Ekki nóg að setja á samkomubönn til að verjast veirunni

Ekki er nóg að banna fólki að fara út, loka veit­inga­húsum og skólum. Slíkum aðgerðum verða að fylgja umfangs­miklar lýð­heilsu­varnir. Annars gæti allt farið á versta veg á ný. Nauð­syn­legt er að finna smit­aða, ein­angra og rekja smit.

Auðar götur munu einn daginn fyllast á ný. Og þá gæti allt farið aftur á versta veg.
Auðar götur munu einn dag­inn fyll­ast á ný. Og þá gæti allt farið aftur á versta veg. Mynd: EPA

„Það sem við verðum að ein­beita okkur að er að finna þá sem eru veikir, þá sem eru smit­aðir og ein­angra þá, finna þá [sem smit­aðir] hafa verið í sam­skiptum við og ein­angra þá.“

Þetta segir Mike Ryan, sér­fræð­ingur hjá Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­un­inni. Hann segir ekki nóg að stjórn­völd loki ein­fald­lega sam­fé­lögum sínum í bar­átt­unni gegn kór­ónu­veirunni. Til þurfi einnig að koma lýð­heilsu­varnir til að koma í veg fyrir að veiran nái sér aftur á strik síðar meir. Hætta sé á að það ger­ist þegar sam­komu­bönnum og öðrum tak­mörk­unum verður aflétt.

Mörg lönd víða um heim hafa síð­ustu daga gripið til sam­komu­banna, útgöngu­banna og marg­vís­legra ann­arra tak­markanna. Versl­anir eru lok­aðar, barir og veit­inga­hús einnig og sömu­leiðis skólar í mörgum löndum.

En Ryan segir það alls ekki nóg. Því verði sam­hliða að fylgja umfangs­mikil skimun og smitrakn­ing. Tók hann Kína, Singapúr og Suður-Kóreu sem dæmi. Þar voru sett á ferða­bönn og fleira en á sama tíma var ski­mað í stórum stíl og allra leiða leitað til að hafa uppi á þeim sem mögu­lega voru smit­aðir. Þetta er að mati Ryan leiðin sem Evr­ópu­þjóðir ættu að fylgja nú þegar miðju heims­far­ald­urs­ins er nú þar að finna.

Í takti við aðgerðir á Íslandi

Þessar aðgerðir, sem Asíu­löndin gripu til strax í upp­hafi árs, eru nokkuð sam­bæri­legar þeim sem not­aðar hafa verði hér á landi. Leið­ar­stef íslenskra heil­brigð­is­yf­ir­valda er að greina snemma, ein­angra og beita sótt­kví. Þá hefur sér­stakt smitrakn­ing­arteymi, sem lög­reglu­menn og heil­brigð­is­starfs­fólk koma að, unnið að því að rekja hvert ein­asta smit.

[links]Íslensk erfða­grein­ing hefur í nokkra daga ski­mað fyrir veirunni meðal almenn­ings til að kanna hvort að sam­fé­lags­smit sé að eiga sér stað, þ.e. hvort að veiran hafi búið um sig í sam­fé­lag­inu án þess að við vitum af því.

Í síð­ustu viku var svo sett á sam­komu­bann á Íslandi sem er enn eitt tæki sem stjórn­völd geta beitt til að hefta útbreiðslu. Til stendur að herða enn frekar á því frá og með mið­nætti á morgun, mánu­dag.

Far­ald­ur­inn er nú veru­lega að sækja í sig veðrið á Spáni og neyð­ar­á­stand sem þar er í gildi hefur verið fram­lengt um tvær vikur til við­bótar. Á meðan það er í gildi mega Spán­verjar ekki fara út af heim­ilum sínum nema að brýna nauð­syn beri til. Þar hafa nú 1.720 dáið og stað­fest smit eru yfir 28 þús­und.

Í gær lést Lorenzo Sanz, fyrr­ver­andi for­seti knatt­spyrnu­fé­lags­ins Real Madrid, úr COVID-19. Hann var 76 ára gam­all. Madrid er miðja far­ald­urs­ins á Spáni og þar hafa flest smit greinst og yfir 800 lát­ist vegna veirunnar.

Staðan er nokkuð önnur í Tékk­landi í augna­blik­inu. Þar segja opin­berar tölur að 1.047 smit hafi greinst úr tæp­lega 15.600 sýnum og að sex sjúk­lingar hafi náð sér af COVID-19. Enginn er enn tal­inn hafa lát­ist úr veiru­sýk­ing­unni.

Að minnsta kosti átta erfiðar vikur fyrir höndum

Belgísk yfir­völd telja að þar í landi verði hámarki far­ald­urs­ins senn náð. Enn séu þó erf­iðar átta vikur framundan. Í land­inu, sem er mið­stöð ýmissa alþjóða­stofn­ana, búa um tíu millj­ónir manna. Þar hefur stað­festum smitum og dauðs­föllum af völdum veirunnar fjölgað hratt síð­ustu daga. Í dag hafa greinst 3.400 smit og 75 dauðs­föll eru rakin til veirunnar. Um helg­ina óku lög­reglu­bílar um götur borg­ar­innar og hvatti lög­reglan fólk til að vera inni hjá sér og halda fjar­lægð sín á milli.

Í Frakk­landi hafa greinst um 15.000 smit og dauðs­föll eru þegar orðin mörg eða 562.

Miklar tak­mark­anir hafa verið settar á mörg landa­mæri í Evrópu og víðar og ónauð­syn­legum ferða­lögum settar þröngar skorður.

Í Evrópu er ástandið lang­verst á Ítalíu og þar hefur her­inn verið feng­inn til að tryggja að fólk haldi útgöngu­bann. Á einum sól­ar­hring, frá föstu­degi til laug­ar­dags, lét­ust 793 sem þýðir að aðeins á fjórum dögum dóu yfir 2.300 manns í land­inu vegna veirunnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár