Óviðunandi að launafólk neyðist til að ganga á orlofsrétt sinn

BHM hvetur atvinnu­rek­endur til að koma til móts við barna­fólk vegna skertrar kennslu í skólum.

Bandalag háskóla­manna (BHM) skorar á vinnu­veit­endur að taka til­lit til for­eldra leik- og grunn­skóla­barna sem ekki geta sinnt störfum sem skyldi vegna skertrar kennslu í skólum lands­ins vegna COVID-19. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá BHM.

Þá segir að margir for­eldrar reyni að sinna fjar­vinnu ásamt því að ann­ast heima­kennslu barna sinna. Það gefi auga­leið að slíkt geti reynst flókið og umönnun yngstu barn­anna þurfi að njóta for­gangs á heim­il­inu. Við þessar aðstæður hafi launa­fólk neyðst til að ganga á orlofs­rétt sinn og jafn­vel taka launa­laust leyfi frá vinnu. Að mati BHM er það óvið­un­andi.

[adspot]

„BHM biðlar því til stjórn­enda fyr­ir­tækja og stofn­ana að koma til móts við það starfs­fólk sem glímir við þessar aðstæður og greiða því full laun meðan sam­komu­bann gildir hér á landi. Með því móti sýna atvinnu­rek­endur sam­fé­lags­lega ábyrgð í verki.

Öll getum við lagst á eitt um að létta þessar vikur fyrir fólkið, fyr­ir­tækin og heim­ilin í land­inu. Þegar það versta er yfir­staðið verður gott að geta litið um öxl full­viss um að allt hafi verið gert til að tryggja atvinnu­ör­yggi, rekstur fyr­ir­ækja og almenna vel­ferð lands­manna á tímum COVID-19 heims­far­ald­urs­ins,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár