Bosníu-böðullinn fékk þyngdan dóm

Enn er verið að vinna úr þeim grimmd­ar­verkum sem tengj­ast borg­ara­stríð­inu í Júgóslavíu á árunum 1991-1995 og hér rifjar Gunnar Hólm­steinn Ársæls­son upp sög­una af fjöldamorð­unum í smá­bænum Srebrenica, sum­arið 1995.

Þeir eru kall­aðir „böðl­arnir frá Bosníu“ og saman báru þeir ábyrgð á mestu þjóð­ern­is­hreins­unum í Evrópu frá lokum seinni heims­styrj­aldar. Þær fóru fram í smá­bænum Srebrenica í Bosníu á heitum sum­ar­dögum árið 1995. Þar voru allt að 8000 karl­menn, allt múslímar, á aldr­inum 14-70 ára aðskildir frá konum sínum og mæðrum og leiddir til aftöku í skóg­unum í kringum bæinn. Af her­sveitum Bosníu-Serba.

„Böðl­arnir“ eru þeir Ratko Mladic, yfir­hers­höfð­ingi hers Bosníu-Serba (Repu­blika Srbska) og Radovan Karadzic, hinn póli­tíski leið­togi Bosníu-Serba. Saman bera þeir ábyrgð á þjóð­ern­is­hreins­unum, þjóð­ar­morði og því sem kall­ast „glæpur gegn mann­kyni.“

Þessi fjöldamorð voru hluti af borg­ara­stríði sem geysað hafi í fyrrum lýð­veldum Júgósalvíu á árunum 1991-1995, þegar lýð­veldi þessa fyrrum sam­bands­ríkis komm­ún­ista­leið­tog­ans Jósep Tító, lýstu yfir sjálf­stæði hvert á fætur öðru. Fyrst Slóvenía, þá Króatía og síðan Bosnía-Her­segóvína.

Þjóðernisöfgar – þjóðernishyggja

Við þetta voru leystir úr læð­ingi þjóð­ern­is­kraftar og öfga­hyggja, sem átti eftir að kosta um 150.000 manns lífið. Að stærstum hluta voru þessir kraftar drifnir áfram að serbneskum þjóð­ern­issinnum og leið­togum á borð við Slobodan Milosevic (for­seta Serbíu, lést 2006), sem vildi halda sam­bands­rík­inu saman og stuðla að myndun Stór-Serbíu. Sá hét draumur þjóð­ern­is­sinn­aðra Serba, en í honum fólst að lands­svæði Serbíu næði einnig yfir Bosníu.

Þegar Slóvenía og Króatía lýstu yfir sjálf­stæði árið 1991, réð­ist Alþýðu­her Júgóslavíu inn í bæði lýð­veldin en var hrak­inn á brott. Vorið 1992 lýsti Bosnía yfir sjálf­stæði og þá braust út stríð þar. Bosnía var fjöl­menn­ing­ar­svæði, þar bjuggu múslímar, Króatar og Serbar hlið við hlið. Múslímar voru tæp 45%, þar á eftir Serbar, um 30%.

Lengsta umsátur á 20.öld

Saga þessa stríðs er gríð­ar­lega flókin og á tíma­bili má segja að allir hafi barist við alla, en þetta var land­vinn­inga­stríð. Það dróst á lang­inn og á tíma­bili sátu Serbar um höf­uð­borg­ina, Sarajevo. Er þetta lengsta umsátur í sögu nútíma hern­aðar, lengra en bæði umsátrið um Stalín­grad og Lenín­grad í seinni heims­styrj­öld, eða um 1430 dagar. Bosníu-Serbar létu sprengjum rigna yfir Sarajevó og leyniskyttur í fjöll­unum í kringum borg­ina voru afar virkar. Um 14.000 manns lét­ust í umsátr­inu.

Sumarið 1995 voru her­sveitir Bosníu-Serba í sókn í kringum bæinn Srebrenica, sem liggur að landa­mærum Serbíu í A-hluta Bosníu. Um 15.000 manns bjuggu í bænum, eða álíka fjöldi og í Reykja­nesbæ. Í bænum voru um 300 hol­lenskir frið­ar­gæslu­liðar á vegum Sam­ein­uðu þjóð­anna, sem lýst höfðu yfir að bær­inn væri „grið­ar­svæði.“ Því voru margir flótta­menn þar. Í her­sveitum Bosníu-Serbar, sem sóttu að bænum voru um 30-40.000 her­menn. Þetta var leikur katt­ar­ins að músinni.

Kemur Mladic

Þann 11. júlí 1995 komu Ratko Mladic og her­menn hans inn í bæinn. Í mynd­bandi gengur Mladic sigri hrós­andi inn í bæinn og lýsir því yfir að nú sé hann „serbneskur“ og tími sé kom­inn til þess að ná fram hefndum gegn „Tyrkj­unum“ (múslímunum) og þeim sem hann kallar á mynd­band­inu „dahis“ - en það merkir glæpa­maður á arab­ísku.

Hol­lenskir frið­ar­gæslu­liðar horfðu á allt þetta ger­ast og höfðu engar heim­ildir til að bregð­ast við og senni­legt má þykja að þeir hefði allir fallið, ef þeir hefði lent í bar­dögum við stríðsvana her­menn Bosníu-Serba. Einnig er er margt sem bendir til þess að í raun hafi verið búið að ákveða að fórna Srebrenica og að ráða­menn á Vest­ur­löndum hafi verið með­vit­aðir um að svona myndi fara. Á þessu mynd­bandi eru t.d. frá­sagnir sem styðja við þá skoðun. Þar réðu pólitiskir hags­munir ferð­inni, m.a. kom­andi for­seta­kosn­ingar í Banda­ríkj­unum. Þeir bera því ef til vil nokkra sið­ferði­lega ábyrgð.

Enginn reikn­aði þó með því að á næstu dögum yrðu um 8000 manns hrein­lega teknir af lífi og slátrað eins og gripum í kringum Srebrenica. En þannig fór það og í heim­ild­ar­mynd­inni A Cry from the Grave er sagt frá þessum hrylli­legu atburðum.

Réttlæti

En smám saman náði rétt­lætið fram að ganga og bæði Mladic og Kardzic voru hand­teknir og leiddir fyrir alþjóð­legan stríðs­glæpa­dóm­stól í Haag í Hollandi. Þar hefur einnig verið réttað yfir fleirum en þeim og af öðrum þjóð­ar­brotum, bæði Serbum, Króötum og múslímum. Flestir þeirra sem hafa hins­vegar verið dæmdir eru ann­að­hvort Serbar eða Bosníu-Serbar.

Radovan Karadzic fór í felur eftir Bosníu-stríðið, en árið 2008 náð­ist hann. Var hann næstum óþekkj­an­legur sökum hvíts alskeggs sem hann hafði látið sér vaxa. Hann var fram­seldur til Haag, þar sem réttað var yfir honum. Árið 20016 var hann dæmdur í lífs­tíð­ar­fang­elsi og sak­felldur í 10 af 11 ákæru­liðum.

Vorið 2011 var Mladic svo hand­tek­inn, hann einnig í felum. Hann var umsvifa­laust færður til Haag, þar sem réttað var yfir honum fram til nóv­em­ber 2017. Af 11 ákæru­liðum var hann dæmdur sekur í 10 og dæmdur í lífs­tíð­ar­fang­elsi. Báðir voru dæmdir fyrir glæpi gegn mann­kyni.

Þynging dóms

Karadzic áfrýj­aði dómnum og því þurfti að halda rétt­ar­höldum áfram. En áfrýjun hans gerði illt verra og komst dóm­ur­inn að því að fyrri refs­ing hefði verið of mild og þyngdi því dóm­inn. Hann fékk 40 ára fang­els­is­dóm, en Karadzic er 73 ára gam­all.

Rétt­ar­höld sem þessi eru nauð­syn­leg, þó þau kosti mikla pen­inga og taki langan tíma. Því það er algert lyk­il­at­riði að menn sleppi ekki frá ábyrgð, eftir hafa framið það sem er hin versta teg­und af glæp; glæpi gegn mann­kyni og þjóð­ar­morð - og stundað þjóð­ern­is­hreins­anir án þess að blikna.

Alþjóða­sam­fé­lagið verður að vera á varð­bergi, því hættan er stöðug og ný dæmi hafa komið til sög­unnar, t.d. í Búrma, þar sem skipu­lega er reynt að útrýma Róhingjum.

Þá eru uppi ótví­ræðar vís­bend­ingar að þjóð­ern­isöfgar og stæk þjóð­ern­is­hyggja grass­eri enn víða í kringum okkur og sé afl sem vert er að gjalda var­hug við, því nei­kvæð öfga­kennd þjóð­ern­is­stefna er eitt hættu­leg­asta „vopnið“ í vopna­búri stjórn­mál­anna. Hennar gætir nú því miður veru­lega beggja vegna Atl­ants­hafs­ins.

Hér er mjög áhuga­vert mynd­band, þar sem Ratcko Mladic seg­ist vilja myrða frétta­konu CNN, Christiane Amanpour, sem flutti fréttir af Bosníu-stríð­inu. Mladic var og er grimmur og vægð­ar­laus.

Höfundur er stjórn­mála­fræð­ingur og skrif­aði BA-rit­gerð sína í Háskóla Íslands, sem bar tit­il­inn Hrun Júgóslavíu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár