Ekki í andstöðu við EES að banna vistun eigna í skattaskjólum

Sigurður Ingi Jóhannsson tók við sem forsætisráðherra íslensku þjóðarinnar í lok síðustu viku.
Sigurður Ingi Jóhanns­son tók við sem for­sæt­is­ráð­herra íslensku þjóð­ar­innar í lok síð­ustu viku. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Samn­ing­ur­inn um Evrópska efna­hags­svæðið (EES) úti­lokar ekki að sett verði lög sem banna vistun eigna á lág­skatt­ar­svæðum utan EES-svæð­is­ins. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Eft­ir­lits­stofnun EFTA (ESA). Þar segir að grunn­reglan um frjálsa fjár­magns­flutn­inga sé sú að ekki séu tak­mark­anir á flutn­ingi fjár­magns milli ríkja sem eiga aðilda að EES-samn­ingnum. Ákvæði hans um frjálsa fjár­magns­flutn­inga gildi hins vegar ekki um önnur ríki.

Þetta er í and­stöðu við það sem Sigurður Ingi Jóhanns­son, nýr for­sæt­is­ráð­herra Íslands, sagði í við­tali við Morg­un­blaðið í gær. Þar sagði hann að sitt fyrsta verk sem for­sæt­is­ráð­herra, eftir að hann tók við starf­inu á fimmtu­dag, hafi verið að kanna hvort hægt væri að banna Íslend­ingum að vista pen­inga í lág­skatt­ar­ríkjum. „Fyrstu svör sér­fræð­inga eru þau að vegna m.a. jafn­ræðis­reglu EES-samn­ings­ins sé það ekki hægt. Mér hef­ur því þótt sér­kenni­legt að heyra Evr­ópu­sam­bands­sinna, Sam­fylk­ing­una og Bjarta fram­tíð og jafn­vel Pírata, sem hafa aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á stefnu­skrá, tala um að loka eigi á mögu­leika fólks að vista pen­ing­ana sína á af­l­ands­eyj­um. Þetta er alþjóð­legt vanda­mál,“ sagði Sig­urður Ingi.

Sigurður Ingi sagði einnig í við­tal­inu að sú umsýsla að Íslend­ingar skyldu áfram vista eigur sínar á aflandseyjum eftir hrunið sé „vissu­lega ekki ólög­leg en óeðli­leg er hún.[...]Ljóst er að það er lög­legt. Þannig er þetta fyrst og síð­ast sið­ferðis­legt álita­efni."

Á fimmtu­dag í síð­ustu viku sagði hann Sigurður Ingi úr ræðu­stóli Alþingis að ekk­ert væri að því að eiga eignir á lág­skatta­svæðum ef þeir sem slíkar eigi greiði skatta af þeim eignum. Það væri lög­legt á Íslandi og alþjóð­lega. Það sé hins vegar veru­lega mikið að því þegar menn noti slík félög til að kom­ast hjá greiðslu skatta og til að fela fé. Hann hvatti alla þá sem „orðið hafa fyrir því“ að fela pen­inga eða svíkja undan sköttum að gera hreint fyrir sínum dyrum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár