Vill fá að vita af hverju upplýsingar um fjárfestingar útgerðarfélaga voru felldar út

Í lok ágúst var birt skýrsla sem átti að sýna kross­eigna­tengsl eða ítök útgerð­ar­fé­laga í ein­stökum fyr­ir­tækjum, en að mati þess þing­manns sem bað um hana gerði hún hvor­ugt. Síðar kom í ljós að mik­il­vægar upp­lýs­ingar voru felldar út fyrir birt­ingu.

Hanna Katrín Friðriksson, þingmaður Viðreisnar, bað um skýrsluna á sínum tíma.
Hanna Katrín Frið­riks­son, þing­maður Við­reisnar, bað um skýrsl­una á sínum tíma. Mynd: Bára Huld Beck

Hanna Katrín Frið­riks­dóttir, þing­maður Við­reisnar, hefur farið fram á svör um hvað hafi legið að baki þeirri ákvörðun að fella út upp­lýs­ingar um fjár­fest­ingar hvers útgerð­ar­fé­lags og tengdra félaga, sem finna mátti í skýrslu­drögum sem rík­is­skatt­stjóri sendi atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu í júlí sl., úr skýrslu um eign­ar­hald 20 stærstu útgerð­ar­fé­laga lands­ins í íslensku atvinnu­lífi áður en hún var lögð fyrir Alþingi?

Þetta kemur fram í fyr­ir­spurn sem hún hefur lagt fram á Alþingi og beint til Svan­dísar Svav­ars­dóttur, nýs sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. Skýrslan var ekki unnin á meðan Svandís stýrði ráðu­neyt­inu heldur í tíð fyr­ir­renn­ara hennar, Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar.

Hanna Katrín fer einnig fram á að fá að vita á grund­velli hvaða ráð­gjafar Kristján Þór hafi talið sér óheim­ilt að birta hluta upp­lýs­ing­anna og spyr hvort Svandís sé sam­mála því mati. Að end­ingu vill Hanna Katrín fá skýr­ingu á því hvað hafi orsakað hinar miklu tafir sem urðu á birt­ingu skýrsl­unnar.

Svaraði ekki því sem hún átti að svara

Kjarn­inn fjall­aði ítar­lega um skýrsl­una þegar hún var loks birt 25. ágúst síð­ast­lið­inn, átta mán­uðum eftir að beiðni um gerð hennar var sam­þykkt. Skýrslan sýndi hvorki kross­eign­ar­tengsl eða ítök útgerð­ar­fé­lag­anna í ein­stökum fyr­ir­tækj­u­m.

[adspot]Nið­ur­staða skýrsl­unnar er að 20 stærstu útgerðir lands­ins hafi, beint eða í gegnum tengd eign­ar­halds­fé­lög og dótt­ur­fé­lög, átt bók­færða eign­ar­hluti í öðrum félögum en útgerð­ar­fé­lögum upp á 176,7 millj­arða króna í árs­lok 2019. Sú eign var bók­færð á 137,9 millj­arða króna árið 2016.

Ekki var til­greint með neinum hætti um hvaða eignir er að ræða.

Hanna Katrín, sem bað um skýrsl­una, sagði í sam­tali við Kjarnann eftir að hún var birt að skýrslan væri ekki það sem beðið hefði verið um. ​​Hún sagð­ist ekki vita hvort hún hefði átt að hlægja eða gráta þegar hún las skýrsl­una. „Ég hall­ast frekar að því að hlægja. Það er eitt­hvað fyndið við að þetta skuli verða nið­ur­stað­an. Að stjórn­völd skuli hafa ákveðið að fara þessa leið til að forð­ast að umbeðnar upp­lýs­ingar kæmust fyrir augu almenn­ings fyrir kosn­ing­ar.“

Persónuvernd gerði alvarlegar athugasemdir

Í kjöl­far birt­ingu skýrsl­unnar sendi Per­sónu­vernd bréf til ráðu­neyt­is­ins þar sem stofn­unin gerði alvar­legar athuga­semdir við svar við spurn­ingu sem finna má í skýrsl­unni þar sem því var haldið fram að per­sónu­vernd­ar­lög höml­uðu því að Skatt­ur­inn, sem vann skýrsl­una, gæti birt upp­lýs­ingar um raun­veru­lega eig­endur félaga. Var þar meðal ann­ars vísað í úrskurð Per­sónu­verndar frá 15. júní síð­ast­liðnum þar sem stofn­unin komst að þeirri nið­ur­stöðu að víð­tæk birt­ing heild­ar­hlut­haf­alista margra stærstu fyr­ir­tækja lands­ins á vef Skatts­ins væri ekki heimil lögum sam­kvæmt.

Vegna þess­arar túlk­unar skýrslu­höf­unda var ekk­ert yfir­lit að finna yfir þau fyr­ir­tæki sem útgerð­ar­menn og aðilar tengdir þeim hafa keypt í óskyldum geir­um.

Í bréfi Per­sónu­verndar sagði að í skýrsl­unni væru ýmsar rang­færslur sem Per­sónu­vernd taldi ástæðu til að leið­rétta. Þar kom meðal ann­ars fram að úrskurð­ur­inn frá því í júní hafi ein­ungis náð til upp­lýs­inga um hluta­fjár­eign ein­stak­linga, ekki fyr­ir­tækja eða ann­arra lög­að­ila sem njóti ekki sömu vernd­ar. Varð­andi til­vísun Skatts­ins um að ekki væri heim­ilt að birta upp­lýs­ingar um raun­veru­lega eig­endur sagði Per­sónu­vernd að hún sé ein­fald­lega röng.

Kristján Þór brást ókvæða við bréf­inu og í stöðu­upp­færslu sem hann birti á Facebook sagði hann það vera ófag­legt af Per­sónu­vernd að saka ráðu­neytið sem hann stýrði um að leyna upp­lýs­ingum eða nota Per­sónu­vernd sem skálka­skjól. Hann vís­aði þeim ásök­unum á bug sem „hreinum róg­burð­i“. „Ég hef óskað eftir að ráðu­neytið boði full­trúa Skatts­ins og Per­sónu­verndar til fundar til að fara nánar yfir þessi atriði og ákveða næstu skref. Þau verða tekin af fag­mennsku og virð­ingu fyrir þeim reglum sem um efnið gilda. Hér eftir sem hingað til.“

Listarnir felldir út

Daginn fyrir síð­ustu þing­kosn­ingar, 24. sept­em­ber, birti Kveikur svo frek­ari umfjöllun um skýrslu­vinn­una.

[links]Þar kom fram að Kveikur hefði óskað eftir öllum gögnum sem tengd­ust skýrslu­skrif­unum bæði frá ráðu­neyt­inu og rík­is­skatt­stjóra. Gögnin hefðu borist frá rík­is­skatt­stjóra þennan dag en ráðu­neytið sagð­ist ekki geta svarað fyr­ir­spurn­inni fyrr en eftir helgi, þegar kosn­ing­arnar væru afstaðnar.

Í svörum rík­is­skatt­stjóra kom fram að listar yfir fjár­fest­ingar útgerð­ar­fé­laga og tengdra félaga í íslensku atvinnu­lífi voru í drögum að skýrslu Krist­jáns Þórs sem stofn­unin hafði sent ráðu­neyt­inu í júlí síð­ast­liðnum. List­arnir voru hins vegar hvorki í seinni drögum og ekki í end­an­legri skýrslu sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra til Alþingis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár