Til stendur að koma á fót Þjóðarsjóði

Sjóðnum er ætlað að gegna því meg­in­hlut­verki að verða eins konar áfalla­vörn fyrir þjóð­ina þegar rík­is­sjóður verður fyrir fjár­hags­legri ágjöf í tengslum við meiri háttar ófyr­ir­séð áföll á þjóð­ar­hag.

Áformað er að koma á fót svo­nefndum Þjóð­ar­sjóði. Sjóðnum er ætlað að gegna því meg­in­hlut­verki að verða eins konar áfalla­vörn fyrir þjóð­ina þegar rík­is­sjóður verður fyrir fjár­hags­legri ágjöf í tengslum við meiri háttar ófyr­ir­séð áföll á þjóð­ar­hag, annað hvort vegna afkomu­brests eða vegna kostn­aðar við við­bragðs­ráð­staf­anir sem stjórn­völd hafa talið óhjá­kvæmi­legt að grípa til.

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið áformar að leggja fram frum­varp til laga um að komið verði á fót var­úð­ar­sjóði til að mæta hugs­an­legum fátíðum efna­hags­legum skakka­föllum. Opið er fyrir inn­send­ingu umsagna á tíma­bil­inu 17. til 25. sept­em­ber á sam­ráðs­gátt stjórn­valda.

Í áformum um laga­setn­ing­una kemur fram að hér eigi við skakka­föll sem eru fátíð en sagan sýni að geti riðið yfir á nokk­urra ára­tuga fresti, til að mynda stór­felldar nátt­úru­ham­farir sem geta meðal ann­ars stórlaskað byggð, sam­göngu­inn­viði eða vatns­afls­virkj­anir og stór­iðju­ver, vist­kerf­is­breyt­ingar, sjúk­dómar eða önnur áföll, og valda stór­felldu efna­hags­legu tjóni umfram þann skaða sem tryggður er með öðrum hætti svo sem með Nátt­úru­ham­fara­trygg­ingum Íslands.

Náttúruhamfarir, sjúkdómsfaraldrar eða netárásir

Sem dæmi um slíka stór­at­burði sem orðið hafa eru nefndar í áformunum nátt­úru­ham­farir á borð við Skaft­ár­elda og Móðu­harð­indin eða Heima­eyj­ar­gosið, vist­kerf­is­brest eins og hrun síld­ar­stofns­ins eða sjúk­dóms­far­ald á borð við spænsku veik­ina. Einnig gæti verið um að ræða atburði eða kring­um­stæður af allt öðrum toga, svo sem afleið­ingar af stór­felldum netárásum á mik­il­væga inn­viði lands­ins eða hryðju­verk. Um gæti verið að ræða áföll sem rík­is­sjóður hefði að óbreyttu ekki nægi­legan fjár­hags­legan styrk til að mæta án þess að það leiði til veru­legra sam­tíma­á­hrifa á vel­ferð þegn­anna vegna skertrar starf­semi hins opin­bera eða hefði í för með sér skulda­byrði sem yrði þung­bær um langa hríð og jafn­vel ósjálf­bær.

Þannig verði í laga­setn­ing­unni gengið út frá lang­tíma­sjón­ar­miðum um upp­bygg­ingu á mjög burð­ugum sjóði sem geti tek­ist á við afleið­ingar af stórum, ófyr­ir­séðum og fátíðum áföllum á opin­ber fjár­mál, fremur en að sjóð­ur­inn sjálfur fjár­magni bein­línis bætur vegna, til dæmis tjóns til­tek­inna atvinnu­greina eða hópa.

Viðbragðsráðstafanir á höndum stofnana ríkisins

Allar við­brags­ráð­staf­anir verði þannig á höndum stofn­ana rík­is­ins með því stjórn­skipu­lagi sem er til staðar í sam­fé­lag­inu og ætlað er að kljást við slíka atburði, þ.e. á vegum stofn­ana­kerfis stjórn­sýsl­unar og með til­stuðlan Alþingis, þar með talið með umfjöllun um fjár­heim­ildir. „Ófyr­ir­sjá­an­leiki og óviss stærð­argráða slíkra stór­á­falla felur í sér að nær óger­legt er fyrir stjórn­völd að und­ir­búa sig fyrir afleið­ing­arnar í vana­legri fjár­laga­gerð og fjár­hags­á­ætl­unum til með­al­langs tíma á annan hátt en að sýna þá fyr­ir­hyggju að standa fyrir við­eig­andi sjóðs­söfnun.“

Tilefnið fyrir lag­setn­ingu um stofn­setn­ingu slíks var­úð­ar­sjóðs er einnig það að fyr­ir­séð er að rík­is­sjóður muni á kom­andi árum geta haft umtals­verðar nýjar tekjur af arð­greiðslum eða auð­linda­af­nota­gjöldum frá orku­vinnslu­fyr­ir­tækjum á for­ræði rík­is­ins, einkum Lands­virkjun, sam­kvæmt áformunum.

Þessar for­sendur hafi skap­ast þar sem eig­in­fjár­staða Lands­virkj­unar hefur styrkst mikið á und­an­förnum árum, skulda­staða hefur lækkað niður í hóf­legt horf, miklar afskriftir af mann­virkjum eru að baki og ekki horfur á mjög mik­illi fjár­fest­ing­ar­þörf á kom­andi árum. Framundan sé tíma­bil þar sem ekki virð­ist jafn mikil þörf á að styrkja fjár­hags­stöðu fyr­ir­tæk­is­ins enn frekar og hafi for­svars­menn þess og aðrir á opin­berum vett­vangi fram sett hug­myndir og til­lögur um að fyr­ir­tækið skili í auknum mæli arði til rík­is­ins sem eig­anda þess og orku­auð­lind­anna.

Þessar við­bót­ar­tekjur gætu fallið til um langt ára­bil að því til­skyldu að raf­orku­verð hald­ist óbreytt eða hækki og að ekki verði þörf fyrir veru­legar fjár­fest­ingar í orku­vinnslu umfram það sem nú er fyr­ir­séð og að aðrar slíkar for­sendur sem eru ráð­andi um fjár­hag orku­fyr­ir­tækja bresti ekki. Hyggi­legt þyki að þessar nýju tekjur verði ekki nýttar eins og hver annar tekju­stofn til þess að standa undir reglu­bundnum rík­is­út­gjöldum, heldur verði þeim varið til þess að byggja upp fjár­hags­legan við­búnað í Þjóð­ar­sjóði til að bregð­ast við ófyr­ir­séðum áföllum.

Framlög úr ríkissjóði svari til tekna af arðgreiðslum

Fyr­ir­hugað er að Þjóð­ar­sjóður fái fram­lög úr rík­is­sjóði sem svari til tekna af arð­greiðsl­unum frá orku­vinnslu­fyr­ir­tækj­unum og að hann fjár­festi þá fjár­muni ein­vörð­ungu í erlendum verð­bréfum sam­kvæmt fjár­fest­ing­ar­stefnu sem stjórn sjóðs­ins setur með sam­þykki ráð­herra.

Fram­lögin verði veitt með hlið­sjón af tekjum af við­kom­andi arð­greiðslum en ekki verði þó um að ræða svo­kall­aða mörkun rík­is­tekna. Gert verði ráð fyrir fjár­reiðum sjóðs­ins í fimm ára fjár­mála­á­ætl­unum fyrir hið opin­bera og fjár­lögum. Komi til ófyr­ir­séðs áfalls af fram­an­greindum toga og að upp­fylltum til­teknum skil­yrðum og mati á fjár­hags­á­hrifum áfalls­ins geti ráð­herra gert til­lögu um að Alþingi sam­þykki þings­á­lyktun um að stjórn sjóðs­ins úthluti til rík­is­sjóðs fram­lagi sem nemi allt að helm­ingi eigna sjóðs­ins vegna eins atburðar.

Heim­ildir vegna slíkra fram­laga og fjár­reiðna sjóðs­ins að öðru leyti verði jafn­framt settar með fjár­lögum með atbeina Alþingis. Í þessu sam­bandi er gert ráð fyrir að fram­lag úr Þjóð­ar­sjóði greið­ist eftir á þegar mat á umfangi tjóns fyrir rík­is­sjóð liggur fyrir frá sér­stakri mats­nefnd og að rík­is­sjóður geti því þurft að fjár­magna kostn­að­inn tíma­bundið.

Þjóðarsjóður eign íslenska ríkisins

Þjóð­ar­sjóð­ur­inn verður eign íslenska rík­is­ins og verður færður á efna­hags­reikn­ing rík­is­sjóðs, enda væri hann í raun­inni til­tekið fyr­ir­komu­lag á stýr­ingu og ávöxtun á afmörk­uðum hluta af pen­inga­legum eignum rík­is­sjóðs. Fjár­hags­leg staða rík­is­ins batnar því sem stærð sjóðs­ins nemur.

Með stofnun sjóðs­ins mun sjálf­bærni og stöð­ug­leiki opin­berra fjár­mála styrkj­ast, traust aukast á íslenskt hag­kerfi og þjóð­ar­bú­skap og þar með eflist láns­hæfi rík­is­sjóðs og fleiri inn­lendra aðila sem tengj­ast því.

Sérstök stjórn sett yfir sjóðinn

Fyr­ir­hugað er að sett verði sér­stök stjórn yfir sjóð­inn sem fari með yfir­stjórn hans. Stjórnin beri ábyrgð á rekstri sjóðs­ins, setji sér starfs­reglur og geri til­lögu um fjár­fest­ing­ar­stefnu hans til stað­fest­ingar af ráð­herra á grund­velli við­miða sem verði lög­bundin í megin atriðum.

Gert er ráð fyrir að í fjár­fest­inga­stefnu sjóðs­ins verði úti­lok­aðir fjár­mála­gern­ingum sem gefnir eru út af fyr­ir­tækjum eða stofn­unum sem stunda eða eru við­riðin starf­semi sem telja má að stang­ist á við góða siði, svo sem nýt­ingu vinnu­afls barna og fram­leiðslu og sölu vopna sem nýtt eru í hern­aði.

Með þessu fyr­ir­komu­lagi verði gætt að arms­lengd­ar­sjón­ar­miðum, svo sem að ráð­herra hafi ekki yfir­stjórn­un­ar­vald með ákvörð­unum stjórnar og hlut­ist ekki til um ein­stakar fjár­fest­ingar, en einnig að því að ráð­herra geti rækt ábyrgð sína á því að stjórnin starfi sam­kvæmt lögum og í sam­ræmi við ábyrga stjórn­ar­hætti og fylgi við­hlít­andi fjár­fest­ing­ar­set­efnu.

Gert er ráð fyrir að dag­legur rekstur sjóðs­ins verði hóf­legur að umfangi og að kostn­aður vegna sjóðs­ins greið­ist af tekjum hans eða eigin fé. Í stórum dráttum verður ann­ars vegar um að ræða þókn­anir til stjórnar og annan kostnað við rekstur hennar og hins vegar umsýslu­greiðslur til eigna­stýr­ing­ar­að­ila sem gert er ráð fyrir að verði samið við varð­andi verð­bréfa­kaup og sjóðs­stýr­ingu.

Stefnt að því að sjóðurinn verði 10% af vergri landsframleiðslu

Í áformunum segir að eðli máls­ins sam­kvæmt sé með engu móti hægt að geta sér til af nokk­urri nákvæmni um hversu stórt fjár­hags­legt tjón gæti orðið um að ræða af völdum áfalla sem hér eru höfð í huga. Vegna góðra trygg­inga sem þegar eru fyrir hendi virð­ist ekki ástæða til þess að leggja í þessum til­gangi til hliðar fjár­hæð sem hleypur á jafn­virði tuga hund­raðs­hluta af vergri lands­fram­leiðslu.

Þó sé hægt að setja fram laus­legar stærð­argráður þar sem ganga megi út frá því að þörf væri fyrir slíkan sjóð þegar áfall er farið að nema a.m.k. nokkrum tugum millj­arða króna, til dæmis 50 millj­arða króna, umfram það sem kynni að vera borið af öðrum trygg­ingum. Miðað við þetta og að ein­ungis væri gengið á helm­ing eigna sjóðs­ins hverju sinni er talið skyn­sam­legt að stefnt verði að því að fram­tíð­ar­stærð sjóðs­ins verði nálægt 250 til 300 millj­arða króna eða nærri tíu hund­raðs­hluta af vergri lands­fram­leiðslu.

Tekur 15 til 20 ár að byggja upp sjóðinn

Samkvæmt áformunum má ætla að það gæti tekið um fimmtán til tutt­ugu ár að byggja upp slíkan sjóð miðað við var­færnar for­sendur um þá fjár­muni sem gera má ráð fyrir að til hans falli á kom­andi árum og um ávöxtun þeirra.

„Í þessu sam­bandi má líta til for­dæmis Norð­manna þar sem stjórn­mála­flokk­arnir hafa staðið saman um að láta olíu­sjóð þeirra byggj­ast upp án þess að ganga í hann til að mæta þörfum hins opin­bera fyrr en nú þegar stærð hans er orðin um eða yfir 1 billjón banda­ríkja­dala. Það verður á valdi stjórn­valda í fram­tíð­inni að meta hvenær sjóð­ur­inn verður orð­inn svo stór að tekjum sem honum eru ætl­aðar verði betur ráð­stafað í annað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár