Alma: Tækifærið er núna

Hóp­sýk­ingar munu halda áfram að koma upp hér á landi. „Við verðum að vera undir það búin að horfa upp á þetta næstu mán­uði alla vega,“ segir sótt­varna­læknir. Land­læknir sagði að núna væri tæki­færið til að kveða niður það smit sem hér er í gangi.

Alma Möller, landlæknir.
Alma Möller, land­læknir. Mynd: Lögreglan

Hóp­sýk­ingar munu halda áfram að koma upp hér á landi. „Við verðum að vera undir það búin að horfa upp á þetta næstu mán­uði alla vega,“ segir sótt­varna­læknir. Land­læknir sagði að núna væri tæki­færið til að kveða niður það smit sem hér er í gangi.

Þjóðin má gera ráð fyrir því að við­hafa þurfi sótt­varna­ráð­staf­anir á borð við tveggja metra reglu næstu vikur og mán­uði. „Ég held að það sé algjör­lega ljóst að ef við ætlum að halda veirunni hér í lág­marki þá munum við á næstu vikum og mán­uðum sjá hóp­sýk­ingar sem við munum þurfa að eiga við,“ sagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna og land­læknis í dag. „Við munum þurfa sífellt að herða og slaka á þessum reglum – ef við ætlum að koma í veg fyrir útbreiddan far­aldur inn­an­lands. Þannig að við verðum að vera undir það búin að horfa upp á þetta næstu mán­uði alla vega.“

[adspot]

Alma Möller land­læknir minnti á mik­il­vægi þess að koma upp­lýs­ingum um far­ald­ur­inn til ungs fólks sem væri meiri­hluti þeirra sem hefðu smit­ast síð­ustu daga. „Tæki­færið er núna til að kveða niður það smit sem er í gangi. Þannig að við verðum að taka okkur á í ein­stak­lings­bundnum smit­vörnum, tveggja metra regl­unni og þessum aðgerðum sem við höfum sett á. Við bara verðum að fylgja því.“

[links]Á fund­inum var spurt sér­stak­lega um skóla­starfið sem sam­kvæmt venju á að byrja eftir nokkra daga. Þórólfur sagði sótt­varna­yf­ir­völd þegar hafa fundað með skóla­yf­ir­völdum. „Skól­arnir, öll fyr­ir­tæki og fleiri, eiga í raun og veru að hafa reynslu frá því í vor hvernig eigi að bregð­ast við.“

Hann benti á að það þurfi ekki allir að fá ein­stak­lings­bundnar leið­bein­ingar um það hvernig megi útfæra við­kom­andi starf­semi. „Regl­urnar eru þannig að við erum með 100 manna hámark og við erum með tveggja metra regl­una og svo ákveðnar und­an­tekn­ingar um grímur. Þannig að það þurfa allir að máta sig inn í þetta.“

Þórólfur ítrek­aði að börn væru miklu síður en full­orðnir að dreifa smiti og þess vegna þyrfti ekki að hafa jafn­miklar tak­mark­anir hvað þau varð­aði.

Spurður hvort að til greina kæmi að hafa grímu­skyldu í fram­halds- og háskólum í haust í stað tveggja metra regl­unnar svar­aði Þórólfur: „Ég held að menn eigi fyrst og fremst að við­halda tveggja metra regl­unni og leita allra leiða til þess. Gríman er meira hugsuð í tíma­bundnar aðstæður þar sem ein­stak­lingar eru ekki til lengri tíma. Það væri ekki ráð­legt að láta alla nota grímur allan dag­inn við sín störf.“ Hann ítrek­aði að grímur geti veitt falskt öryggi.

Á fund­inum var spurt hvort heil­brigð­is­yf­ir­völd hefðu áhyggjur af því að fólk væri að hamstra grímur þar sem dæmi væru um að þær væru upp­seldar í versl­unum. Alma minnti á að ekki væri mælt með almennri grímunotkun á almanna­færi, „heldur aðeins í aðstæðum þar sem ekki er hægt að tryggja tveggja metra reglu í lengri tíma. Við höfum talað um ferjur og flug­vélar og síðan þjón­ustu þar sem er mikil nánd.“

Hún sagði þá hættu fyrir hendi að fólk hamstr­aði grímur og not­aði þær svo þegar þess þyrfti ekki. Alma ítrek­aði að þær aðgerðir sem heil­brigð­is­yf­ir­völd hafa sett og biðja um að sé fram­fylgt byggja á trausti. „Það er aldrei hægt að setja reglur um allt. Við sýnum fólki traust og við treystum á að það sýni skyn­semi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár