Mikil lækkun við opnun viðskipta hjá íslensku Kauphöllinni – Icelandair fellur mest

Allir hluta­bréfa­mark­aðir sem opnað hafa eru í miklum öldu­dal. Íslenska úrvals­vísi­talan hefur þegar lækkað um rúm­lega sex pró­sent. Icelandair féll mest í fyrstu við­skiptum, um 13,8 pró­sent.

Markaðir víða um heim eru í niðursveiflu.
Markaðir víða um heim eru í nið­ur­sveiflu. Mynd: EPA

Hrun hefur átt sér stað á virði hluta­bréfa í þeim kaup­höllum heims­ins sem hafa þegar opnað í dag. Ástr­alska vísi­talan S&P/ASX 200 féll um 9,7 pró­sent, F.T.S.E. vísi­talan sem mælir gengi 100 verð­mæt­ustu fyr­ir­tækj­anna í kaup­höll­inni í London hefur fallið um 6,4 pró­sent frá opnun mark­aða og hin þýska Dax-vísi­tala um 7,6 pró­sent. Nikkei vísi­talan í Japan hefur fallið um 2,5 pró­sent.

Við opnun mark­aða í dag átti sam­bæri­legt fall sér stað í íslensku Kaup­höll­inni. Úrvals­vísi­tala hennar, sem er saman sett úr gengi þeirra tíu félaga á mark­aði sem hafa mestan selj­an­leika, hefur þegar lækkað um sex pró­sent.

Líkt og við var búist hefur gengi bréfa í Icelandair lækkað mest, eða um 14,8 pró­sent í ein­ungis tveggja millj­óna króna við­skiptum. Virði bréfa í félag­inu er nú 3,62 krónur á hlut.

Félagið sendi frá sér til­kynn­ingu í gær­kvöldi þar sem fram kom að fjár­hags­leg áhrif vegna útbreiðslu COVID-19 veirunnar á starf­semi Icelandair Group væru enn óviss, en ljóst er að hún muni hafa nei­kvæð áhrif á sjóð­streymi félags­ins. Það vinni nú að því að lág­marka þau áhrif, meðal ann­ars með því að draga úr flug­fram­boði og vinna með stétt­ar­fé­lögum til að lækka launa­kostnað veru­lega.

[adspot]Þar kom einnig fram að lausa­fjár­staða félags­ins hafi numið rúmum 39 millj­örðum króna í árs­lok 2019 og sé enn á svip­uðum stað nú.

Á síð­ustu dögum hefur Icelandair hins vegar dregið úr flug­fram­boði um allt að 30 pró­sent. „Lík­legt er að dregið verði enn frekar úr flug­fram­boði á meðan ferða­tak­mark­anir eru í gildi og staðan getur breyst hratt. Félagið heldur áfram að fylgj­ast grannt með stöðu mála og hefur gripið til ýmissa aðgerða í sam­ráði við heil­brigð­is­yf­ir­völd til að tryggja heilsu og öryggi starfs­fólks og far­þega.

Óvissa ríkir um háanna­tíma sum­ars­ins en félagið gerir að óbreyttu ráð fyrir að draga úr flug­fram­boði um að minnsta kosti 25 pró­sent miðað við það sem áður hafði verið kynnt. Félagið mun þó leggja áherslu á að við­halda þeim sveigj­an­leika sem þarf til að geta brugð­ist hratt við eftir því hvernig eft­ir­spurn þró­ast.“

Öll félög sem við­skipti búið er að eiga við­skipti með hafa lækkað í dag. Fyrir utan Icelandair hefur mesta lækk­unin verið með bréf í Skelj­ungi, sem er fyrst og síð­ast elds­neyt­is­sali, en bréf í félag­inu hafa lækkað um 10,71 pró­sent. Þá hafa bréf í Iceland Seafood hríð­fallið, eða um 11,7 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár