Anna Kolbrún var titluð þroskaþjálfi á framboðslista árið 2007 án menntunar

Anna Kolbrún Árna­dóttir, þing­maður Mið­flokks­ins og ein sex­menn­ing­anna af Klaustri Bar, virð­ist hafa titlað sig þroska­þjálfa í yfir ára­tug án þess að hafa til þess menntun eða heim­ild.

Hefur titlað sig þroskaþjálfa í áratug
Hefur titlað sig þroska­þjálfa í ára­tug Anna Kolbrún, sem ekki er mennt­aður þroska­þjálfi, hefur titlað sig sem slíka í yfir ára­tug. Mynd: Pressphotos

Anna Kolbrún Árna­dóttir var titluð þroska­þjálfi þegar hún sat í 9. sæti á fram­boðs­lista Fram­sókn­ar­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi fyrir Alþing­is­kosn­ing­arnar árið 2007. Anna Kolbrún er hins vegar ekki þroska­þjálfi, líkt og komið hefur fram, meðal ann­ars í umfjöllun Stund­ar­innar. Óheimilt er að starfa sem þroska­þjálfi hafi fólk ekki menntun til þess og heim­ild frá heil­brigð­is­yf­ir­völdum.

Á vef­síð­unni kosn­ing.is, sem er í eigu og umsjón dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins, má sjá fram­boðs­lista Fram­sókn­ar­flokks­ins frá árinu 2007 í Norð­aust­ur­kjör­dæmi. Þar kemur fram að Anna Kolbrún, sem sat í 9. sæti list­ans, var titluð þroska­þjálfi. Á aug­lýs­ingu frá lands­kjör­stjórn um fram­boð við alþing­is­kosn­ingar 2. maí 2007 er Anna Kolbrún einnig titluð þroska­þjálfi. Því er ljóst að Anna Kolbrún hefur titlað sig þroska­þjálfa í meira en ára­tug án þess að hafa til þess menntun eða heim­ild.

Anna Kolbrún er einn þeirra þing­manna sem hitt­ust á Klaustri bar þann 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn og létu gamm­inn geysa. Stundin, DV og Kvenna­blaðið hafa fjallað ítar­lega um sam­skiptin sem náð­ust á hljóð­upp­töku.

Í ævi­á­gripi á vef Alþingis kom fram að Anna Kolbrún hafa unnið sem þroska­þjálfi. Þeirri skrán­ingu var breytt í gær en þar kemur ekki lengur fram að hún hafi starfað sem þroska­þjálfi. Þroska­þjálfa­fé­lag Íslands hefur til­kynnt land­lækn­is­emb­ætt­inu um óleyfi­lega notkun Önnu Kol­brúnar á titl­inum.

Í dag hófst þing­fundur á Alþingi með því að Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, lýsti því að eftir skoðun á ævi- og starfs­fer­ils­skrán­ingu Önnu Kol­brúnar á vef Alþingis að hún hefði gefið réttar upp­lýs­ingar um menntun sína og störf. Rök­semd­irnar sem Stein­grímur lagði fram því til stuðn­ings voru þær að í ævi­á­gripi Önnu Kol­brúnar kæmi bara fram að hún hefði starfað sem þroska­þjálfi, ekki að hún hefði sagst vera það. Með öllu er óheim­ilt að sinna störfum þroska­þjálfa hafi fólk ekki til þess menntun. Þá má ekki titla sig þroska­þjálfa nema  hafa hlotið til þess menntun, háskóla­nám í fjögur ár og starfs­leyfi frá Land­lækn­is­emb­ætt­inu, enda er starfs­heitið þroska­þjálfi lög­verndað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

FréttirKlausturmálið

Bergþór gerður að nefnd­ar­for­manni með tveimur atkvæðum – Full­trúar ann­arra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmd­ist og úthúð­aði stjórn­mála­konum á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar honum for­mennsku með hjá­setu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu atkvæði með því að hann yrði for­maður.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár