RÚV fær 222 milljónir króna á fjáraukalögum

RÚV fær við­bót­ar­fram­lag á fjár­auka­lögum. Fram­lagið er leið­rétt­ing á lög­bundnu fram­lagi úr rík­is­sjóði til RÚV, sem fékk fyrir tæp­lega 4,2 millj­arða króna úr honum.

RÚV er langstærsta fjölmiðlafyrirtæki landsins. Og það eina sem er á fjárlögum.
RÚV er langstærsta fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins. Og það eina sem er á fjár­lögum. Mynd: Anton Brink

Rík­is­út­varpið (RÚV) fær 222 millj­óna króna fram­lag á fjár­auka­lögum árs­ins 2018. Í skýr­ingum á fram­lag­inu í frum­varpi til fjár­auka­laga segir að þetta sé til sam­ræmis við tekju­á­ætlun um inn­heimtar tekjur af útvarps­gjaldi. „Um er að ræða leið­rétt­ingu á lög­bundnu fram­lagi til RÚV en í fjár­lögum árs­ins 2018 var fjár­veit­ing 222 m.kr. lægri en tekju­á­ætlun um inn­heimtar tekjur af útvarps­gjaldi gerði ráð fyrir.“

RÚV hafði verið úthlutað tæp­lega 4,2 millj­örðum króna úr rík­is­sjóði á fjár­lögum árs­ins 2018. Gera má ráð fyrir því að sam­keppn­i­s­tekjur RÚV, sem fel­ast fyrst og síð­ast í sölu aug­lýs­inga og kost­unar, séu nálægt 2,5 millj­örðum króna í ár, ef miðað er við að fyr­ir­tækið hafi haft sömu tekjur af þeirri starf­semi og árið 2017 að við­bættum 200 millj­óna króna við­bót­ar­tekjum vegna HM í knatt­spyrnu, sem sýnt var á RÚV í sumar. Alls vinna á annan tug manns í fullu starfi hjá RÚV við að sinna sölu á aug­lýs­ing­um, sölu á efni og leigu á dreifi­kerfi.

[adspot]Því hafði RÚV úr um 6,7 millj­örðum króna að spila í ár áður en að til við­bót­ar­fram­lags­ins kom.

Framlagið hækkar enn á næsta ári

Í fjár­lögum næsta árs er gengið út frá því að fram­lag rík­is­sjóðs til fjöl­miðl­unar muni hækka um 534 millj­ónir króna á milli ára, eða um 12,8 pró­sent. Breyt­ing­una má rekja til 175 milljón króna hækk­unar á fram­lagi til RÚV vegna sjóðs sem ætlað er að kaupa efni frá sjálf­stæðum fram­leið­endum hér­lendis og 360 milljón króna hækk­unar á fram­lagi til RÚV „í sam­ræmi við tekju­á­ætlun um inn­heimtar tekjur af útvarps­gjald­i.“

Ljóst er að miðað við þetta munu tekjur RÚV aukast umtals­vert á næsta ári og fara yfir sjö millj­arða króna.

RÚV hefur getað aukið rekstr­ar­hæfi sitt með öðrum leiðum en auknum tekjum og fram­lögum á síð­ustu árum. Í fyrra var afkoma RÚV jákvæð um 321 milljón króna og þar skipti hagn­aður af sölu á bygg­inga­lóðum í Efsta­leiti sköp­um, en heild­ar­sölu­verð þeirra var um tveir millj­arðar króna.

Auk þess samdi RÚV í maí við Líf­eyr­is­­sjóð starfs­­manna rík­­is­ins (LSR) um að breyta skil­­málum á skulda­bréfi í eigu sjóðs­ins sem er til­­komið vegna ógreiddra líf­eyr­is­skuld­bind­inga. Í sam­komu­lag­inu fólst að veru­lega er lengt í greiðslu­­ferli bréfs­ins, en loka­gjald­dagi þess er nú 1. októ­ber 2057 í stað 1. apríl 2025. Sam­hliða er höf­uð­­stóll hækk­­aður og vextir lækk­­aðir úr fimm pró­­sentum í 3,5 pró­­sent. Þetta mun gera það að verkum að greiðsla skuld­ar­innar mun teygja sig til nýrra kyn­slóða en fjár­magns­gjöld sem RÚV greiðir árlega munu lækka umtals­vert. Þau voru 282,5 millj­ónir króna í fyrra.

350 milljónir í endurgreiddan ritstjórnarkostnað

Í sam­ræmi við mark­mið um að bæta starfs­um­hverfi fjöl­miðla og á grund­velli úttekta og skýrslna er unnið að aðgerðum til að bæta stöðu einka­rek­inna fjöl­miðla á Íslandi. Lilja D. Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, hefur boðað frum­varp í jan­úar um stuðn­ing við rekstur einka­rek­inna fjöl­miðla.

[adspot]Hún kynnti helstu áherslur þess frum­varps í sept­em­ber síð­ast­liðnum. Þar kom fram að frum­varp­inu sé ætlað að mæta rekstr­ar­um­hverfi rit­stýrðra íslenskra fjöl­miðla sem miðla frétt­um, frétta­tengdu efni og gegna mik­il­vægu sam­fé­lags­legu hlut­verki. Áætlað fram­lag vegna þessa verður um 400 millj­ónir króna á ári.

Í aðgerð­unum felst m.a. að end­ur­greiða hluta rit­stjórn­ar­kostn­aðar rit- og ljós­vaka­miðla um 20-25 pró­sent og er áætl­aður kostn­aður vegna þeirra um 350 millj­ónir króna á ári. Ráð­gert er að fyrsta end­ur­greiðslan komi til end­ur­greiðslu vegna rekstr­ar­árs­ins 2019, og rati því ekki til þeirra miðla sem rétt eiga á henni fyrr en á árinu 2020.

Þá á að lækka virð­is­auka­skatt á raf­rænar áskriftir sem á að skila um 40 milljón króna í árlegan ábata, sam­ræma skatt­lagn­ingu á aug­lýs­ingum svo íslenskir fjöl­miðlar standi jafn­fætis erlendum net­miðlum og með því að auka gagn­sæi í opin­berum aug­lýs­inga­kaup­um.

Auk þess stendur til að draga úr umsvifum RÚV á aug­lýs­inga­mark­aði og skapa með því svig­rúm fyrir aðra til að auka sínar tekj­ur. Alls er búist við því að umsvif RÚV á sam­keppn­is­mark­aði muni drag­ast saman um 560 millj­ónir króna á ári með því að kostun dag­skrár­liða verði hætt og með lækkun hámarks­fjölda aug­lýs­ingamín­útna úr átta í sex á klukku­stund. Lilja hefur þó sagt að til standi að bæta RÚV upp það tekju­tap með öðrum hætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár