Búrkubann tekur gildi í Danmörku

Umdeilt bann við hylj­andi höf­uð­klæðn­aði tók gildi í Danmörku í dag. Samkvæmt því á hver sem hylur and­lit sitt á almanna­færi hættu á að greiða 17 þús­und krónur í sekt.

Konur í niqab-klæðnaði
Konur í niqab-klæðn­aði Mynd: EPA

Svo­kallað búrku­bann tók gildi í Danmörku í dag, en sam­kvæmt því er refsi­vert að hylja and­lit sitt með hvers kyns höf­uð­bún­aði á almanna­færi. Þeim sem ger­ast sekir um að hafa brotið gegn bann­inu verður gert að borga 17 þús­und íslenskar krónur í sekt. Þetta kemur fram í frétt á vef danska rík­is­út­varps­ins.

[links]Kjarninn fjall­aði um búrku­bannið fyrr í sumar þegar danska þjóð­þingið sam­þykkti frum­varpið á bak við lög­gjöf­ina, en margir þing­menn voru fjar­staddir þegar kosið var um það. Af 179 þing­mönnum greiddu 75 atkvæði með frum­varp­inu en 30 þeirra voru á móti.

Bannið gildir um hvers kyns höf­uð­búnað sem hylur and­lit, en umræðan um það spratt upp frá notkun á tvenns konar klæðn­aði sem sumar múslim­skar konur bera, búrkum og niqab. Bæði klæðin hylja allan lík­amann og meiri­hluta and­lits­ins, en á búrkunni er eins konar net fyrir augun á meðan niqab hefur rifu á sama stað.

„Viðurkenndur tilgangur“

Lögin munu einnig ná til lambús­hettna, grímu­bún­inga og mót­or­hjóla­hjálma, nema það þjóni svoköll­uðum „við­ur­kenndum til­gangi.“ Gerist maður sekur um að hylja and­lit sitt með ein­hverjum hætti án slíks til­gangs á maður í hættu á að verða sektaður um þús­und danskar krónur, sem jafn­gildir 17 þús­und íslenskum krónum.

Rík­is­lög­regla Dan­merkur sendi út leið­bein­ingar til lög­reglu­þjóna um hvernig þeir skuli fram­fylgja búrku­bann­inu. Samkvæmt leið­bein­ing­unum er ákvörð­unin um „við­ur­kenndan til­gang“ í höndum lög­reglu­þjón­anna sjálfra. Claus Oxfeldt rík­is­lög­reglu­stjóri sagð­ist í við­tali við danska rík­is­út­varpið hafa viljað nákvæm­ari leið­bein­ingar og biður um traust dæmi þeim til stuðn­ings.

Bannið hefur verið harð­lega gagn­rýnt í Danmörku, en múslim­skir trú­ar­leið­togar þar í landi segja það brjóta á rétt­indum kvenna og þeirra trú­felsi. „Við getum ekki frelsað konur með því að brjóta á rétt­indum ann­arra kvenna. Við þurfum að finna aðra leið til að hjálpa kon­unum sem eru neyddar til að hylja sig,“ segir Sherin Khankan, kven­kyns imam í Danmörku. Við því bætir hún að nauð­ung af sér­hverju tagi sé óásætt­an­leg undir öllum kring­um­stæðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

búrka

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár