Opnari umræða tók karlana úr sambandi

Mikil breyt­ing hefur orðið í þróun ófrjó­sem­is­að­gerða á land­inu þegar litið er til kynj­anna. Fyrir 20 árum fóru um 600 konur í aðgerð­ina ár hvert og um 30 karlar. Nú fara mun fleiri karlar en konur í aðgerð­ina. Opnari umræða og neyð­ar­pillan talin ástæðan.

Mun fleiri karlar en konur fara í ófrjó­sem­is­að­gerðir hér á landi á hverju ári. Samkvæmt nýj­ustu tölum frá Land­lækn­is­emb­ætt­inu fóru fjórum sinnum fleiri karlar í ófrjó­sem­is­að­gerð árið 2014 heldur en konur; eða 463 karlar og 121 kona.

Þetta er mikil breyt­ing frá því sem áður var. Sé litið á þróun síð­ustu ára­tuga þá fóru marg­falt fleiri konur í ófrjó­sem­is­að­gerðir heldur en karlar. Árið 1983 lögð­ust 651 kona undir hníf­inn og ein­ungis 28 karlar. Sjö árum síðar, 1990, voru hlut­föllin svipuð; 543 konur og 28 karlar, sami fjöldi og 1983.

Það var svo upp úr alda­mótum sem kynja­hlut­föllin tóku að jafn­ast. Árið 2005 fóru nær jafn margar konur og karlar í aðgerð­ina, 280 konur og 285 karlar.

Í góð­ær­inu hélt þessi þróun áfram og varð skýr­ari eftir efna­hags­hrunið 2008. Fjöldi karla sem fór í ófrjó­sem­is­að­gerðir fór stíg­vax­andi og sífellt færri konur fóru í aðgerð­ina.

Opnari umræða meðal karla jók fjöldann

Þor­steinn Gíslason, þvag­færa­skurð­læknir á Land­spít­al­anum og Lækna­stöð­inni Glæsibæ, segir fjölgun ófrjó­sem­is­að­gerða meðal karla, sem er oft kölluð „herra­klipp­ing”, skýr­ast af opn­ari umræðu og minnk­andi for­dómum.

„Menn höfðu miklar rang­hug­myndir um þessar aðgerðir, til dæmis varð­andi kyn­líf. Þeir eru ófeimn­ari að ræða þetta núna sín á milli og eru almennt fróð­ari um þetta,” segir hann.

Engar breyt­ingar hafa orðið á eðli aðgerð­anna á síð­ustu 30 árum að sögn Þor­steins, þó að tækni­lega séu þær enn örugg­ari og fljót­legri í dag en áður.

„En það er enn jafn erfitt að snúa ófrjó­sem­is­að­gerð­inni til baka og áður,” segir hann. „Þegar maður ræðir við menn í þessum hug­leið­ingum er mik­il­vægt að gera þeim grein fyrir því að það er erfitt að snúa þessu við, en það er hægt. Maður þarf að vera mjög ákveð­inn í þessu og mak­inn að sama skapi. Þetta er síð­asta stigið í getn­að­ar­vörn.”

Ófrjó­sem­is­að­gerðir eru algengastar hjá báðum kynjum þegar fólk er á ald­urs­bil­inu 35 til 44 ára.

Neyðarpillan breytti miklu

Kostn­aður við ófrjó­sem­is­að­gerðir hjá körlum er að sögn Þor­steins í kring um 39 þús­und krónur, sem Trygg­inga­stofnun greiðir að fullu. Aðgerðin sjálf er mun ein­fald­ari hjá körlum heldur en konum og er fram­kvæmd með deyf­ingu og þeir geta farið heim sam­dæg­urs.

Svæfing er nauð­syn­leg þegar kemur að konum og skorið er í gegn um kvið­ar­holið. Eggja­leið­urum er lokað til að koma í veg fyrir að egg og sáð­frumur mæt­ist. Konur hafa blæð­ingar eins og áður. Fækkun ófrjó­sem­is­að­gerða meðal kvenna má meðal ann­ars rekja til til­komu neyð­ar­getn­að­ar­varn­arpill­unnar svo­nefndrar til lands­ins árið 1998, sem geta verið teknar eftir sam­farir, sem og öfl­ugs fræðslu­starfs og opn­ari umræðu, sam­kvæmt Land­lækn­is­emb­ætt­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár