Búrkubannið

Það er ekki á hverjum degi sem danska þingið, Fol­ket­inget, fjallar um klæðnað fólks, og enn sjaldnar að þingið sam­þykki lög sem banni til­tek­inn fatnað. Slíkt gerð­ist þó fyrir nokkrum dögum þegar þingið sam­þykkti lög, sem almennt kall­ast búrku­bannið.

Nokkrar konur íklæddar niqab yfirgefa danska þingið eftir að lögin voru samþykkt.
Nokkrar konur íklæddar niqab yfir­gefa danska þingið eftir að lögin voru sam­þykkt. Mynd: EPA

Laga­setn­ing þessi á sér langan aðdrag­anda. Árið 2009 ræddi Martin Hen­rik­sen þing­maður Danska þjóð­ar­flokks­ins „búrku­málið“ í þing­inu og lagði til að sett yrðu lög sem bönn­uðu hvers kyns búnað sem hyldi and­lit og höfuð. Ræða þing­manns­ins hlaut þá litlar und­ir­tektir, hann og aðrir þing­menn Danska þjóð­ar­flokks­ins hafa síðan margoft fitjað upp á þess­ari umræðu, lengst af við tak­mark­aðar und­ir­tektir.

Í jan­úar síð­ast­liðnum var lagt fram frum­varp um bann við hvers kyns klæðn­aði sem hyldi and­lit, á almanna­færi. Þetta frum­varp olli strax deilum í þing­inu. Sumum þing­mönnum þótti aldeilis frá­leitt að þingið væri að blanda sér í hverju fólk klædd­ist, öðrum þótti sjálf­sagt að í Danmörku giltu sam­bæri­leg lög og þegar eru í gildi í nokkrum öðrum Evr­ópu­löndum. Ljóst var að varð­andi þetta mál myndu flokkslínur riðl­ast þegar til atkvæða­greiðslu kæmi. Mikill hiti var í umræðum á þing­inu meðan frum­varpið var til umfjöll­unar þótt ljóst væri að það yrði á end­anum sam­þykkt. Margir þing­menn voru fjar­staddir þegar frum­varpið varð að lögum, af 179 þing­mönnum greiddu 75 atkvæði með frum­varp­inu en 30 voru á móti.

Gildir um hvers kyns höfuðbúnað sem hylur andlit

Allir vita að lögin eru sett til höf­uðs þeim höf­uð­bún­aði sem sumar múslím­skar konur bera. Búrkunni svo­nefndu, sem hylur allan lík­amann en fyrir aug­unum er eins konar net, og niqab, sem er svart að lit og á er smá rifa kringum augun en lík­am­inn að öðru leyti hul­inn. En lögin gilda ekki ein­ungis um búrkur og niqab, slík lög myndu stríða gegn lögum um trú­frelsi. Þess vegna gilda lögin líka um hvers kyns búnað sem hylur and­litið nær alveg, eða að miklu leyti. Gildir þannig um lamb­hús­hettur (elef­ant­huer) sem eru mjög vin­sælar meðal hjól­reiða­fólks og skokk­ara. Sama gildir um hvers kyns grímu­bún­inga, og mót­or­hjóla­hjálma, sem lög­bundið er að nota. Þegar þessi nýju lög eru lesin kemur í ljós að þau eru ekki mjög afger­andi.

Þótt bannað sé að hylja and­litið, alveg eða að hluta, er slíkt þó leyfi­legt ef það þjónar „við­ur­kenndum til­gangi“. Til dæmis mega hjól­reiða­menn láta lamb­hús­hett­una yfir munn og nef á köldum vetr­ar­morgnum. En hvað er kaldur vetr­ar­morgun. Ef lög­reglu­þjónn mætir konu klæddri niqab í fimmtán gráðu hita á Strikinu og konan segir að sér sé kalt, hvað á lag­anna vörður þá til bragðs að taka? Getur hann sagt að „sér þyki ekki nægi­lega kalt til að klæða sig með þessum hætti“ eða hvað?

Og grímu­klæddur maður sem mætir lög­reglu­þjóni á götu og seg­ist vera á leið á skemmtun, þjónar þetta ferða­lag hans „við­ur­kenndum til­gangi?“ Á lög­reglan að fylgja mann­inum og kanna hvort hann segi satt: sé í raun og veru á leið á skemmtun?

Lögreglan klórar sér í kollinum

Af fram­an­sögðu er ljóst að lög­regl­unni, sem ætlað er að fram­fylgja lög­unum, er vandi á höndum. Í lög­unum, sem taka gildi 1. ágúst nk, er tekið fram að lög­reglan hefur ekki heim­ild til að hand­taka fólk og getur til dæmis ekki kraf­ist þess að konur taki ofan búrk­una eða niqab. Þess í stað skal lög­reglan sekta við­kom­andi. Hljómar kannski ein­falt en hvernig á lög­reglan að vita við hvern hún talar? Kona getur fram­vísað per­sónu­skil­ríki sem lög­reglan getur engan veg­inn gengið úr skugga um að til­heyri henni. Margir asískir ferða­menn sem koma til Dan­merkur ganga gjarna með eins­konar ryk­grímur, sem hylja neðri hluta and­lits­ins, um götur bæja og borga, er það ólög­legt? Spurn­ing­arnar eru margar en svörin færri.

Sekt fyrir að bera búnað sem hylur and­lit er 1000 krónur danskar (ca. 16.500 íslenskar) en séu brotin ítrekuð getur sektin tífald­ast.

Það er fleira sem veldur lög­regl­unni áhyggjum. Í lög­unum er nefni­lega tekið fram að ef lög­regl­una gruni að kona beri ekki búrku eða niqab af fúsum og frjálsum vilja (heldur að kröfu eig­in­manns­ins) eigi lög­reglan að til­kynna um slíkt til starfs­fólks bæj­ar­fé­lags­ins sem þá ber skylda til að kanna hvort grunur lög­reglu sé á rökum reistur. Konur sem játa íslams­trú og bera á almanna­færi búrku eða niqab hafa í við­tölum við danska fjöl­miðla sagt að fyrr flytji þær frá Danmörku en taka niður höf­uð­bún­að­inn.

Hvað með jólasveinaskegg?

Þegar frum­varpið um „búrku­bannið“ var lagt fram í danska þing­inu í jan­úar ræddi eitt dönsku dag­blað­anna við for­mann félags danskra jóla­sveina. Með blik í auga og bros á vör lýsti for­mað­ur­inn áhyggjum þeirra sveina „skegg­spretta okkar er mis­jöfn og sumir nota því hjálp­ar­tæki í formi gervi­skeggs.“ For­mað­ur­inn sagði að ef frum­varpið yrði að lögum yrðu þeir sveink­arnir að leita lausna, kannski sækja um gervi­skegg­burð­ar­leyfi á aðvent­unni. Nú er spurn­ingin hvort gervi­skegg jóla­sveina flokk­ist undir það sem í lög­unum nefn­ist „við­ur­kenndur til­gangur“. Svar við þeirri spurn­ingu fæst ekki fyrr en dregur að jólum.

Fordæmi fyrir banni

Í fyrra úrskurð­aði Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu að belgíska þing­inu hefði verið heim­ilt að setja lög sem banna að and­lit sé að stórum hluta hulið með hvers kyns bún­aði. Í Frakk­landi var sams­konar bann lög­leitt árið 2011.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

búrka

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár