Fjölgun smita hefur kallað á ýmsar aðgerðir

Grímu­skylda. Reyk­inga­bann. Lokun næt­ur­klúbba og skimun við landa­mæri. Eftir að til­fellum af COVID-19 hefur farið fjölg­andi á ný eftir aflétt­ingu tak­mark­ana hafa mörg ríki gripið til harð­ari aðgerða.

Ekki má lengur reykja á almannafæri á Spáni nema að hægt sé að tryggja fjarlægð milli fólks. Þetta á líka við um verandir veitingastaða.
Ekki má lengur reykja á almanna­færi á Spáni nema að hægt sé að tryggja fjar­lægð milli fólks. Þetta á líka við um ver­andir veit­inga­staða. Mynd: EPA

Staðfest smit af kór­ónu­veirunni hafa ekki verið fleiri í Frakk­landi og á Spáni frá því tak­mörk­unum var aflétt. Spánn ætlar að loka næt­ur­klúbbum og banna reyk­ingar á almanna­færi. Frakk­land er nú komið á lista Breta yfir áhættu­lönd og kraf­ist er tveggja vikna sótt­kvíar af ferða­mönnum sem þaðan koma. Frakkar segja að þá verði því eins farið með ferða­menn frá Bret­landi sem koma til Frakk­lands. Fleiri lönd fara á rauða list­ann hjá Bretum vegna fjölg­unar til­fella: Holland, Malta, Mónakó og nokkrar eyjur í Kar­ab­íska haf­inu, m.a. Aruba sem er vin­sæll sum­ar­leyf­is­staður Breta.

Nær dag­lega ber­ast fréttir af ýmist hertum aðgerðum eða til­slök­unum vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins hér og þar í heim­inum. Í Evrópu eru frétt­irnar mjög tíðar þessa dag­ana og aug­ljóst að hratt er þar oft brugð­ist við þegar smitum fjölgar eða hóp­sýk­ingar koma upp.

Sem dæmi hafa nú sex lén í Svíþjóð verið sett á „rauðan lista“ norskra stjórn­valda eftir að slakað hafði verið á aðgerðum gagn­vart Svíþjóð fyrir þónokkru síðan. Þá hafa Norðmenn nú verið beðnir í fyrsta sinn að bera and­lits­grímur þegar þeir nota almenn­ings­sam­göngur og í höf­uð­borg­inni Ósló sé ekki hægt að tryggja 1 metra fjar­lægð milli fólks.

[adspot]

Spán­verjar kynntu í gær hertar aðgerðir í ell­efu liðum sem m.a. fela í sér að næt­ur­klúbbar og aðrir staðir sem veita vín fram eftir nóttu verður lokað. Einnig verða reyk­ingar á almenn­ings­stöðum bann­aðar ef ekki er hægt að tryggja 1,5 metra fjar­lægð milli fólks. Á veit­inga­stöðum verður einnig að tryggja 1,5 metra bil milli borða og þar mega ekki fleiri en tíu manns koma saman í hópum. Í gær greindust tæp­lega 3.000 ný til­felli af COVID-19 í land­inu. Heil­brigð­is­ráð­herr­ann segir að aðgerð­irnar séu vægar og að vel geti verið að ákveðin svæði herði á reglum á næst­unni.

Á Ítalíu, sem varð hvað verst úti í fyrstu bylgju far­ald­urs­ins, hefur nú verið ákveðið að Ítalir og aðrir búsettir í land­inu sem snúa heim úr sum­ar­frí­ium á Spáni, Króatíu, Möltu og Grikk­landi, þurfa að fara í skimun. Yfir 500 ný til­felli greindust þar í gær og heil­brigð­is­ráð­herr­ann segir nauð­syn­legt að grípa til aðgerða strax til að við­halda þeim árangri sem náð­ist í vetur. Yfir 250 þús­und manns hafa greinst með veiruna á Ítalíu. Yfir 35.200 hafa lát­ist, þar af sex í gær.

Staðan í Þýska­landi hefur einnig breyst. Í dag var til dæmis upp­lýst að fjórum sinnum fleiri íbúar í bænum Kupferzellen smit­uð­ust af veirunni en áður var talið. Þetta er meðal nið­ur­staðna á mótefna­mæl­ingum sem þýska smit­sjúk­dóma­stofn­unin hefur staðið fyrir. Samkvæmt mæl­ing­unum smit­uð­ust 7,7 pró­sent íbúa bæj­ar­ins af veirunni sem þýðir að einn af hverjum fimm sýndi engin ein­kenni.

Grísk stjórn­völd hafa ákveðið að herða sam­komu­tak­mark­anir og að ekki megi fleiri en fimm­tíu koma saman.

Á Nýja-Sjálandi er komið upp hópsmit sem reynt er að ein­angra með hörðum en fyrst og fremst stað­bundnum aðgerðum. Aðgerð­irnar bein­ast aðal­lega að borg­inni Auckland þar sem smitið upp­götv­að­ist og þar eru þær á þriðja stigi almanna­varna sem þýðir að fólk má ekki fara að heiman nema að brýna nauðyn beri til. Í morgun fram­lengdi for­sæt­is­ráð­herr­ann Jacinda Ardern tak­mark­an­irnar um tólf daga.

Í yfir hund­rað daga greind­ist ekk­ert nýtt inn­an­lands­smit í land­inu en nú eru þau orðin yfir 30 á nokkrum dögum.

Þriðja dag­inn í röð greindust yfir 60 þús­und ný smit á Indlandi. Hópsmit hefur m.a. breiðst út í einu stærsta fang­elsi lands­ins og þar er um fjórð­ungur fanga smit­aður. Far­ald­ur­inn hefur komið mjög illa við Indverja og hvergi í heim­inum, fyrir utan Banda­ríkin og Brasilíu, hafa fleiri til­felli greinst.

Það segir þó aðeins hluta af sög­unni þar sem skimun­ar­geta ríkja er mjög mis­jöfn. Það sem sér­fræð­ingar ótt­ast nú er sú stað­reynd að far­ald­ur­inn er far­inn að breið­ast út til dreif­býlla svæða á Indlandi þar sem gríð­ar­leg fátækt er og mikil vöntun á heil­brigð­is­þjón­ustu.

Í Rúss­landi grein­ast nú yfir 5.000 manns á dag með veiruna og dag­lega eru dauðs­föll yfir hund­rað. Í Úkraínu virð­ist far­ald­ur­inn einnig vera að fær­ast í auk­ana og þar greindust í gær yfir 1.700 til­felli og hafa þau aldrei verið fleiri á einum degi. Yfir 2.000 manns hafa lát­ist vegna COVID-19 í Úkraínu og sér­fræð­ingar hafa áhyggjur af veld­is­vexti í fjölda sýk­inga síð­ustu vik­urnar.

Far­ald­ur­inn er ekki í rénun á heims­vísu. Og í flestum ríkjum þar sem til­slak­anir hafa verið gerðar hefur til­fellum fjölgað á ný.

Í gær ákvað rík­is­stjórn Íslands að krefj­ast þess að allir far­þegar sem hingað koma fari í tvær skimanir með sótt­kví á milli. Þær reglur taka gildi á mið­viku­dag í næstu viku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár