VR og Jón Þór stefna íslenska ríkinu vegna launahækkunar alþingismanna og ráðherra

Stjórn VR, ásamt Jóni Þór Ólafs­syni, hefur ákveðið að stefna íslenska rík­inu vegna ákvörð­unar kjara­ráðs um gríð­ar­lega hækkun á launum alþing­is­manna og ráð­herra á síð­asta ári.

Jón Þór Ólafsson, þingmaður Píratar, hefur stefnt íslenska ríkinu ásamt VR.
Jón Þór Ólafsson, þing­maður Píratar, hefur stefnt íslenska rík­inu ásamt VR. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Stjórn VR, ásamt Jóni Þór Ólafs­syni alþing­is­manni, hefur ákveðið að stefna íslenska rík­inu vegna ákvörð­unar kjara­ráðs um hækkun á launum alþing­is­manna og ráð­herra á síð­asta ári.

[links]Í til­kynn­ingu segir að VR telji nóg komið af aðgerð­ar­leysi stjórn­valda og hefur því ákveðið að láta reyna á málið fyrir dóm­stólum. Hækkun alþing­is­manna og ráð­herra, sem jafn­gildir 36-44 pró­sent hækk­unar launa, sé úr öllum takti við almennar hækk­anir á vinnu­mark­aði. „Þess er kraf­ist að ákvörð­unin sem stefnir stöð­ug­leika á vinnu­mark­aði í bráða hættu, og hefur þannig bein áhrif á hags­muni félags­manna VR, verði taf­ar­laust ógilt með dómi.“

Hér má lesa stefnu VR í heild sinni.

Kjara­ráð ákvað með úrskurði sem opin­ber­aður var á kjör­dag­inn 28. októ­ber 2016, að hækka laun for­seta Íslands, þing­far­ar­kaup alþing­is­manna og laun ráð­herra. Hækk­unin tekur gildi strax um mán­aða­mót­in.

[adspot]

Sam­kvæmt úrskurði kjara­ráðs urðu laun for­seta Íslands 2.985.000 krónur á mán­uði, þing­far­ar­kaup alþing­is­manna 1.101.194 krónur á mán­uði, laun for­sæt­is­ráð­herra að með­töldu þing­far­ar­kaupi 2.021.825 krónur á mán­uði og laun ann­arra ráð­herra að með­töldu þing­far­ar­kaupi 1.826.273 krónur á mán­uði. Laun for­sæt­is­ráð­herra voru áður tæp­lega 1,5 millj­ónir en laun for­seta voru tæpar 2,5 millj­ón­ir.

Í úrskurð­ar­orðum sagði meðal ann­ars að mik­il­vægt sé að æðstu emb­ætt­is­menn séu fjár­hags­lega sjálf­stæð­ir. „Afar mik­il­vægt er að þjóð­kjörnir full­trúar séu fjár­hags­lega sjálf­stæðir og eng­um háð­ir. Störf þeirra eiga sér ekki skýra hlið­stæðu á vinnu­mark­aði enda eru þeir kjörnir til­ ­starfa í almennum kosn­ingum og þurfa að end­ur­nýja umboð sitt að minnsta kosti á fjög­urra ára fresti. For­seta Íslands, ráð­herrum og þing­mönnum hafa ekki verið ákvarð­að­ar­ ­sér­stakar greiðslur fyrir vinnu utan hefð­bund­ins dag­vinnu­tíma, þrátt fyrir að störf þeirra fari að hluta til fram utan hans,“ segir í úrskurð­in­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár