Ríkisstarfsmennirnir sem fengu gefins milljarða

Í vik­unni var greint frá því að 832 starfs­menn Lands­bank­ans hefðu selt hluti sína í honum fyrir 1,4 millj­arða króna. Hlutina fengu starfs­menn­irnir gef­ins árið 2013 sem verð­laun fyrir að rukka inn tvö lána­söfn, Pegasus og Pony.

Greint var frá því í Mark­aðnum í vik­unni að 832 núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­menn Lands­bank­ans, sem fengu hluta­bréf í bank­anum gef­ins á árinu 2013, hefðu selt bréf sín fyrir alls 1.391 milljón króna. Bréfin seldi hóp­ur­inn bank­anum sjálfum í kjöl­far þess að banka­ráð hans hóf að kaupa eigin bréf í sam­ræmi við end­ur­kaupa­á­ætlun í sept­em­ber 2016. Samkvæmt áætl­un­inni bauðst bank­inn til að kaupa allt að tveggja pró­senta hlut í sjálfum sér í þremur lotum.

Íslenska ríkið á 98,2 pró­sent í bank­anum og því ljóst að til­boðið var fyrst og síð­ast til þeirra starfs­manna sem höfðu fengið hlut í bank­anum gef­ins. Ljóst er á árs­reikn­ingi Lands­bank­ans fyrir árið 2016 að ansi margir ákváðu að selja hlut­inn og losa þar með út féð. Alls fækk­aði hlut­höfum Lands­bank­ans um 832 fram að lokum síð­asta árs. Hver starfs­maður fékk að með­al­tali 1,7 millj­ónir króna við söl­una. Fram­kvæmda­stjórar bank­ans seldu ekki. Virði þess hluta­fjár sem aðrir hlut­hafar en íslenska ríkið – fyrr­ver­andi og núver­andi starfs­menn og 430 fyrrum stofn­fjár­hafar í tveimur spari­sjóðum – áttu enn um síð­ustu ára­mót var um 844 millj­ónir króna miðað við með­al­verðið sem greitt var fyrir hluti á árinu 2016. Hlut­hafar bank­ans seldu einn­ing bréf í Lands­bank­anum í febr­úar síð­ast­liðum, í síð­ustu end­ur­kaupa­lot­unni, fyrir rétt rúm­lega 90 millj­ónir króna.

Kjarninn greindi frá því um miðjan mars að ekki fáist upp­lýs­ingum um hvort Steinþór Pálsson, fyrr­ver­andi banka­stjóri Lands­bank­ans, hafi selt sína hluti eða ekki. Hann var tíundi stærsti hlut­hafi Lands­bank­ans sam­kvæmt árs­reikn­ingi 2016 með 345.228 hluti í bank­anum. Miðað við með­al­verð í end­ur­kaupum Lands­bank­ans á hlutum er virði þess hlutar um 3,6 millj­ónir króna. Stein­þóri var sagt upp störfum í nóv­em­ber 2016 vegna Borg­un­ar­máls­ins svo­kall­aða.

Afleiðing af uppgjöri við kröfhafa

Þegar íslenska ríkið bjó til nýja banka í októ­ber 2008 á grund­velli neyð­ar­lag­anna voru inn­lendar inn­stæður færðar með handafli úr þrota­búum föllnu bank­anna yfir í þá. Sömu­leiðis voru teknar eignir til að mæta þeim inn­stæðum, gegn vil­yrði um að sann­virði yrði greitt fyrir þær eignir þegar virði þeirra lægi fyrir, sem það sann­ar­lega gerði ekki í auga storms­ins haustið 2008.

Árið 2009 var svo samið við kröfu­hafa gömlu bank­anna um hvernig þessi „skuld“ yrði gerð upp. Í til­felli Íslands­banka og Arion banka var það gert með því að kröfu­haf­arnir eign­uð­ust bank­ana að mestu. Staðan var hins vegar öðru­vísi hjá Lands­bank­anum. Þar var kröfu­hafa­hóp­ur­inn öðru­vísi sam­settur, líkur á almennum end­ur­heimtum taldar minni, auk þess sem þáver­andi fjár­mála­ráð­herra, Stein­grímur J. Sig­fús­son, hafði engan áhuga að láta stærsta end­ur­reista bank­ann frá sér. Ríkið skyldi eiga hann áfram. Það var póli­tísk ákvörðun rík­is­stjórn­ar­innar sem sat að völdum.

Sam­komu­lagið sem gert var með Lands­bank­ann og var und­ir­ritað í des­em­ber 2009 var þannig að ríkið hélt 81,3 pró­senta hlut í bank­anum en kröfu­haf­arnir fengu 12,7 pró­sent. Samhliða gaf Lands­bank­inn hins vegar út tvö skulda­bréf. Annað, sem var upp á 260 millj­arða króna í erlendri mynt, átti að greið­ast til baka fyrir árs­lok 2018 vegna yfir­tek­inna eigna. Hitt, sem var svo­kallað skil­yrt skulda­bréf, var bundið við virð­is­þróun eigna í tveimur eigna­söfnum, Pegasus og Pony. Annað var safn lána til stærri fyr­ir­tækja og hitt til smærri fyr­ir­tækja.

Lána­söfnin voru færð yfir í nýja Lands­bank­ann á lágu verði. Ef virð­is­aukn­ing ætti sér stað átti nýi Lands­bank­inn að fá 15 pró­sent hennar en 85 pró­sent áttu að renna til þrota­bús gamla bank­ans. Sá hluti sem átti að fara til þrota­bús­ins átti að greið­ast með skil­yrta skulda­bréf­inu. Ef virði þess næði 92 millj­örðum króna fyrir árs­lok 2012 átti þrota­búið auk þess að afhenda eign­ar­hlut sinn í nýja bank­anum til rík­is­ins og nýja bank­ans.

Skemmst er frá því að segja að eign­irnar voru mun verð­meiri en reiknað var með í upp­hafi. Í apríl 2013 var skil­yrt skulda­bréf upp á 92 millj­arða króna gefið út til þrota­bús­ins og um 17 pró­senta hlutur var í stað­inn afhentur íslenska rík­inu, sem átti þar með um 98 pró­senta hlut í nýja Lands­bank­anum. Það sem upp á vantar, tveggja pró­senta hlutur, rann til Lands­bank­ans

til að mynda stofn fyrir nokk­urs­konar kaupauka­kerfi fyrir starfs­menn hans.

Í yfir­lýs­ingu sem bank­inn sendi frá sér vegna kaupauka­kerf­is­ins snemma árs 2010 sagði að af „frum­kvæði kröfu­hafa var gert sam­komu­lag á milli skila­nefndar Lands­banka Íslands hf. (gamla bank­ans), fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins f.h. rík­is­sjóðs og Lands­bank­ans (NBI hf.) um að hluti hluta­bréfa í NBI hf. sem skila­nefndin heldur nú á, myndi stofn fyrir kaupauka­kerfi sem næði til allra starfs­manna“.

Rukkunarverðlaun sem Steingrímur sættist á

Það klór­uðu ansi margir sér í höfð­inu yfir þess­ari ákvörðun. Var vinstri stjórnin, sem hafði gagn­rýnt nýfrjáls­hyggju og hömlu­leysi fyr­ir­hrunsár­anna linnu­laust að gefa starfs­mönnum Lands­bank­ans, rík­is­starfs­mönnum, eign sem metin var á millj­arða króna í gegnum bónus­kerfi?

Já, það var sann­ar­lega þannig. Og kaupauka­kerfið átti að verða verð­laun fyrir starfs­fólk bank­ans ef það næði að inn­heimta lánin sem voru inni í Pegasus og Pony söfn­unum með meiri ávinn­ingi fyrir þrota­búið. Eins konar rukk­un­ar­verð­laun.

Líkt og áður sagði var sam­komu­lagið var gert þegar Stein­grímur J. Sig­fús­son var fjár­mála­ráð­herra. Hann fjallar um það í bók sinni, Stein­grímur J. – Frá Hruni og heim, sem kom út árið 2013. Þar segir hann að í samn­inga­við­ræðum um upp­gjör milli gamla og nýja Lands­bank­ans hafi skila­nefnd hans, að kröfu kröfu­hafa bank­ans, hafi „heimtað að yfir­menn nýja bank­ans fengju ríku­lega bónusa í sinn hlut ef þeim gengi vel að hámarka verð­mæti eigna­safns­ins.“

Þetta sagði Stein­grímur að stjórn­völdum hafi þótt óásætt­an­legt og „draugur úr þeirri for­tíð sem við vildum síst af öllu snúa aftur til“. Málið hafi þó staðið í miklu stappi og tafið upp­gjörið. „Að lokum var sæst á þá leið að allir starfs­menn bank­ans skyldu þá njóta góðs af í til­teknum mæli, ef vel gengi, í formi þess að eign­ast minni­háttar hlut, nálægt tvö pró­sent, í bank­anum sem þeir skiptu á milli sín. Tregur féllst ég á þetta í þágu þess að klára samn­ing­anna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár