„Ég er bara manneskja sem sest niður og talar við fólk“

Hvernig gat uppi­stand­ari, grín­leik­ari, bar­daga­í­þrótta­lýsandi og hlað­varps­stjórn­andi komið öllu í upp­nám hjá streym­isveit­unni Spotify? Joe Rogan er lík­lega með umdeild­ari mönnum um þessar mundir. En hann lofar bót og betrun. Sem og Spotify.

Joe Rogan heldur úti einu vinsælasta hlaðvarpi heims. Hann hefur lofað bót og betrun eftir ásakanir um að deila falsfréttum um bóluefni við COVID-19 í þætti sínum, The Joe Rogan Experience.
Joe Rogan heldur úti einu vin­sælasta hlað­varpi heims. Hann hefur lofað bót og betrun eftir ásak­anir um að deila fals­fréttum um bólu­efni við COVID-19 í þætti sínum, The Joe Rogan Experience. Mynd: Instagram

Hvað varð til þess að streym­isveita, sem hefur fyrst og fremst lagt áherslu á tón­list, þurfti að grípa til ráð­staf­ana vegna ásak­ana um að ýta undir dreif­ingu fals­frétta og upp­lýs­inga­óreiðu?

Svarið, í mjög stuttu máli, er Joe Rogan.

Rogan heldur úti einu vin­sælasta hlað­varpi í heimi, The Joe Rogan Experience. Þætt­irnir eru á sam­tals­formi og segir Rogan að mark­mið hans sé að halda uppi fjöl­breyttri umræðu og leyfa ólíkum röddum að heyr­ast.

[adspot]Í des­em­ber skrif­uðu 270 banda­rískir læknar og vís­inda­menn undir opið bréf til Spotify undir yfir­skrift­inni „Ákall frá hnatt­rænu sam­fé­lagi lækna- og vís­inda­manna til að sporna gegn upp­lýs­inga­óreiðu“.

Í bréf­inu er meðal ann­ars vísað í við­tal Rogan við lækn­inn Robert Malone sem lýsir yfir efa­semdum um bólu­setn­ingu gegn COVID-19. Malone kom meðal ann­ars að þróun mRNA-tækn­innar sem notuð var við fram­leiðslu bólefna gegn COVID-19. Sjálfur hefur hann talað um sig sem „upp­finn­inga­mann mRNA-bólu­efn­anna“ en talar á sama tíma gegn bólu­setn­ingum og hefur varað við bólu­setn­ingu barna. Aðgangi Malone á Twitter var eytt eftir að hann setti fram mis­vísandi upp­lýs­ingar um bólu­setn­ingar gegn COVID-19. Malone nýtur mik­ils fylgis hjá þeim sem eru á móti bólu­setn­ingum og hefur hann komið fram á fjöl­mennum mót­mælum þeirra sem eru á móti bólu­setn­ingu.

Neil Young setti Spotify afarkosti

Stjórn­endur Spotify brugð­ust ekki sér­stak­lega við bréf­inu fyrr en tón­list­ar­mað­ur­inn Neil Young krafð­ist þess í síð­ustu viku að tón­list hans yrði fjar­lægð af Spotify sökum falskra upp­lýs­inga um bólu­efni sem Rogan dreifði í hlað­varpi sínu. Young sagði valið standa á milli hans eða Rogan. Spotify valdi Rogan og tón­list Young hefur verið fjar­lægð af Spotify. Í yfir­lýs­ingu frá veit­unni segir að Young sé hins vegar alltaf vel­kom­inn aftur. Fleiri tón­list­ar­menn hafa fylgt for­dæmi Young, þar á meðal Joni Mitchell. Auk þess hafa þó nokkrir stjórn­endur hlað­varpa ákveðið að leita á önnur mið.

Spotify kom inn á mark­að­inn fyrst og fremst sem streym­isveita fyrir tón­list en hefur und­an­farið einnig ein­beitt sér að hlað­vörpum. Þannig jókst hlut­deild Spotify sem hlað­varpsveita í Banda­ríkj­unum úr 19 pró­sentum í 25 pró­sent milli áranna 2019 og 2020 og tók þar með fram úr Apple sem vin­sælasta hlað­varpsveitan og er orðin leið­andi bæði sem tón­listar- og hlað­varpsveita á heims­vísu, með 31 pró­sent hlut­deild.

Daniel Ek, fram­kvæmda­stjóri Spotify, hefur lofað bót og betrun og ætlar fyr­ir­tækið að vinna að því að koma í veg fyrir upp­lýs­inga­óreiðu í tengslum við umfjöllun á COVID-19 á miðl­inum. Hann segir ótíma­bært að meta áhrif atburða síð­ustu daga. Hvað sem því líður hefur dregið úr fjölgun not­enda Spotify síð­asta árs­fjórð­ung. Þá tóku hluta­bréf Spotify dýfu í síð­ustu viku eftir sam­skipti Young og stjórn­enda fyr­ir­tæk­is­ins.

„Venju­lega þegar ágrein­ings­mál hafa komið upp eru áhrif þess mæld í mán­uðum, ekki dögum,“ segir Ek, sem er til­tölu­lega rólegur yfir öllu saman. Umræðan hefur þó leitt til þess að tón­listar- og hlað­varps­not­endur íhugi hvaða kostir eru í boði. Apple Music er næst stærsta hlað­varpsveitan á eftir Spotify en aðrir mögu­leikar líkt og YouTube Music, Amazon Music og Tidal hafa verið nefndar sem ákjós­an­legir kostir.+

Uppistand, Fear Factor, UFC og hlaðvarp

En aftur að Joe Rogan. Hver er þessi maður og af hverju er hann svona vin­sæll?

Joe Rogan er 55 ára Banda­ríkja­maður, fæddur og upp­al­inn í New Jersey.. Hann reyndi fyrir sér sem uppi­stand­ari og leik­ari á 9. og 10. ára­tugnum og fljót­lega eftir alda­mótin bauðst honum staða sem íþrótta­skýr­andi hjá bar­daga­sam­tök­unum UFC.

Rogan fór meðal ann­ars með hlut­verk í gam­an­þátt­unum NewsRadio en hann er lík­lega þekkt­ari fyrir þátta­stjórn í Fear Factor, raun­veru­leika­þátt þar sem kepp­endur tók­ust á við mis ógeð­felldar þrautir og horfð­ust margir hverjir í augu við sinn mesta ótta. Þætt­irnir voru sýndir á árunum 2001 til 2006 og nutu mik­illa vin­sælda, ekki síst hér á landi. Eftir að Fear Factor-ævin­týr­inu lauk sneri Rogan sér aftur að uppi­stand­inu.

Upphaf hlað­varps­ins má að hluta til rekja til til­komu iPod-sins sem kom fyrst fram á sjón­ar­sviðið árið 2001. Nafnið, „podcast“ er einmitt sam­suða af orð­unum „ipod“ og „broadcast“. Fyrsta hlað­varpsveitan, Libsyn.com, tók til starfa í lok októ­ber 2004. Vin­sældir hlað­varps­þátta juk­ust jafn og þétt og ákvað Rogan að hoppa á vagn­inn í ágúst 2010. „The Joe Rogan Experience“ nutu strax strax mik­illa vin­sælda og í októ­ber 2015 var þátt­unum halað niður yfir 16 millj­ónum sinnum í mán­uði. Í dag hlusta að með­al­tali 11 millj­ónir á hvern þátt.

Spotify keypti rétt­inn af hlað­varpi Rogan árið 2020 og eru þættir hans því aðeins aðgengi­legir þar. Kaup­verðið var 100 millj­ónir doll­arar, eða um 13 millj­arðar króna. Í dag eru þætt­irnir um 1.770 tals­ins, auk ýmis konar auka­efnis.

Segist ekki reyna að vera umdeildur en vill leyfa ólíkum sjónarmiðum að heyrast

Í þátt­unum ræðir Rogan við alls konar fólk sem er með sér­fræði­þekk­ingu á ýmsum sviðum. Hlað­varps­formið gerir Rogan kleift að stýra lengd hvers þáttar að vild. Flestir eru um klukku­stund að lengd en dæmi eru um allt að þriggja klukku­stunda langa þætti, til að mynda við Elon Musk, for­stjóra Tesla, þar sem Rogan rétti Musk jónu sem hann þáði með þökkum. Rogan var gagn­rýndur af fjöl­miðlum fyrir fram­kom­una, sem og fyrir að spyrja ekki gagn­rýn­inna spurn­inga og leyfa Musk að gaspra um það sem hann vildi.

En það er einmitt á því sem vin­sældir Rogan byggja á: Að leyfa við­mæl­endum sínum að tjá sig nær hömlu­laust. „Ég er bara mann­eskja sem sest niður og talar við fólk,“ segir Rogan í yfir­lýs­ingu vegna atburða síð­ustu vikna sem hann birti á Instagramí vik­unni. Rogan telur að við­tals­formið, það er sam­tal milli tveggja ein­stak­linga, sé einmitt það sem er heill­andi við þætti hans. Þætt­irnir byrj­uðu sem sak­laust spjall milli vina sem vildu bara hafa gaman að sögn Rogan, sem bjóst ekki við vin­sæld­unum.

Eftir umræð­una Rogan hafi gefið Malone kost á að dreifa sam­sær­is­kenn­ingum um COVID-19 lof­aði Rogan að end­ur­skoða hvernig hann ber sig að við vinnslu þátt­anna. Meðal þess sem hyggst breyta er að ræða við fleiri sér­fræð­ingu á ýmsum sviðum, sér­stak­lega eftir að hann ræðir við fólk sem hefur umdeildar skoð­anir.

„Geri ég ein­hvern tím­ann eitt­hvað rangt? Klárlega, en þegar ég geri mis­tök reyni ég að leið­rétta þau því ég hef áhuga á að kom­ast að sann­leik­anum,“ segir Rogan í yfir­lýs­ingu sinni á Instagram. „Ég hef ekki áhuga á að tala við fólk með eins­leit sjón­ar­mið.“

Rogan seg­ist ætla að gera sitt besta til að bæta heim­ilda­öflun sína, sér­stak­lega þegar kemur að umdeildum við­fangs­efnum. „Ég er ekki að reyna að dreifa fals­fréttum, ég er ekki að reyna að vera umdeildur,“ segir Rogan í yfir­lýs­ingu sinni á Instagram. „Ef ég móðg­aði ykkur biðst ég afsök­unar, en ef þið eruð hrifin af hlað­varp­inu vil ég þakka ykkur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár