„Þurfum að fara varlega í vindorkuna rétt eins og annað“

Umhverfis- og auð­linda­ráð­herra sagði á þingi í dag að Íslend­ingar þyrftu að skoða vind­orku út frá þeim þáttum er snúa að nátt­úru og nátt­úru­vernd.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra.
Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, sagði á Alþingi í dag að hann teldi að Íslend­ingar þyrftu að fara var­lega í vind­ork­una rétt eins og annað. Þeir þyrftu að skoða hana út frá þeim þáttum sem snúa að nátt­úr­unni og nátt­úru­vernd­inni til þess að geta haft áfram það land sem þeir aug­lýsa – sem hent­aði vel fyrir ferða­þjón­ustu. Hann telur enn fremur að vind­orka sé eitt­hvað sem Íslend­ingar eigi að skoða eins og aðra orku­gjafa.

Bergþór Ólason, þing­maður Mið­flokks­ins, beindi fyr­ir­spurn til umhverf­is­ráð­herra í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma varð­andi nýt­ingu vind­orku. Hann benti á að Orku­stofnun hefði lagt til 43 virkj­un­ar­kosti til skoð­unar í tengslum við vinnu verk­efn­is­stjórnar um ramma­á­ætlun. 34 þeirra fjöll­uðu um vind­orku, það er vind­myllu­garða sem dreifast vítt og breitt um landið.

Þing­mað­ur­inn vís­aði í frétt Stöðvar 2 síðan í gær þar sem fram kom að eig­endur Hróð­nýj­ar­staða norðan Búð­ar­dals, sem áforma 24 vind­myllur í nafni Storm Orku, hefðu falið Skúla Thorodd­sen lög­manni að reka mál sitt en þeir telja vind­orku ekki falla undir lög um ramma­á­ætlun. Skúli sagði við frétta­stofu Stöðvar 2 það alls ekki rétt sem umhverf­is­ráðu­neytið héldi fram að vind­orka félli undir lögin.

„Það brýtur í bága við ýmis ákvæði Stjórn­ar­skrár­innar; um eign­ar­rétt, um atvinnu­frelsi, um skipu­lags­vald sveit­ar­fé­laga og um jafn­ræði,“ sagði hann en Skúli telur þessa réttaró­vissu valda skað­legum töfum á vind­orku­verk­efnum þar sem Skipu­lags­stofnun dragi lapp­irnar. Hann telur ríkið geta skapað sér bóta­skyldu og hefur ritað umhverf­is­ráð­herra and­mæla­bréf.

Bergþór sagði að lög­mað­ur­inn teldi umhverf­is­ráðu­neytið vaða í villu hvað þetta varð­aði og teldi enn fremur réttaró­viss­una, sem meðal ann­ars hverf­ist um ákvæði stjórn­ar­skrár um eign­ar­rétt og atvinnu­frelsi, um skipu­lags­vald sveit­ar­fé­laga og jafn­ræði, vera þeirrar gerðar að bóta­skylda gæti skap­ast á hendur rík­is­ins vegna þessa.

Hann spurði því Guðmund Inga hver afstaða hans væri til þess hvort nýt­ing vind­orku ætti heima undir lögum um ramma­á­ætlun.

Enn fremur hvort hann teldi að lög um umhverf­is­mat og skipu­lags­vald sveit­ar­fé­laga næði nægi­lega utan um þessi verk­efni og hvort hann teldi reglu­verk­inu ábóta­vant. „Má eiga von á útspili ráð­herra hvað breyt­ingar varðar og í hverju munu þær breyt­ingar helst fel­ast?“ spurði Bergþór.

Málefni vindorku yfir 10 MW heyra undir rammaáætlun

Guð­mundur Ingi svar­aði og sagði það vera mat umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyt­is­ins og atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins að mál­efni vind­orku heyri undir ramma­á­ætlun, það er allt sem væri yfir 10 MW.

„Fyrsta skiptið sem orku­nýt­ing­ar­kostir sem þessir voru teknir fyrir í ramma­á­ætlun var þegar verk­efn­is­stjórn 3. áfanga fjall­aði um eina tvo kosti, ann­ars vegar vind­orku­ver við Blöndu og hins vegar á haf­inu fyrir ofan Búrfell, þannig að það er alveg klárt í okkar huga að þetta heyrir þarna undir.“

Hvað varðar spurn­ingu Bergþórs um hvort skipu­lags­lög og mat á umhverf­is­á­hrifum væru nægj­an­leg til þess að takast á við þetta þá hefðu yfir­völd komið sér saman um að stórir orku­kostir, sem eru til umfjöll­unar hverju sinni í sam­fé­lag­inu, ættu að fara fyrir ramma­á­ætlun.

Umhverf­is­ráð­herra telur það vera mik­il­vægt að halda áfram á þeirri leið. „Það þýðir hins vegar ekki að það getur verið að mis­mun­andi leiðir henti fyrir mis­mun­andi orku­vinnslu­kosti. Það getur hentað betur að fara eina leið þegar kemur að vindi en aðra þegar kemur að vatni, það er þegar verið er að meta með hvaða hætti eigi að flokka þetta í svæði sem ber að vernda og svæði sem ber að nýta. Í því augna­miði erum við að skoða leiðir í ráðu­neyt­inu, og höfum verið að því í sam­vinnu við atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið og sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neytið, hvort við ættum að horfa til frek­ari útfærslu á því þegar kemur að vind­orkunni,“ sagði ráð­herr­ann.

Skoðað heildrænt yfir landið hvar þessir kostir ættu við

Bergþór kom þá aftur í pontu og sagði að áhuga­vert væri að heyra frekar „um þessar vanga­veltur ráð­herr­ans er snúa að nýt­ingu vind­orku. En bara til að ég átti mig almenni­lega á því þá er í raun­inni afstaða ráð­herra sú að verk­efni yfir 10 MW fari undir ramma­á­ætl­un­ina en verk­efni undir 10 MW séu þar utan.“

Jafn­framt væri áhuga­vert að heyra afstöðu ráð­herra til vind­myllu­garða og þess að nýta vind­orku með þeim hætti sem þar væri stundað á breiðum grunni. Hann spurði því Guðmund Inga hver afstaða hans væri til þess­ara svoköll­uðu vind­myllu­garða og hvort ráð­herra hugn­að­ist þetta vel sem fram­tíð­ar­orku­nýt­ing eða hefði hann efa­semdir um að þarna væri fetuð skyn­sam­leg leið.

Guð­mundur Ingi svar­aði og sagði að verið væri að skoða á milli þeirra þriggja ráðu­neyta sem hann nefndi áður hvort hægt væri að horfa til nýt­ingar vind­orku­hug­mynda með þeim hætti að skoðað yrði heild­rænt yfir landið hvar þessir kostir ættu við og hvar ekki, „að gróf­skipta því með þeim hætti og þegar við vitum hvar þeir eiga ekki við út frá ein­hverjum ákveðnum við­miðum – gæti verið frið­lýst svæði, við­kvæmt fugla­svæði og svo fram­vegis – þá erum við búin að tak­marka í raun­inni það svæði þar sem hægt væri að nýta það og síðan yrði þá ákveðin máls­með­ferð utan um þau svæði þar sem hægt er að nýta það og það er eitt­hvað sem við erum að skoða núna á milli ráðu­neyt­anna,“ sagði hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár