði gert til­raunir á dýrum til að und­ir­búa aðgerðir sínar á mönnum. Þá hafi vantað full­nægj­andi upp­lýst sam­þykki sjúk­linga.

Munu fara yfir niðurstöðurnar

Í svari við fyr­ir­spurn um hvaða þýð­ingu nið­ur­stöð­urnar hefðu fyrir Háskóla Íslands og Tómas Guð­bjarts­son, pró­fessor við stofn­un­ina, sagði Jón Atli Bene­dikts­son, rektor Háskóla Íslands: „Karol­inska Institu­tet hefur núna úrskurðað um vís­inda­þátt plast­barka­máls­ins. Háskóli Íslands hefur áður tekið þann þátt fyrir og svar­aði 5. apríl með hlið­sjón af nið­ur­stöðum í skýrslu óháðrar nefndar Háskól­ans og Land­spít­ala um málið. Land­spít­ali og Háskóli Íslands munu saman og í sitt hvoru lagi fara yfir þessa nýju skýrslu Karol­inska Institu­tet eins og önnur gögn sem fram hafa komið í þessu erf­iða og flókna máli.“

Fengu neitun frá NEJM vegna þess að ekkert leyfi var frá vísindasiðanefnd

Lækn­arnir sem komu að plast­barka­að­gerð Beyene höfðu í upp­hafi sent vís­inda­grein­ina um aðgerð­ina til New England Journal of Medicine en þar var henni hafnað, m.a. á þeirri for­sendu að til­skilin leyfi vant­aði frá Vís­inda­siða­nefnd. Engu að síður sendu lækn­arnir grein­ina til Lancet sem sam­þykkti að birta hana. Ole Petter Ottersen, rektor Karol­inska-stofn­un­ar­innar, segir að málið hafi verið mjög vand­lega rann­sakað. „Þessi ákvörðun hefur verið tekin eftir nákvæmar rann­sóknir í máli sem hefur haft mikil áhrif á Karol­inska-stofn­un­ina, á vís­inda­sam­fé­lagið í heild sinni og á traust almenn­ings á lækn­is­fræði­legum rann­sóknum.“

Vilja koma í veg fyrir að slíkt gerist aftur

Ottersen segir að málið hafi haft alvar­legar afleið­ingar fyrir sjúk­linga, aðstand­endur þeirra, Karol­inska-stofn­un­ina og vís­inda­sam­fé­lagið allt. „Einkum hefur málið haft hörmu­legar afleið­ingar fyrir sjúk­linga og ætt­ingja þeirra, sem ég harma mjög. Karol­inska-stofn­unin mun nú halda áfram að hrinda í fram­kvæmd þeim ráð­stöf­unum sem nauð­syn­legar eru til að koma í veg fyrir að eitt­hvað þessu líkt ger­ist aftur,“ sagði Ottersen í löngum og ítar­legum rök­stuðn­ingi en stofn­unin hefur dregið allar fræði­grein­arnar til baka.

Íslensku lækn­arnir, Tómas Guð­bjarts­son og Óskar Ein­ars­son, sem voru meðal höf­unda Lancet-grein­ar­innar títt­nefndu eru báðir sagðir hafa van­rækt skyldu sína að gera athuga­semdir við rang­færslur grein­ar­innar en Tómas var í for­svari fyrir með­ferð Beyene hér á landi og Óskar fram­kvæmdi berkju­spegl­anir á honum fyrir og eftir til­rauna­að­gerð­ina. Þá voru lækn­is­fræði­legar for­sendur sagðar ekki nægar til að ráð­ast í aðgerð sem plast­barka­að­gerð­irnar voru og sjúk­lingar voru látnir und­ir­gang­ast eins og kom fram í grein­inni Bera íslenskar stofn­anir ábyrgð í gervi­barka­mál­inu.

Hópur sér­fræð­inga á sviði vís­inda­mis­ferlis innan sænsku siða­nefnd­ar­innar (Centrala etik-prövn­ings­nämnden) sendi frá sér yfir­lýs­ingu 30. okt, 2017 þess efnis að Macchiarini og allir með­höf­undar hans hafi gerst sekir um mis­ferli í tengslum við birt­ingu vís­inda­greina um plast­barka­að­gerð­irnar. Veiga­mesta greinin birt­ist í hinu virta lækn­is­fræði­tíma­riti Lancet eins og áður greinir.

Í októ­ber 2017 hafði Anders Tordai sak­sókn­ari kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að ekki væru nægar sann­anir til að sak­fella Macchiarini fyrir dauða Beyene og var tekið fram að plast­barka­að­gerð­irnar hefði jafn­vel lengt líf ein­stak­ling­anna sem und­ir­geng­ust aðgerð­irnar. Þetta var harð­lega gagn­rýnt í Svíþjóð og beðið var eftir úrskurði Karol­inska-stofn­un­ar­innar sem nú hefur komið fram.

Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis mun halda áfram með málið

Plast­barka­mál­inu er því langt í frá lokið, enda eitt alvar­leg­asta mál sem komið hefur upp í lækn­is­fræði síð­ustu ára­tugi. Ljóst er að ábyrgð íslenskra stofn­ana er tölu­verð eins og fram kom í nið­ur­stöðu rann­sókn­ar­nefndar sem skipuð var af HÍ og Land­spít­ala. Þrátt fyrir að báðar stofn­anir hafi brugð­ist við nið­ur­stöðum rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar virð­ist Alþingi áfram líta málið alvar­legum augum því Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd hefur ákveðið að taka það til umfjöll­unar að nýju (fund­ar­gerð frá 30. maí sl.).

Tómas ósáttur við niðurstöðuna

Tómas Guð­bjarts­son, pró­fessor og yfir­læknir, segir á Facebook-síður sinni í morgun að hann sé afar ósáttur við nið­ur­stöður Karol­inska-stofn­un­ar­innar: „Nið­ur­staða rekt­ors Kar­ólínsku stofn­un­ar­innar byggir á rann­sókn sænsku vís­inda­siða­nefnd­ar­innar (CEPN) frá því í fyrra sem margir gagn­rýndu fyrir óná­kvæm vinnu­brögð. Engin ný efn­is­at­riði virð­ast hafa komið fram í mál­inu og í umsögn rekt­ors­ins um þátt minn í umræddri vís­inda­grein gætir óná­kvæmni og mér eru hrein­lega eign­aðir hlutir sem ég hafði aldrei aðkomu að. Ég fékk heldur ekki tæki­færi til að fylgja eftir þeim gögnum sem ég afhenti nefnd­inni, þvert á gefin lof­orð. Það eru mér mikil von­brigði að vera á grund­velli slíkra vinnu­bragða sak­aður um vís­inda­legt mis­ferli – ákvörðun sem ekki er hægt að áfrýja.“

Þá segir Tómas að margt hefði betur mátt fara í plast­barka­mál­inu sem hefði ekki komið í ljós fyrr en eftir á. Hann seg­ist vísa því alfarið á bug að hafa í grein­inni í Lancet vís­vit­andi sett fram stað­hæf­ingar gegn betri vit­und. Hann hafi á starfsævi sinni skrifað 210 vís­inda­greinar og aldrei fengið ámæli fyrir þau vís­inda­störf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár