Almennt atvinnuleysi á Íslandi mældist 9,9 prósent í október og Vinnumálastofnun spáir því að það muni aukast í nóvember og desember vegna þeirrar erfiðu stöðu sem nú er á vinnumarkaði sökum COVID-19. Spáin gerir ráð fyrir að almenna atvinnuleysið verði 11,9 prósent í lok þessa mánaðar og að það verði komið upp í 11,3 prósent í lok desember.
Þetta kemur fram í nýrri mánaðaskýrslu Vinnumálastofnunar.
Það þýðir að almennt atvinnuleysi, þ.e. atvinnuleysi án tillits til þeirra sem eru að nýta hlutabótaleiðina, var meira í lok síðasta mánaðar en þegar það var sem mest eftir bankahrunið. Þá náði almenna atvinnuleysið hámarki í febrúar og mars 2009 þegar það mældist 9,3 prósent.
[adspot]Alþýðusamband Íslands (ASÍ) birti í gær hagspá sína fyrir tímabilið 2020-2022. Þar er spáð að atvinnuleysi haldist yfir 6,9 prósent út tímabilið þrátt fyrir spá um hóflegan 1,8 prósent hagvöxt á næsta ári. Spá ASÍ gerði ráð fyrir að atvinnuleysi myndi verða 8,6 prósent á næsta ári.
Rúmlega 40 prósent atvinnulausra erlendir ríkisborgarar
Alls voru 20.252 atvinnulausir í almenna bótakerfinu um síðustu mánaðamót og 4.759 á hlutabótaleiðinni. Samanlagt atvinnuleysi mældist 11,1 prósent og spá Vinnumálastofnunar gerir ráð fyrir að það muni hækka í 12,2 prósent í lok árs. Þar er reiknað með að fækka muni á hlutabótaleiðinni og að hún muni vigta 0,9 prósentustig í heildaratvinnuleysið en að almennt atvinnuleysi verði, líkt og áður sagði 11,3 prósent.
[links]Atvinnuleysið er áfram mest á Suðurnesjum þar sem það mældist í heild 21,2 prósent í október. Almenna atvinnuleysið þar mældist 20,1 prósent en 1,1 prósentustig bættist við vegna hlutabótaleiðarinnar.
Atvinnuleysi á meðal erlendra ríkisborgara heldur áfram að aukast. Vinnumálastofnun gerir ráð fyrir því að heildaratvinnuleysi á meðal þeirra hafi verið um 25 prósent í október og almenna atvinnuleysið um 22 prósent. Það þýðir að hefðbundnir atvinnuleitendur, þ.e. þeir sem voru í almenna bótakerfinu en ekki á hlutabótaleiðinni, í hópi erlendra ríkisborgara voru 8.204 talsins í lok síðasta mánaðar. Því eru 41 prósent allra atvinnulausra á landinu erlendir ríkisborgarar. Í lok september síðastliðins voru erlendir ríkisborgarar sem búa hérlendis 51.120 talsins, eða tæplega 14 prósent íbúa landsins.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir