Tom Hanks greindur með nýju kórónuveiruna

Leik­ara­hjónin Tom Hanks og Rita Wilson hafa greinst með nýju kór­ónu­veiruna sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum. Þau eru stödd í Ástralíu og eru komin í sótt­kví.

Tom Hanks og Rita Wilson.
Tom Hanks og Rita Wilson. Mynd: EPA

Banda­ríski leik­ar­inn Tom Hanks og eig­in­kona hans, leik­konan Rita Wilson, hafa greinst með nýju kór­ónu­veiruna.

Í yfir­lýs­ingu sem Hanks birtir á Instagram í nótt kemur fram að þau hjónin hafi verið á ferða­lagi í Ástralíu er þau fóru að sýna ein­kenni flensu og sýni voru tekin. Í kjöl­farið voru þau greind með veiruna.

„Jæja þá, hvað skal gera næst?“ skrifar Hanks og að heil­brigð­is­yf­ir­völd hafi reglur sem þurfi að fylgja í svona til­fellum. Nú fari hann og eig­in­konan í ein­angrun svo lengi sem þörf krefur. „Það er ekki hægt að taka þetta öðru vísi en einn dag í einu, er það?“

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti ávarp­aði þjóð sína í sjón­varp­inu í kvöld og til­kynnti að ferða­bann milli Evrópu og Banda­ríkj­anna yrði komið á frá og með næsta föstu­degi. Það muni standa í mánuð.

Í kvöld var einnig til­kynnt að öllum leikjum í NBA-deild­inni í körfu­bolta yrði aflýst það sem eftir er leik­tíðar þar sem leik­maður hefði greinst með COVID-19.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár