Sex verður „töfratalan“

Hendur – and­lit – fjar­lægð. Bretar munu vart kom­ast hjá því að heyra og sjá þessi þrjú orð mörgum sinnum á dag á næst­unni. Vonast er til að fólk fylgi þessu slag­orði for­sæt­is­ráð­herr­ans Boris Johnson svo kom­ast megi hjá alls­herjar lokun sam­fé­lags­ins á ný.

Boris Johnson forsætisráðherra eftir ríkisstjórnarfund í gær.
Boris Johnson for­sæt­is­ráð­herra eftir rík­is­stjórn­ar­fund í gær. Mynd: EPA

Í júlí kynnti Boris Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, nýtt slag­orð í bar­átt­unni gegn kór­ónu­veirunni til sög­unnar: Hendur, and­lit, fjar­lægð (e. hands, face, space). Þessi þrjú litlu orð áttu að minna landa hans á að per­sónu­legar smit­varnir væru það mik­il­væg­asta til að halda far­aldr­inum í skefjum. En slag­orðið fór fyrir ofan garð og neðan enda var annað kynnt á sama tíma sem höfð­aði meira til fólks sem hafði þurft að lúta ströngum sam­komu- og ferða­tak­mörk­unum mán­uðum saman. Þess vegna hljóm­uðu hvatn­ing­ar­orð um að fara út að borða til að hjálpa atvinnu­líf­inu (e. eat out to help out) mun betur enda fylgdu þeim afslættir á veit­inga­staði.

En nú eru stjórn­völd hætt að hvetja til kvöld­verðar á veit­inga­húsum enda hafa þau ákveðið að herða og ein­falda sam­komu­reglur á Englandi til að reyna að draga úr mik­illi fjölgun smita sem orðið hefur und­an­farið. Aðeins sex mega koma saman frá og með næsta mánu­degi og slag­orð Johnsons, „Hendur, and­lit, fjar­lægð“, mun óma í öllum miðlum. Fjölda­tak­mark­anir hafa reyndar mið­ast við sex manns und­an­farið en þó mega allt að þrjá­tíu koma saman við sér­stök til­efni. Þetta hafa sam­komuglaðir nýtt sér. Stóra breyt­ingin nú er talan sex verður „töfra­talan“ og lög­reglan getur því brugð­ist við og leyst upp sam­komur sem telja fleiri.

Á þremur dögum greindust 8.500 með kór­ónu­veirusmit á Englandi. Ekki hafa svo margir greinst jákvæðir síðan í maí. Það segir þó ekki alla sög­una því eins og í fyrstu bylgju far­ald­urs­ins eiga Bretar erfitt með að anna sýna­töku­þörf sem upp er komin og einnig er þan­þol smitrakn­ing­artey­manna við hættu­mörk.

Yfirvöld hafa síð­ustu vikur gripið til þess ráðs að setja á harðar en stað­bundnar reglur í þeim borgum og bæjum þar sem smitum hefur fjölgað hvað mest. Þannig bætt­ist Bolton í þann hóp í byrjun vik­unnar sem þýðir til dæmis að barir og veit­inga­staðir þurfa að loka klukkan tíu á kvöldin. Þá má fólk sem býr í þessum „heitu reitum“ ekki eiga í nánum sam­skiptum við aðra en þá sem það deilir heim­ili með.

Unga fólkið helst að smitast

Líkt og víð­ast hvar ann­ars staðar í Evrópu er það unga fólkið sem helst er að smit­ast af veirunni. Enn sem komið er anna sjúkra­hús vel þeim fjölda sem þurft hefur að leggja inn en ótt­ast er að eldri ætt­ingjar og vinir yngra fólks­ins verði þeir næstu sem smit­ast. Það myndi breyta mjög stöð­unni á sjúkra­hús­unum.

„Við verðum að bregð­ast við strax til að stöðva útbreiðslu veirunnar,“ sagði Boris Johnson í gær en í dag hefur hann boðað til blaða­manna­fundar þar sem farið verður gaum­gæfi­lega yfir hinar nýju sam­komu­tak­mark­anir.

Stærri fjölskyldur mega koma saman

Enn verður þó fleira fólki en sex úr sömu fjöl­skyldu og þeim sem deila sama heim­ili heim­ilt að koma saman, m.a. vegna brúð­kaupa, jarð­ar­fara og ann­arra við­burða. Hertar reglur eiga þó aðeins við England en ann­ars staðar á Bret­landi verða þær óbreyttar. Í Wales mega enn sem komið er þrjá­tíu koma saman utan dyra en fólk er almennt hvatt til að vera ekki í mik­illi nánd við aðra en þá sem það deilir heim­ili með.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár