Upptaka af reiðisímtali Jóhannesar við eiginkonu hans birt gegn vilja hennar

Reið­isím­tal Jóhann­esar Stef­áns­sonar upp­ljóstr­ara við fyrr­ver­andi eig­in­konu hans hefur verið birt á Youtube. Fyrr­ver­andi eig­in­kona hans seg­ist ekki hafa birt mynd­bandið, en hafa deilt því með starfs­manni Samherja fyrir nokkrum árum.

Upptaka af reiðisímtali Jóhannesar við eiginkonu hans birt gegn vilja hennar
Jóhannes Stef­áns­son Reið­isím­tal hans til eig­in­konu sinnar hefur verið komið í dreif­ingu á net­inu gegn vilja hennar. Mynd: Davíð Þór

Símtal Jóhann­esar Stef­áns­sonar upp­ljóstr­ara við fyrr­ver­andi eig­in­konu hans, þar sem hann hótar henni og öðrum öllu illu, hefur verið birt á Youtube á nafn­lausum aðgangi.

Fyrr­ver­andi eig­in­kona Jóhann­esar, sem tók upp sam­talið, segir við Stundina að hún hafi ekki birt mynd­bandið og eng­inn á hennar vegum. Hún tók mynd­bandið árið 2017. Jóhannes hafi beðist afsök­unar á fram­komu sinni og reynt að bæta henni það upp. Hún sé ekki ósátt við Jóhannes í dag.

Hún hafi hins vegar deilt mynd­band­inu með Jóni Óttari Ólafs­syni, starfs­manni Samherja, árið 2017, og nokkrum öðrum.

Jóhannes segir í sam­tali við Stundina að hann hafi verið ölv­aður og örvinglaður þegar hann hringdi í eig­in­konu sína.

„Á þessu tíma­bili upp­lifði ég mig í mik­illi lífs­hættu. Ég var örvinglaður og tókst á við aðstæð­urnar með því að drekka áfengi. Ég sagði hluti sem ég hef ætíð séð eftir og hef geng­ist við því og beðið alla hlut­að­eig­andi aðila afsök­unar,“ segir Jóhannes.

„Ég sagði hluti sem ég hef ætíð séð eftir og hef geng­ist við því og beðið alla hlut­að­eig­andi aðila afsök­unar“

Fyrr­ver­andi eig­in­kona hans vildi ekki koma fram undir nafni, þar sem hún vildi ekki vera aðili að Sam­herj­a­mál­inu.

Jóhannes Stef­áns­son steig fram um miðjan nóv­em­ber og greindi frá mútu­greiðslum og stór­felldum aflands­við­skiptum Samherja í Afríku. Hann var fram­kvæmda­stjóri dótt­ur­fé­lags Samherja í Namibíu og kaus að afhjúpa starf­sem­ina með því að afhenda gögn um tölvu­pósta og milli­færslur til Wikileaks. Stundin hefur fjallað um málið í sam­starfi við Wikileaks, Rík­is­út­varpið, Al Jazeera og namibíska dag­blaðið Namibian.

Mynd­bandi komið í umferðFyrr­ver­andi eig­in­kona Jóhann­esar Stef­áns­sonar upp­ljóstr­ara segir mynd­band­inu af sam­tali þeirra tveggja hafa verið komið í umferð gegn vilja hennar. Þau hafi náð sáttum. Í með­fylgj­andi útgáfu mynd­bands­ins hafa nöfn aðstand­enda hennar verið afmáð.
Mynd­bandið birt án nafnaStundin birtir hér mynd­bandið af upp­töku á sam­tali Jóhann­esar Stef­áns­sonar við eig­in­konu hans, í útgáfu þar sem nöfn aðstand­enda hennar hafa verið fjar­lægð. Í annarri útgáfu á Youtube, sem birt var af óþekktum aðilum, eru nöfnin birt.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár