Evrópa hlýnar hraðast

Þótt ríki Evrópu séu betur í stakk búin en flest önnur til að takast á við lofts­lags­breyt­ingar hafa áhrif þeirra á íbúa verið mikil og alvar­leg, m.a. vegna þurrka, flóða, hita­bylgja og bráðn­unar jökla.

Hundruð skógarelda kviknuðu í Evrópu í sumar.
Hundruð skóg­ar­elda kvikn­uðu í Evrópu í sumar. Mynd: EPA

Evrópa er að hlýna hraðar en önnur svæði í heim­inum, sam­kvæmt nið­ur­stöðu nýrrar skýrslu frá Alþjóða veð­ur­fræði­stofn­un­inni. Skýrslan er gefin út í aðdrag­anda COP27, lofts­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna sem fram fer í Egypta­landi í þessum mán­uði. Það má búast við að stjórn­mála­leið­togar álf­unnar fari að minnsta kosti sumir hverjir nokkuð lúpu­legir til ráð­stefn­unnar þar sem losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda er ekki að drag­ast saman í Evr­ópu­ríkjum almennt eins og stefnt er að heldur að aukast. Þjóðir heims hafa hins vegar sam­mælst um og heitið því að draga úr losun til að halda áhrifum lofts­lags­breyt­inga í skefjum.

Bráða­birgða­upp­gjör aðild­ar­ríkja Evr­ópu­sam­bands­ins sýnir að losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda jókst um fimm af hundraði milli áranna 2020 og 2021. Er þetta einkum rakið til auk­inna umsvifa eftir að losna tók um höft vegna heims­far­ald­urs kór­ónu­veirunnar. Engu að síður var los­unin enn sex pró­sentum minni en hún var 2019, árið áður en far­ald­ur­inn reið yfir.

Í frétt CNN um skýrsl­una er bent á að jörðin hafi hlýnað að með­al­tali um 1,2 gráður frá iðn­bylt­ingu. Vís­inda­menn hafa kom­ist að því að halda þurfi hækk­un­inni innan 1,5 gráða til að forð­ast alvar­leg­ustu áhrif lofts­lags­ham­fara.

[links]Samkvæmt skýrsl­unni þá hefur hita­stig í Evrópu hækkað tvö­falt meira en að með­al­tali á heims­vísu síð­ustu þrjá ára­tugi eða um 0,5 gráður á hverjum þess­ara ára­tuga.

Ljóst þykir að þessar miklu lofts­lags­breyt­ingar eru þegar farnar að segja til sín. Í júlí síð­ast­liðnum var fjöldi skóg­ar­elda fjórum sinnum meiri en að með­al­tali síð­ustu fimmtán árin þar á undan. Lífs­hættu­leg og langvar­andi hita­bylgja gekk yfir mörg Evr­ópu­ríki. Í Bret­landi, svo dæmi sé tekið, jókst álag á heil­brigð­is­kerfið af þessum sökum mikið og inn­viðir allir stóðu vart undir sér. M.a. þurfti að loka neð­an­jarð­ar­lest­ar­kerfum tíma­bundið vegna hit­anna.

Þá léku for­dæma­lausir þurrkar mörg svæði grátt síð­asta sumar. Ár þurrk­uð­ust upp og gjöful land­bún­að­ar­svæði sömu­leiðis. Aðeins nokkru áður höfðu hins vegar ham­fara­flóð geisað.

„Evrópa er lif­andi tákn­mynd hins hitn­andi heims og minnir okkur á að jafn­vel sam­fé­lög sem geta und­ir­búið sig vel eru ekki örugg þegar kemur að áhrifum öfga­fullra veð­ur­breyt­inga,“ segir Petteri Taalas, fram­kvæmda­stjóri Alþjóð­legu veð­ur­fræð­is­stofn­un­ar­innar.

Hlýnunin hefur til að mynda haft þau áhrif að jöklar Alpa­fjall­anna hafa misst um 30 metra af þykkt sinni frá árinu 1997 og á Græn­landi rigndi í fyrsta sinn frá því að mæl­ingar hófust á toppi Græn­lands­jök­uls. Bráðnun jökla jarðar hækkar yfir­borð sjávar sem aftur veldur marg­vís­legum vanda.

Samfélög Evrópu eru við­kvæm fyrir breyt­ingum á lofts­lagi en Evrópa er einnig í broddi fylk­ingar þegar kemur að alþjóð­legum til­raunum til að draga úr lofts­lags­breyt­ingum og þróa lausnir til að aðlag­ast hinu nýja lofts­lagi sem Evr­ópu­búar munu þurfa að búa við. Taalas segir að vissu­lega sé við­leitni Evr­ópu­ríkja og vilji til að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda góð en að spýta þurfi í lóf­ana eigi til­ætl­aður árangur að nást.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár