Hlutverk Alþingis að taka afstöðu til deilumála – og skoða atkvæði

Dósent við laga­deild Háskóla Íslands mætti á opinn fund und­ir­bún­ings­kjör­bréfa­nefndar fyrr í dag. Hann segir að kosn­ingar þurfi alltaf að vera frjálsar, leyni­legar og lýð­ræð­is­legar og til þess fallnar að leiða vilja almenn­ings í ljós.

Hafsteinn Þór Hauksson
Haf­steinn Þór Hauksson Mynd: Skjáskot/RÚV

Haf­steinn Þór Hauksson dós­ent við laga­deild Háskóla Íslands segir að hlut­verk Alþingis sé að taka afstöðu til deilu­mála sem koma upp í kjöl­far kosn­inga og deilna um ein­stök atkvæði – og að skoða atkvæði. „Ég sé í sjálfu sér ekk­ert því til fyr­ir­stöðu að þingið gæti þá rann­sakað kjör­gögn og gert þá leið­rétt­ingar ef nauð­syn­legar eru. Og til þess eru auð­vitað kjör­gögn varð­veitt, til þess að hægt sé að skoða þau og taka þá réttar ákvarð­anir í kjöl­farið.“

Þetta kom fram á opnum fundi und­ir­bún­ings­nefndar fyrir rann­sókn kjör­bréfa en þetta var fjórði fundur nefnd­ar­innar.

Haf­steinn hóf mál sitt á því að tala um vanga­veltur um ógild­ingu á kosn­ingum. „Hvenær eru ágallar á fram­kvæmd kosn­inga til þess fallnir að leiða til ógild­ingar á kosn­ingum, að það þurfi að kjósa upp á nýtt eða eitt­hvað slíkt? Þá þekkjum við auð­vitað öll þetta ákvæði í 3. máls­grein 120. grein laga um kosn­ingar til Alþingis sem ég tel reyndar að sé ekki eini mæli­kvarð­inn. Við höfum séð það áður í úrlausnum Hæsta­réttar að það kunni að vera aðrar meg­in­reglur sem gætu leitt til ógild­ingar og þá er ég fyrst og fremst að hugsa um skil­yrði um að kosn­ing­arnar séu leyni­legar, þ.e.a.s. ef brotið er gegn því skil­yrði að við göngum út frá því að við höldum lýð­ræð­is­legar, frjálsar og leyni­legar kosn­ingar.“

Hann segir að það verði alltaf að hafa augun á því að kosn­ingar þurfi að vera frjálsar, leyni­legar og lýð­ræð­is­legar og til þess fallnar að leiða vilja almenn­ings í ljós. Í fyrr­nefndri 3. máls­grein 120. greinar segir að gall­arnir þurfi að hafa verið þannig að ætla megi að þeir hafi haft áhrif á úrslit kosn­ing­anna. „Það má ætla það að í frjálsum kosn­ingum í lýð­ræð­is­ríkjum að álita­efni komi upp og að gerð séu mis­tök. Þau leiða ekki öll til þess að kosn­ing­arnar séu ónýtar og það þurfi þá að kjósa aftur. Fjarri því. Og þarna er þá sleg­inn þessi var­nagli á þau úrræði að þau þurfi þá að vera til þess fallin að hafa áhrif á nið­ur­stöðu kosn­ing­ar­innar. Og í svona fræði­legri umræðu um þennan mæli­kvarða þá hafa verið ólíkar nálg­anir á það hvernig eigi að túlka þetta.“

Hann bendir á að í fyrsta lagi sé talað um almennan mæli­kvarða. Þá væri hægt að spyrja hvort ágall­inn á kosn­ing­unni almennt væri til þess fall­inn að hafa áhrif á kosn­ingar enda þótt ekk­ert hefði verið sýnt fram á að það hefði gerst í þessu til­tekna til­felli. „Er um sér­stakan mæli­kvarða að ræða sem segir þá að það þurfi að sýna fram á nákvæm­lega að það hafi haft til­tekin áhrif? Eða er eitt­hvað milli­stig um að ræða, sem er held ég kallað sér­stakur mæli­kvarði með öfugri sönn­un­ar­byrði? Sem er þá það að ef þetta er galli, sem almennt er til þess fall­inn að geta haft áhrif, að þá myndi það leiða til ógild­ingar nema sýnt sé fram á að hann hafi ekki gert það í þessu til­felli. Þetta eru ólíkar nálg­anir á þessa ákvæði.“

Það eitt að innsiglun hafi ekki verið fullnægjandi leiðir ekki sjálfkrafa til ógildingar kosninga

Haf­steinn segir að setja þurfi máls­at­vik sem und­ir­bún­ings­nefndin fjallar nú um og sem þingið þarf að taka afstöðu til undir þessa mæli­kvarða og rann­saka vel.

Fjallaði hann um það álita­efni að skortur á inn­siglun kjör­gagna myndi þá telj­ast ágalli sem myndi leiða til ógild­ingar, þ.e. hvort það teld­ist ágalli á kosn­ing­unum sem ætla mætti að hefði haft áhrif á úrslit kosn­ing­anna. „Ég held að það sé ekki til eitt ein­falt hreint og klárt svar við þess­ari spurn­ingu sem gildi í öllum til­fellum. Ég held að það þurfi að kalla máls­at­vik sér­stak­lega, það er að segja ég held að það eitt að inn­siglun hafi ekki verið full­nægj­andi leiði ekki sjálf­krafa til þess að það þyrfti að ógilda kosn­ing­arnar, að sýnt hefði verið fram á að það hefði haft áhrif á nið­ur­stöðu kosn­ing­ar­innar. Það þyrfti eitt­hvað fleira að koma til og þá sér­stak­lega ef sýnt þykir að hægt er að leiða í ljós líkur að því að ekki hafi verið átt við kjör­gögnin þrátt fyrir það að þau hafi ekki verið inn­sigluð.“

Hann sagð­ist ekki hafa vit­neskju um það hvaða sönn­un­ar­gögn lægju fyrir um þetta eða hvort nefndin hefði haft aðgang að þeim. „En ef sýnt yrði til dæmis fram á það með ein­hverjum hætti að það að gögnin eru í læstu her­bergi sem er ekki inn­siglað en það sé eitt­hvað eft­ir­lit, mynd­bands­upp­tökur og svo fram­vegis sem gefur skýr­lega til kynna að það hafi ekki verið átt við gögnin eða neinn mögu­leiki á því að þá held ég að það myndi skipta miklu máli. Einnig væri mögu­legt í þessu sam­bandi að líta til þess – vegna þess að við vitum að sú staða er hér uppi að það breyt­ist nið­ur­staðan á taln­ingu, fyrir og eftir þetta tíma­bil þar sem gögnin eru óinn­sigluð, að kanna þá hvaða breyt­ingar það eru, hvers eðlis þær eru.“

Gætu þurft að skoða sérstaklega tiltekin atkvæði

Haf­steinn var spurður fyr­ir­fram af nefnd­inni að ef fyrir lægi að öryggi kjör­gagna hefði verið tryggt á meðan frestun fundar yfir­kjör­stjórnar stóð yfir hvort það væri ágalli á fram­kvæmd kosn­ing­anna sem til þess væri fall­inn að hafa áhrif á þær ef ekki öllum umboðs­mönnum fram­boðs­lista í kjör­dæm­inu hefði verið gef­inn kostur á að vera við­staddir end­ur­taln­ing­una.

„Mínar hug­leið­ingar um þetta eru á svip­uðum nótum eins og varð­andi fyrra atriðið. Ég held að þetta sé mjög atviks­bundið. Ég vek athygli á því að þetta er auð­vitað atriði sem – fyrsta að ég var far­inn að tala um ákvörðun Hæsta­réttar í stjórn­laga­þings­kosn­ing­unni að þá var þetta tal­inn veru­legur ágalli, það er hvernig staðið var að taln­ing­unni. Að umboðs­menn hefði ekki verið á svæð­inu, þetta hefði ekki verið gert fyrir opnum dyrum og svo fram­vegis. Hins vegar getum við séð fyrir okkur ýmsar aðrar aðstæður af svip­uðum toga en kannski ekki af sama alvar­leika. Hugsum okkur hverjar ástæð­urnar séu fyrir að við­kom­andi sé ekki boð­aður, kom hann ekki upp­haf­lega til taln­ingar og var hann síðan ekki boð­aður sér­stak­lega til þess­arar svoköll­uðu end­ur­taln­ingar og eru aðrir umboðs­menn á svæð­inu? Ef við gefum okkur það að kjör­gögn­unum hafi ekki verið spillt væri þá ekki hægt að leysa úr þessum álita­efnum ein­fald­lega með því að end­ur­telja og þá taka sér­stak­lega til skoð­unar ein­hver vafa­at­kvæði sem umboðs­mað­ur­inn hefði getað haft ein­hverja skoðun á? Er þetta þá ekki ágalli sem hægt er að bæta úr? Þannig að aftur svo­lítið á svip­uðum nótum og áðan þá myndi ég segja að þetta væri svo­lítið atviks­bundið hversu alvar­legt frá­vikið er, hvernig aðstæð­urnar eru og hvernig er hægt að bæta úr þeim og svo fram­vegis. En þetta gæti þá leitt til þess að þið þurfið þá að skoða sér­stak­lega ein­hver til­tekin atkvæði,“ sagði hann við nefnd­ina.

„Hugsum okkur bara að kjörbréf væri gefið út á alnafna einhvers ykkar“

Varðandi vanga­veltu um það hvaða heim­ildir nefndin og þingið hefði þá sagði Haf­steinn að þingið hefði það hlut­verk sam­kvæmt stjórn­ar­skránni að meta hvort kjör­bréfin væru gild eða ógild.

„En þá er það spurn­ingin hvort það leiði sjálf­krafa til upp­kosn­ingar. Eru ykkar mögu­leikar annað hvort að stað­festa nið­ur­stöð­una sem þið fáið senda frá kjör­stjórn eða ógilda og fara í upp­kosn­ingu? Það er ekki að ástæðu­lausu sem þessi álita­efni koma upp vegna þess að það eru auð­vitað engin ákvæði í raun­inni sem mæla fyrir um þetta í lög­unum og auð­vitað umhugs­un­ar­efni – og ein­hverjir gætu talið það til marks um það að úrræðin séu þá tæm­andi talin.

En ég tel sjálfur að það gangi eig­in­lega ekki upp. Ég nefni nú bara – og ég vona að þið fyr­ir­gefið mér fyrir að taka svona ein­falt dæmi – en hugsum okkur bara að kjör­bréf væri gefið út á alnafna ein­hvers ykkar. Og við­kom­andi væri hér mættur hnar­reistur í þingið. Að halda því fram að þingið hefði bara tvo mögu­leika, annað hvort að sam­þykkja þing­setu við­kom­andi sem eng­inn kaus eða fara í nýjar kosn­ingar held ég bara að gangi ekki upp. Það hlýtur eðli máls­ins sam­kvæmt ef það er verk­efni okkar hér að fram­kvæma kosn­inga­lögin og fram­kvæma frjálsar lýð­ræð­is­legar og leyni­legar kosn­ingar þá þyrfti að bregð­ast við og laga þessi mis­tök – leið­rétta þessi mis­tök. Hvernig yrði það gert?“ spurði Haf­steinn.

„Ja, það yrði ekki gert að mínum dómi öðru­vísi en að ógilda það kjör­bréf og gefa út nýtt á réttan aðila. Og það að það séu ekki til ákvæði sem segja okkur nákvæm­lega hvernig það er gert er auð­vitað baga­legt en það er veru­leiki sem yrði að takast á við held ég. Og það er ekki bara ein­hver praktísk nauð­syn heldur er það vegna þess að við erum að reyna að taka alvar­lega – og ég segi við bara sem sam­fé­lag – nið­ur­stöður lýð­ræð­is­legra kosn­inga þar sem að fyr­ir­liggja atkvæði almenn­ings.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár