Félag Þorsteins Más fékk 300 milljónum meira í arð en Samherji greiddi í veiðigjöld

Eign­ar­halds­fé­lagið Steinn ehf. er stærsti hlut­hafi útgerð­ar­fé­lags­ins Samherja og á reiðufé upp á þrjá millj­arða króna. Þor­steinn Már Bald­vins­son og eig­in­kona hans hafa selt hluta­bréf í félag­inu til þess sjálfs fyrir 1.850 millj­ónir króna á liðnum tveimur árum. Þor­steinn Már hefur sagt að ekki sé rétt að per­sónu­gera Samherja í nokkrum ein­stak­lingum þar sem 400 manns vinni hjá útgerð­inni.

Firnasterkt félag
Firna­sterkt félag Eign­ar­halds­fé­lag Þor­steins Más og fyrr­ver­andi konu hans á þrjá millj­arða í reiðufé þrátt fyrir að hafa keypt hluta­bréf í sjálfu sér af honum og konu hans fyrir 1.850 millj­ónir króna á síð­ustu tveimur árum. Mynd: Haraldur Guðjónsson

Eign­ar­halds­fé­lag Þor­steins Más Bald­vins­sonar og fyrr­ver­andi eig­in­konu hans, sem heldur utan um hluta­bréf þeirra í útgerð­ar­fyr­ir­tæk­inu Samherja, hagn­að­ist um tæp­lega 1.240 millj­ónir króna árið 2014. Hagn­að­ur­inn byggir á arð­greiðslum frá Samherja og tveimur öðrum félögum. Þor­steinn Már er for­stjóri Samherja og er eign­ar­halds­fé­lag hans og fyrr­ver­andi konu hans, Helgu Guð­munds­dóttur, stærsti hlut­hafi útgerð­ar­fé­lags­ins með 33,74 pró­senta eign­ar­hlut. Um arð­greiðsl­una frá Samherja segir í árs­reikn­ingi Steins árið 2014: „Á árinu fékk félagið greiddan arð frá Samherja hf. að fjár­hæð 1.120,5 millj. kr.. frá Samherja Ísland ehf. að fjár­hæð 62,3 millj. kr. og frá Fjár­fest­inga­fé­lag­inu Firði ehf. að fjár­hæð 65,0 millj. kr. Mót­tek­inn arður er færður til tekna í rekstar­reikn­ingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár