Samkomubann frá 15. mars

Sótt­varn­ar­læknir hefur lagt til við heil­brigð­is­ráð­herra að sam­komu­bann verði sett á frá mið­nætti 15. mars sem gildi í fjórar vikur. Við­burðir þar sem fleiri en hund­rað manns koma saman verða óheim­ilir.

Sótt­varn­ar­læknir hefur lagt til við heil­brigð­is­ráð­herra að sam­komu­bann verði sett á frá mið­nætti 15. mars sem gildi í fjórar vikur. Við­burðir þar sem fleiri en hund­rað manns koma saman verða óheim­ilir sam­kvæmt til­lög­unni. Það mun eiga við stóra vinnu­staði, íþrótta­við­burði, versl­anir og kvik­mynda­hús svo dæmi séu tekin. Ekki verður þó lög­gæsla við stór­mark­aði til að gæta þess að innan við hund­rað fari þangað inn í einu heldur er almenn­ingur hvattur til að fram­fylgja tak­mörk­un­unum.

Á fámenn­ari við­burðum skal fólk halda tveggja metra fjar­lægð sín á milli. Bannið gildir ekki um flug­vélar og skip og nær því ekki til alþjóða­hafna og flug­valla.

Einnig verður tak­mörkun á skóla­starfi. Fram­halds­skólar og háskólar verða tíma­bundið lok­aðir og menntun sinnt í gegnum fjar­nám. Starf grunn- og leik­skóla verður heim­ilt sam­kvæmt nán­ari ákvörðun sveit­ar­fé­laga að upp­fylltum ákveðnum skil­yrðum. Það verður því með öðrum hætti en nú er og háð til­teknum tak­mörk­unum.

Þessar ráð­staf­anir ná til alls lands­ins.

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra sagði á blaða­manna­fundi í dag að þetta væri gert á grund­velli sótt­varn­ar­laga. Fund­ur­inn var hald­inn í kjöl­far rík­is­stjórn­ar­fundar í morgun. „Þær aðferðir sem við höfum verið að beita hér á Íslandi og hafa verið leiddar af okkar besta fólki, eru þær að greina fólk fljótt, að ein­angra sjúka og beita sótt­kví með mjög mark­vissum hætti,“ sagði Svandís. „Og það má telja að þessi nálgun hafi þegar komið í veg fyrir fjöl­mörg inn­lend smit.“

Nú væri komið að því að taka aðgerðir upp á næsta stig.

Fyrsta sinn í lýðveldissögunni

„Eins og þið vitið erum við á for­dæma­lausum tímum sem kalla á for­dæma­lausar aðgerðir, ekki aðeins hér á Íslandi heldur í heim­inum öllum,“ sagði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra á fund­inum. „Okkar leið­ar­ljós í bar­átt­unni við COVID-19, kór­ónu­veiruna, hefur hingað til verið það að fylgja ráðum og leið­bein­ingum okkar besta fólks, besta vís­inda­fólks, besta heil­brigð­is­starfs­fólks og það munum við gera áfram.“

Sagði hún til­lögu sótt­varna­læknis að sam­komu­banni marka tíma­mót. „Þetta er í fyrsta sinn í lýð­veld­is­sög­unni sem slík ráð­stöfun er lögð til. Mark­miðið er hér eftir sem hingað til að hemja útbreiðslu veirunnar, koma í veg fyrir að far­ald­ur­inn gangi of hratt yfir, standa vörð um þá sem eru útsett­astir fyrir þess­ari sýk­ingu og tryggja að heil­brigð­is­kerfið stand­ist þetta álag. Þessi ráð­stöfun byggir á ráð­gjöf okkar fram­línu­fólks í heil­brigð­is­vís­indum en hún kallar líka á það að við stöndum öll undir þeirri ábyrgð sem hún leggur á okkar herðar.“

Rétti tíminn

„Ég held að tím­inn til að gera það sé akkúrat núna,“ sagði Þórólfur Guðnason sótt­varn­ar­læknir um sam­komu­bannið. „Þetta er verk­efnið okkar allra. Boð og bönn stjórn­valda mun ekki ráða úrslitum um hversu hratt veiran fer yfir landið. Það er undir okkur sjálfum komið, hverjum og einum, hvernig útkoman verður.“

[links]Hann benti á að þó að til­fellum fjölgi dag frá degi sé það ennþá þannig að í lang­flestum til­fellum sé um að ræða Íslend­inga sem hafa verið á ferða­lagi erlendis og komið hingað til lands einkum frá skíða­svæðum í Ölpunum. Aðeins tvö til­felli hafa greinst hjá fólki sem virð­ist ekki hafa tengsl við áhættu­svæðin, beint eða í gegnum aðra.

Katrín Jak­obs­dóttir sagði að um for­dæma­lausar aðgerðir væri að ræða en að uppi væru for­dæma­lausir tímar. Ekki hafi fyrr verið gripið til aðgerða sem þess­ara í lýð­veld­is­sög­unni.

„Við erum að gera nákvæm­lega það sem við teljum þörf á á þessum tíma­punkti,“ sagði Lilja Alfreðs­dóttir mennta­mála­ráð­herra á fund­inum.

Börn í litlum hópum

Hvað tak­mark­anir hjá leik- og grunn­skólum varðar verður sú útfærsla unnin í sam­vinnu við Samband sveit­ar­fé­laga og Kenn­ara­sam­bandið. Nánari ákvörðun er í höndum hvers og eins sveit­ar­fé­lags. Hafa skal börn í sem minnstum hópum og aðskilin eins og kostur er. „Okkar mat er að þetta sé eins langt og eigi að ganga á þessum tíma­punkti,“ sagði Lilja.

Allt er þetta gert til að vernda við­kvæm­ustu hópa sam­fé­lags­ins og til gæta þess að heil­brigð­is­kerfið stand­ist álagið.

„Við erum auð­vitað að gera þetta með okkar íslenska hætti,“ sagði Katrín. „Alveg frá því að fyrsti maður greind­ist hér höfum við lagt okkur fram við að miðla upp­lýs­ingum með reglu­bundnum hætti og hafa eins mikið gagn­sæi um aðgerðir stjórn­valda og mögu­legt er. Það hefur skilað árangri, við erum öll að taka ábyrgð á þeirri stöðu sem er uppi. [...] Ég heiti á okkur öll að láta þetta takast því það skiptir gríð­ar­legu máli fyrir almanna­heill í þessu landi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár