„Engu leyti gerð grein fyrir því“ hvers vegna Guðmundur Spartakus væri „ónefndi Íslendingurinn“

Guð­mundur Spar­takus Ómarsson vildi fá greiddar tíu millj­ónir króna frá blaða­manni vegna umfjöll­unar um hvarf Friðriks Krist­jáns­sonar, en þarf hins vegar að greiða 2,6 millj­ónir króna í máls­kostnað eftir að hafa tapað mál­inu í Hæsta­rétti. Áður hafði Rík­is­út­varpið ákveðið að greiða honum 2,5 millj­ónir króna.

„Engu leyti gerð grein fyrir því“ hvers vegna Guðmundur Spartakus væri „ónefndi Íslendingurinn“
Forsíða Stund­ar­innar Guð­mundur Spar­takus kærði Atla Má fyrir umfjöll­un­ina.

Hæsti­réttur vís­aði í morgun frá meið­yrða­máli Guð­mundar Spar­takusar Ómars­sonar gegn Atla Má Gylfa­syni, fyrr­ver­andi blaða­manni Stund­ar­innar. Er Guðmundi gert að greiða 2,6 millj­ónir króna í máls­kostnað.

Þar með lýkur síð­asta af þremur meið­yrða­málum sem Guð­mundur Spar­takus höfð­aði á hendur íslenskum fjöl­miðlum vegna umfjöll­unar um fréttir um hann í fjöl­miðum í Paragvæ og svo hvarf ann­ars Íslend­ings í land­inu, Friðriks Krist­jáns­sonar. Umfjöllun Stund­ar­innar var birt í des­em­ber 2016 og hefur mála­rekst­ur­inn því tekið um þrjú ár.

Sig­mundur Ernir Rún­ars­son, dag­skrár­stjóri sjón­varps­stöðv­ar­innar Hring­brautar, var sýkn­aður í Hæsta­rétti af kröfum Guð­mundar Spar­takusar í maí í fyrra. Rík­is­út­varpið ákvað hins vegar að greiða Guðmundi Spar­takusi 2,5 millj­ónir króna í bætur vegna sam­bæri­legrar umfjöll­unar um fréttir í parag­væsku dag­blaði um hann. Mál hans gegn Rík­is­út­varp­inu var þannig ekki leitt til lykta fyrir dóm­stólum.

Í apríl síð­ast­liðnum var Guð­mundur Spar­takus einnig fyrir dómi, þá vegna þess að hann var tal­inn hafa ekið bíl undir áhrifum áfengis og hótað lög­reglu­manni líf­láti á Gull­in­brú í Graf­ar­vogi í fyrra. Guð­mundur Spar­takus var dæmdur sekur í mál­inu.

Guð­mundur Spar­takus stefndi Atla Má og Stund­inni vegna umfjöll­unar í Stund­inni um hvarf Friðriks Krist­jáns­sonar í Paragvæ. Nafn Guð­mundar Spar­takusar kom fyrir í umfjöll­un­inni þar sem íslensk lög­reglu­yf­ir­völd reyndu mán­uðum saman að ná sam­bandi við hann vegna máls­ins. Guð­mundur Spar­takus vildi fá greiddar tíu millj­ónir króna frá Stund­inni og Atla Má.

Hæsti­réttur kemst að þess­ari nið­ur­stöðu þar sem Guð­mundur Spar­takus hafði ekki verið nafn­greindur í neinum þeirra ummæla sem kært var fyrir, heldur hafi verið talað um „ónefnda Íslend­ing­inn“ í sam­hengi við frá­sögn vitnis.

„Frágangi máls­gagna fyrir Hæsta­rétti var mjög ábóta­vant þannig að afar erfitt var að lesa hvað stóð í mörgum þeirra.“

„Í ummælum þeim sem til umfjöll­unar eru hér fyrir dómi var stefndi hvergi nafn­greindur en í hér­aðs­dóms­stefnu var að engu leyti gerð grein fyrir því hvernig ummæli í ein­stökum liðum fælu í sér meið­yrði í garð hans,“ segir í dómnum. „Þannig var því ekki lýst hvers vegna telja yrði að þeir sem lásu umræddar greinar og sáu eða hlýddu á frá­sagnir þar sem hin umstefndu ummæli komu fram gætu dregið þá ályktun að stefndi væri hinn ónefndi maður er valdið hefði dauða [Friðriks Krist­jáns­sonar].“

Þá vísar Hæsti­réttur til þess að vinnu­brögð lög­manns hafi verið „ámæl­is­verð“. „Það athug­ast að frá­gangi máls­gagna fyrir Hæsta­rétti var mjög ábóta­vant þannig að afar erfitt var að lesa hvað stóð í mörgum þeirra. Er það ámæl­is­vert,“ segir í lok dóms­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár