Eliza Reid ráðlagði forsvarskonum Lífs án ofbeldis

Konur í félags­skapnum kynntu for­seta­frúnni starf­semi félags­ins og sögðu reynslu­sögur af ofbeldi innan fjöl­skyldna. Þá lýstu þær hvernig þær telja að hið opin­bera hafi brugð­ist þeim.

Eliza Reid ráðlagði forsvarskonum Lífs án ofbeldis
Ræddu við for­seta­frúnna Tals­konur Lífs án ofbeldis áttu gagn­legan fund með Elizu Reid

Konur úr félags­skapnum Líf án ofbeldis fund­uðu með Elizu Reid for­seta­frú í dag og kynntu henni starf­semi félags­ins. Á fund­inum voru sagðar reynslu­sögur af ofbeldi innan fjöl­skyldna, sögur kvenna og sögur af því hvernig hið opin­bera kerfi hefur brugð­ist í þeim málum.

Líf án ofbeldis er hreyf­ing sem stofnuð var í sept­em­ber á þessu ári. Að félags­skapnum standa mæður sem hafa þurft að verja börnin sín gegn ofbeldi feðra og konur sem voru sem börn þving­aðar í umgengi við ofbeld­is­fulla feður sína, ásamt aðstand­endum þeirra. Félags­skap­ur­inn berst fyrir því að fundnar verði nýjar leiðir í umgengnis- og for­sjár­málum þar sem hags­munir barna eru tryggðir, þegar fyrir liggur að for­eldri hefur beitt börn ofbeldi.

Á fund­inum með Elizu greindu tals­konur félags­ins frá þeirri skoðun sinni hvernig kerf­is­bundið væri litið fram­hjá gögnum um ofbeldi gegn konum og börnum þegar úrskurðað væri í umgengn­is­málum. Þá lýstu þær einnig upp­lifun sinni af því að mæður séu sak­aðar um and­legt ofbeldi gegn börnum þeirra þegar þær hafa greint frá áhyggjum af ofbeldi í þeirra garð.

Þá sögðu upp­komin börn, sem beitt höfðu verið ofbeldi, frá því hver áhrif slíks eru á líðan þolenda og fjöl­skyldna þeirra. Þá var rætt um glufur í kerf­inu sem að ofbeld­is­menn noti til að við­halda ofbeldi eftir skilnað. Fund­ur­inn gekk að sögn kvenn­anna vel, tók Eliza frá­sögnum þeirra vel og gaf þeim góð ráð í fram­hald­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár