Höfuðborgarsvæðið á viðkvæmum tíma í faraldrinum

Íþrótta­kennsla í skólum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu verður utandyra og verða íþrótta­hús, sund­laugar og söfn lokuð. Ákvörð­unin verður end­ur­skoðuð að viku lið­inni.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri.
Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri. Mynd: Bára Huld Beck

Mik­il­vægt er að gæta fyllstu var­úðar og hafa skila­boðin eins ein­föld og kostur er. Þetta er nið­ur­staða sveit­ar­fé­lag­anna og almanna­varna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en almanna­varn­ar­ráð höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins hitt­ist á auka­fundi í gær­kvöldi, að því er fram kemur í stöðu­upp­færslu Dags B. Egg­erts­sonar borg­ar­stjóra á Facebook í dag.

Íþrótta­kennsla í skólum verður því utandyra og íþrótta­húsum, sund­laugum og söfnum verður lokað. „Við viljum ekki að börn úr ólíkum skólum bland­ist saman á íþrótta­æf­ingum, né nokkrir aðrir. Það ræðst nefni­lega á næstu dögum hvort við náum tökum á þess­ari bylgju eða hvort grípa þurfi til harð­ari aðgerða,“ segir Dagur.

Fund­ur­inn var sá síð­asti í langri röð funda þar sem fræðslu­yf­ir­völd og yfir­völd íþrótta­mála á svæð­inu höfðu setið sól­ar­hring­inn frá því reglu­gerð um sótt­varn­ar­ráð­staf­anir var gefin út á sunndag. Fund­irnir áttu það sam­merkt að vera að vinna úr fyr­ir­mælum, túlka og eyða vafa­málum, sam­kvæmt Degi.

„Þurfum að vinna saman og róa í sömu átt“

[links]Þá seg­ist borg­ar­stjór­inn vera stoltur af sam­stöð­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. „Við þurfum að vinna saman og róa í sömu átt, og þá vitum við að við getum þetta, alveg eins og í vor.“

Hér fyrir neðan má lesa til­kynn­ingu almanna­varn­ar­ráðs höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins:

„Höf­uð­borg­ar­svæðið er á við­kvæmum tíma í far­aldr­inum. Smitum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur farið fækk­andi síð­ustu daga. Næstu daga er mik­il­vægt að ná enn frek­ari tökum á þess­ari bylgju svo hægt verði aftur að draga úr sótt­varn­ar­ráð­stöf­unum í stað þess að herða frekar á þeim.

Sótt­varn­ar­yf­ir­völd og almanna­varnir hafa hvatt alla og höf­uð­borg­ar­svæðið sér­stak­lega til að halda áfram að koma í veg fyrir hópa­myndun, nánd og blöndun aðila úr ólíkum áttum næstu vikur. Mark­miðið er að draga úr dreif­ingu og vexti veirunnar og vinna gegn auknu álagi á heil­brigð­is­kerfið.

Sam­fé­lagið á mikið undir því að það tak­ist að halda skóla­starfi gang­andi. Því er lögð áhersla á að tak­marka blöndun barna og ung­linga milli ólíkra leik- og grunn­skóla höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Að öðrum kosti getur eitt smit leitt til að óþarf­lega stórir hópar eða fleiri en einn skóli þurfi að fara í ein­angrun eða sótt­kví.

Eftir ítar­lega yfir­ferð yfir stöð­una og í ljósi leið­bein­inga sótt­varn­ar­yf­ir­valda og í sam­ráði við almanna­varnir höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins hafa skóla- og íþrótta­svið allra sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu tekið þá ákvörðun að öll íþrótta­kennsla muni fara fram utandyra að teknu til­liti til ítr­ustu sótt­varna og einnig mun skóla­sund falla niður. Öll íþrótta­mann­virki og sund­laugar á vegum sveit­ar­fé­lag­anna verða lokuð. Söfn sem rekin eru á vegum sveit­ar­fé­lag­anna verða einnig lokuð.

Þessi ákvörðun verður end­ur­skoðuð að viku lið­inni, í takt við álit sótt­varna­læknis.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár