Salan á eignarhlutum í Landsvirkjun var „algjört hneyksli“

Ef Reykja­vík­ur­borg ætti enn 44,5 pró­senta hlut sinn í Lands­virkjun hefði borgin fyrir skatt fengið sex til sjö millj­arða króna í arð fyrir síð­asta ár. Salan var „ algjört hneyksli“ segir borg­ar­stjóri.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur.
Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri Reykja­víkur. Mynd: Bára Huld Beck

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri segir að rúm­lega tvö­földun hagn­aðar Lands­virkj­unar milli ára und­ir­striki að salan á eign­ar­hlutum Reykja­vík­ur­borgar og Akur­eyr­ar­bæjar í fyr­ir­tæk­inu árið 2006 hafi verið „algjört hneyksli“. Borgin fékk ríf­lega 27 millj­arða króna fyrir söl­una árið 2006 og Akur­eyr­ar­bær rúm­lega þrjá millj­arða. Greiðsl­urnar voru í formi líf­eyr­is­skuld­bind­inga.

Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu í dag. Ef Reykja­vík­ur­borg ætti enn hlut sinn hefði hún fengið fyrir skatt 6-7 millj­arða í arð fyrir síð­asta ár og Akur­eyr­ar­bær 750 millj­ónir króna. „Sala meiri­hluta Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks á 46 pró­senta hluta Reykja­vík­ur­borgar í Lands­virkjun var algert hneyksli. Verðið var allt of lágt,“ segir Dagur í Frétta­blað­inu í dag. „Borgin fékk innan við 30 millj­arða í sinn hlut fyrir Lands­virkjun á sínum tíma sem er mörg hund­ruð millj­arða virði.“

[adspot]

Samkvæmt árs­reikn­ingi Lands­virkj­unar 2021 nam hagn­aður fyrir óinn­leysta fjár­magnsliði tæpum 30 millj­örðum króna og er lagt til að greiddir verði 15 millj­arðar í arð vegna afkomu árs­ins. Dagur segir söl­una „eitt versta dæmið og sann­ar­lega það stærsta um fjár­mála­af­glöp á sveit­ar­stjórn­ar­stigi á Íslandi“. Það sé skylda Sjálf­stæð­is­flokks­ins að gera málið „almenni­lega upp“ og biðj­ast afsök­unar.

[links]Eini full­trú­inn í bæj­ar­stjórn Akur­eyr­ar­bæjar sem greiddi atkvæði gegn söl­unni á sínum tíma, Oddur Helgi Hall­dórs­son, odd­viti L-list­ans, segir við Frétta­blaðið að í ljósi þeirra tekna sem fyr­ir­séðar voru vegna Kára­hnjúka­virkj­unar hefðu „við­vör­un­ar­bjöllur átt að hringja“.

Er eign­ar­hlutur Akur­eyr­ar­bæjar og Reykja­víkur var seldur var Vil­hjálmur Þ. Vil­hjálms­son borg­ar­stjóri í Reykja­vík og Kristján Þór Júl­í­us­son bæj­ar­stjóri á Akureyri. „Þetta eru dýr­ustu mis­tök í stjórnun Akur­eyr­ar­bæjar frá upp­hafi,“ hefur Frétta­blaðið eftir Oddi Helga.

Á fundi borg­ar­ráðs í nóv­em­ber árið 2006 var hart tek­ist á um söl­una. Samn­ingur um kaup rík­is­ins á hlut Reykja­vík­ur­borgar í Lands­virkjun var lagður fram til sam­þykktar. Full­trúar Sam­fylk­ing­ar­innar, Oddný Sturlu­dóttir og Dagur B. Egg­erts­son, lögðu til að samn­ing­ur­inn yrði tek­inn upp en sú til­laga var felld með fjórum atkvæðum Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks gegn þremur atkvæðum Vinstri grænna og Sam­fylk­ingar.

Í bókun Oddnýjar og Dags sagði að illa hefði verið haldið á hags­munum Reykja­vík­ur­borgar og borg­ar­búa í við­ræðum við ríkið. Verðið sem feng­ist fyrir fyr­ir­tækið væri fjarri því að vera ásætt­an­legt, greiðslu­formið vont og fyr­ir­varar um einka­væð­ingu héldu ekki. Svo sagði: „Borg­ar­ráðs­full­trúar Sam­fylk­ing­ar­innar ítreka þá afstöðu að Reykja­vík­ur­borg geti ekki til fram­tíðar verið eig­andi að meg­in­hluta helstu orku­fyr­ir­tækja lands­ins. Þess vegna var sala Lands­virkj­unar sett í form­legt ferli á síð­asta kjör­tíma­bili.“ Þórólfur Árnason og Steinunn Valdís Ósk­ars­dóttir voru borg­ar­stjórar frá 2003 og fram á mitt ár 2006.

Þær við­ræður hefðu hins vegar strandað vegna „óábyrgra yfir­lýs­inga“ um einka­væð­ingu fyr­ir­tæk­is­ins og hins vegar vegna þess að ríki og borg hafi ekki náð saman um verð, sögðu borg­ar­ráðs­full­trú­arnir Dagur og Oddný.

Borg­ar­ráðs­full­trúi Vinstri grænna, Svandís Svav­ars­dóttir, núver­andi mat­væla­ráð­herra, lét bóka að hún tæki undir til­lögu Sam­fylk­ingar þess efnis að samn­ingar um söl­una yrðu teknir upp. Sagði hún þá stjórn­un­ar­hætti sem end­ur­spegl­uð­ust í samn­ing­unum ámæl­is­verða. „Árétt­aðar eru þær skoð­anir Vinstri grænna að sala í því póli­tíska umhverfi sem nú ríkir er ekki í þágu almanna­hags­muna þar sem fyr­ir­varar um einka­væð­ingu halda ekki. Rík­is­stjórn Íslands hefur um ára­bil gengið erinda mark­aðs­sjón­ar­miða fremur en sam­fé­lags­ins alls og er full ástæða til að ætla að slík sjón­ar­mið verði ofan á varð­andi þróun orku­geirans. Vinstri græn munu áfram standa vörð um hags­muni almenn­ings í þessu máli sem öðrum hvort sem er á vett­vangi sveit­ar­fé­laga eða ríkis,“ sagði Svandís í bókun sinni.

Meiri­hluti Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks sam­þykkti svo sölu á hlut borg­ar­innar í Lands­virkjun á fundi borg­ar­stjórnar 21. nóv­em­ber 2006. Full­trúar Sam­fylk­ingar, Vinstri grænna og Frjáls­lyndra greiddu atkvæði gegn söl­unni. „Með sam­þykkt borg­ar­stjórnar í dag er stigið skrefi nær þeim mark­miðum stjórn­valda, með Sjálf­stæð­is­flokk­inn í far­ar­broddi, að einka­væða Lands­virkjun,“ sagði í bókun full­trúa VG.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár